Feykir


Feykir - 21.08.1991, Blaðsíða 1

Feykir - 21.08.1991, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Uppkaup framleiðsluréttar í Sauðfé: Gengur best í Skagafirði Stefnir í flatan niöurskurö í Húnavatnssýslum Vigdís heilsar Skagafirði á föstudag Það hefur varla farið fram hjá Skagfirðingum undanfarið að von er á forsetanum frú Vigdísi Finnbogadóttur í heimsókn í héraðið um næstu helgi. Væntanlega munu fánarþá blakta við hún á hverri stöng, að minnsta kosti hefur verið nóg að gera á Saumastofunni á Hofsósi í sumar við að sauma íslenska fánann. Þær voru einmitt önnum kafnar við fánasauminn þegar útsendari Feykis var á ferð á Hofsósi í síðustu viku, saumakonurnar Guðbjörg Guðnadóttir, Svanhildur Guðjónsdóttir og Halldóra Márusdóttir. Ófeigur Gestsson bæjarstjóri um gjaldþrot Serkja: „Óhressir með aö fjárhagsleg endurskipulagning tókst ekki" Útlit er fyrir að niðurskurður í sauðfjárrækt sem nýlegur búvörusamningur felur í sér, eigi sér stað í Húnavatns- sýslum með flatri skerðingu; þar sem bændur hafa ekki haft áhuga fyrir sölu fullvirðisréttar. I Skagafirði hefur hinsvegar gengið nokkuð vel að kaupa upp þau 12% sem skerðingin nemur. í dag liggur fyrirsala á 8-9%, en í Húnavatnssýslum virðist ekki falt nema lítið brot af þeim kvóta sem stjórnvöld óskuðu eftir. „Menn sýndu þessu mjög lítinn áhuga til að byrja með í vor, en það hefur ræst úr framar vonum. Við eigum fundi með forráðamönnum búnaðarfélaga í hverjum hreppi núna í vikunni og þá ætti að ráðast hvort takist að Steinullin: 11 milljónatap fyrri hluta árs Steinullarverksmiðjan var rekin með 11 milljóna tapi fyrstu sex mánuði ársinsí stað 20 milljóna króna hagnaðar sömu mánuði í fyrra. Aætlanir gerðu ráð fyrir 18 milljóna tapi það sem af er þessu ári, en þess vænst að reksturinn verði í jafnvægi um áramót. Ástæður útkomunnarfyrri hluta árs er mestmegnis óhagstæð gengisþróun sem menn þóttust sjá fyrir í upphafi árs. Söluaukning hefur orðið milli ára, er 9% meiri nú en fyrstu sex mánuði í fyrra. Útflutningur hefur aukist um fjórðung og sala innanlands um 3%. kaupa upp eitthvað meira en þessi 8-9%. Maður á svo sem ekki von á að það verði mikið meira. Dæmi verður þá gert upp á þann hátt að ríkið kaupir það sem upp á vantar og því deilt á framleiðenduma á svæðinu”, sagði Víkingur Gunnarsson hjá Búnaðar- sambandi Skagafjarðar. Ekki hefur verið tekið saman hve mikið var selt úr hverjum hreppi en mestu munaði um sölu á öllum framleiðslurétti tveggja býla í Akrahreppi, á Silfrastöðum og Keldulandi, 300-400 ærgilda á hvorum stað. Vestur-Húnvetningar sleppa með 9,6% skeðingu þar sem svæðið var metið mjög heppilegt til sauðfjárræktar. Bændur þar vestra hafa sýnt sölu fullvirðisréttar nánast engan áhuga. Aðeins selst um 1% af þeim 3300 fjár sem stefnt var á. ,,Menn hefa frest fram að mánaðamótum að gera samninga og fá þá 600 krónur fyrir kílóið. En upp úr því fæst eingungis 450 krónur fyrir þaðsem þvingað verður fram með flatri skerðingu. Það blasir við að til þess kemur þar sem menn sýna þessu engan áhuga”, sagði Gunnar Þórarinsson raðunautur Búnaðarsambands V,- Hún. Guðbjartur Guðmundsson raðunautur Búnaðarsambands A.-Hún. var nýkominn úr fríi. Hann sagði að menn hefðu spurst fyrir, en væntan- lega gerðist eitthvað á næstu tveim vikum. Hann vildi engu spá um hversu gírugir menn yiðu að selja framleiðslu- rétt upp í 12% skerðinguna. ,,Við erum ákaflega óhressir með að okkur skyldi ekki hafa tekist að Ijúka þeirri fjárhags- legu endurskipulagningu sem stefnt var að í Serkjum. Það strandað á Iðnlánasjóði, sem var eini aðilinn sem neitaði þátttöku í þessu verkefni er beindist að niðurfellingu skulda, skuldbreytingu og hlutafjár- aukningu”, segir Ófeigur Gestsson stjórnarformaður pappírspokaverksmiðjunnar Serkja sem var úrskurðuð gjaldþrota í byrjun mánaðarins. Þeir sem koma til með að verða helstu kröfuhafar í þrotabú Serkja eru Iðnlána- sjóður, Iðnþróunarsjóðut', Byggðasjóður og Blönduós- bær sem hefur yfirtekið lán Búnaðarbanka til Serkja. Fyrsti skiptafundur hefur verið ákveðinn 11. nóvember nk. Bústjóri þrotabúsins hefur verið skipaður Þorsteinn Hjaltason lögfræðingur á Akureyri. Þreifingar hafa staðið nokkuð lengi um stofnun nýs fyrirtækis upp úr rústum Serkja, er mundi framleiða innkaupapoka úr pappír. Að sögn Ófeigs er óljóst hvað úr því verður, þar sem svar liggur ekki enn fyrir frá nokkrum aðilum. Fyrirsjáan- legt er að Blönduósbær mun tapa umtalsverðum fjármunum við gjaldþrotið. Þar sem skammt er liðið kröfulýsingar- frests er ekki vitað hve stórt það verður. Samkvæmt ársreikningi voru skuldir Serkja tæpar 96 milljónir um síðustu áramót, þar af um 68 milljónir skammtímaskuldir. Serkir voru stofnaðir árið 1986 af nokkrum einstaklingum og fyrirtækjum á Blönduósi, með þátttöku Byggðastofn- unar. Stofnhlutafé fyrirtæk- isins var 30 milljónir. —KTen?i!! hjDI— Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði Aöalgötu 26 Sauðárkróki RÉTTINGAR • SPRAUTUN ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA ^^DKIbilflvcrhlffdi Q 1J—i * 1 SAOOtlHÍD*/ oi?» iioi SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141 BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SlMI: 95-35519» BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.