Feykir - 28.08.1991, Síða 4
4 FEYKIR 29/1991
Sex hestakonur biðu forsetans við afleggjarann til Hofsóss og fóru á undan forsetabílnum í
fánahillingu inn í þorpið.
Vigdís fór suöur
Forseti virðir héraðið fyrir sér frá Arnarstapa ásamt Brodda
Björnssyni oddvita Akrahrepps, Þorsteini Asgrímssyni, Sigurði
Haraldssyni oddvita Seyluhrepps og Halldóri Jónssyni
sýslumanni.
Forseti íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir sagði við
brottförina frá Sauðárkróki á
áttunda tímanum á sunnu-
dagskvöld að hún færi suður á
Bessastaði rík endurminninga
frá þessum ánægjulegu dögum í
Skagafirði. Forsetinn lofaði
móttökur Skagafirðinga og
vinarþel í sinn garð. Frú
Vigdís heimsótti alla hreppa
Skagafjarðar og var leyst út
með gjöfum á hverjum stað.
Ibúar héraðsins létu sig
ekki vanta að taka á móti
forsetanum, hvarvetna var
fjölmenni og Vigdís lagði sig í
líma að tala við alla. Það
reyndist henni hinsvegar
erfitt í síðustu móttökunni,
er fram fór í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki síðdegis á sunnu-
dag. Að henni stóðu Skarðs-
og Rípurhreppur auk Sauð-
árkróks. Um 600 manns
mættu í íþróttahúsið og
gekkst forsetinn fyrir fjölda-
söng í lokin.
Það væri synd að segja að
móttökumar með forsetanum
væru þurrar ogformlegar, og
átti frjálslegt og glaðlegt fa_s
Vigdísar þar mikinn þátt. Á
Hofsósi t.d. kallaði hún upp
bílstjóra þann sem ók henni
til Siglufjarðar vorið 1981, en
þá var hún á ferðalagi um
Norðurland fýrir kosningamai'.
Og bílstjórinn var þarna
staddur, enginn annar en
Gunnar Baldvinsson. Stóðu
þau Gunnar og Vigdís hlið
við hlið meðan bráðefnilegur
píanóleikari frá Víðilundi
lék, og á eftir áttu þau
skemmtilegt spjall er vakti
glaðværð í salnum.
Vigdís var alls staðar leyst
út með gjöfum. Frá íbúum
Lýtingsstaðahrepps fékk hún
hnakkgjörð bmgðna úr hross-
hári eftir Margréti Ingvars-
dóttur á Mælifellsá. Ibúar
Seylu-, Akra- og Staðar-
hrepps gáfu forsetanum
stóran skjöld úr eldtraustu
keramiki gerðan af Sigríði
Önnu Hróðmarsdóttur. Fljóta-
menn gáfu Vigdísi keramik-
krús skreytta með áletraðri
silfurplötu og í krúsinni var
barnamold (kísilmold), en
hún finnst á Tungudal og er
það eini staðurinn á stóru
svæði sem þessi tegund
moldar finnst. Þá var Vigdísi
einnig gefin skrautgerð mynda-
bók með myndum úr
hreppnum.
Frá íbúum Hofshrepps
fékk hún tvær drápur eftir þá
Axel Þorsteinsson í Litlu-
Brekku og Kristján Árnason
á Skálá. Frá Hóla- og
Viðvíkurhreppi handprjónaðan
dúk eftir Margréti Haralds-
dóttur á Sleitustöðum. Skefl-
ungar gáfu Vigdísi æðar-
dúnssæng með dún frá
Vigdís spjallar við fólkið, hér í félagsheimilinu Árgarði í Lýtingsstaðahreppi.
í Miðgarði varljölmenni mætt til að taka á móti forsetanum.
rík endurminninga