Feykir - 09.10.1991, Page 2
2 FEYKIR 35/1991
Barlómur og vetrarkvíði
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAOUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aöalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERÐ: 100 krónur hvert tölublað; í
lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku-
dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN:
SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Auglýsing í jafn
víðlesnu blaði
borgar sig
Enn einu sinni blasir við sú blákalda
staðreynd að vetur er að ganga í garð og
þær samkundur sem honum tilheyra hafa
byrjað starfsemi sína, svo sem skólar og
Alþingi Islendinga. Það kannast sjálfsagt
flestir við tilfinningar eftirsjár að liðnu
sumri og kannski svolitlum kvíða í
maganum fyrir vetrinum. Það er nú einu
sinni svo að sumarið er stutt hjá okkur
Islendingum.
En þegar haustar er gott að ylja sér við
endurminningar liðins sumars, sem að
þessu sinni var með því betra sem komið
hefur lengi, og minnast þess um leið að
aftur kemur vor að liðnum vetri.
En hvað sem þessu líður hefur haustið
trúlega verið erfiðara mörgum en flest
önnur. Sérstakar ástæður eru til þess. Þar
er um að kenna barlómi he^ranna á
stjórnarheimilinu: að allt sé að fara á
hausinn, landið að sökkva í skuldum,
velferðarkerfið nánast óverjanlegt, og
launafólk verði bara að sætta sig við að
ekkert sé um að semja í næstu
kjarasamningum. Það verði eiginlega að
gera sér að góðu að vinna á sama
þjóðarsáttarkaupinu næstu árin, þrátt fyrir
stöðugar kostnaðarhækkanir, sem það
opinbera virðist ganga á undan meðeinsog
fyrri daginn.
En er þessi sálusöngur í takt við það sem
er að gerast í landinu. Þeir sem hafa fylgst
með fréttum af uppgjörum fyrirtækja af
rekstri eftir sex og átta mánuði þessa árs
ættu kannski að geta dæmt um það. Það
nefnilega virðist vera þannig að þrátt fyrir
hækkun raunvaxta í landinu gangi
ágætlega að reka fyrirtækin. Mörg stærstu
fyrirtæki landsins virðast standa ágætlega í
dag, miðað við afkomu þessa árs. Og í
grundvallaratvinnugreininni, ilskvinnslunni,
virðast hlutirnir ganga upp. Nægir þar að
nefna mjög góða útkomu Fiskiðjunnar/
Skagfirðings, stórkostlegan rekstrarbata
frá síðasta ári, þrátt fyrir að það ár hafi
einnig verið gott í rekstri.
Það er deginum ljósara að mjög varasamt
er að taka orð stjórnarherranna sem
einhvern stóra sannleik. Og ef fólk skoðar
söguna, þá virðist þaðvera þannigað nýjar
stjórnir máli gjarnan skrattann á vegginn til
að sverta störf fyrri stjórnar, og slá með því
tvær flugur í einu höggi þegar
kjarasamningar eru lausir. Það er því engin
ástæða til að láta vetrarkvíðann ná
algjörum tökum, heldur hefja vorhuginn úr
dróma svartnættisins.
ÞÁ.
Stefnt að stofnun
farskóla í kjördæminu
Tveir góðir í Laufskálarétt: Ingimar Ingimarsson og
Friðrik Pálmason frá Svaðastöðum.
Gestir smala til
Laufskálaréttar
Farskóli er í undirbúningi í
Norðurlandi vestra. Yrði liann
nokkurs konar útibú frá
fjölbrautaskólanum og byði
upp á námskeið sem flokka
mætti hvort heldur sem
almenna menntun eða starfs-
menntun og þjónaði bæði
almenningi og fyrirtækjum.
Einnig er i ráði að bjóða upp á
fræðslu sem hefur að mark-
miði að byggja upp og treysta
sjálfsímynd þátttakenda.
Fyrst minnst er á farskóla
gætu margir ímyndað sér að
hér sé um afturför að ræða,
og hafa þá í huga þegar
farkennarar voru í sveitum
og skólinn fluttist bæ frá bæ.
En svo er ekki, nafnið er
tilkomið vegna þess að
skólanum er ætlað að starfa
vítt og breytt um kjördæmið
og er vænst mikils af
samstarfi við verkalýðsfélög,
atvinnurekendur og Fræðslu-
miðstöð iðnaðarins.
Reyndar er það ekkert nýtt
að fjölbrautaskólinn bjóði
upp á námskeið út um
kjördæmið í ýmsum fögum.
„Við erum að færa út
kvíarnar og víkka samstarfs-
gi-undvöllinn. Eg er bjartsýnn á
að af stofnun skólans verði
og skólastarfið hefjist jafnvel
á næstu vorönn”, segir Jón
F. Hjartarson skólameistari.
Á fundi á Sauðárkróki í
síðustu viku var ákeðið að
vinna að skipulagsskrá fyrir
skólann og leggja hana fyrir
alla sem koma til með að
verða stofnaðilar áður en
næsta skref yrði stigið.
Fundinn sátu væntanlegir
stofnaðilar: fulltrúar héraðs-
nefnda í Skagafirði og
Húnavatnssýslum, Sigluíjarðajy,
kaupstaðar, Menningar- og
fræðslusambands alþýðu, auk
iðnráðgjafa og fulltrúa fjöl-
brautaskólans.
„Það var greinilegur munur á
hvað var færra fólk núna en í
fyrra. Veðrið dró úr þó við
slyppum furðanlega og þetta
gekk ágætlega bæði göngur og
réttarstarf', sagði Jón Garðars-
son réttarstjóri í Laufskálarétt,
en þar voru réttuð um 700
stóðhross sl. laugardag.
Jón og nokkrir aðilar í
sveitinni tóku sig saman og
gáfu gestum kost á að fara í
göngur. Þrátt fyrir hríðar-
veður um moguninn mættu
15 manns, en margir höfðu
afboðað komu sína daginn
áður vegna slærns veðurútlits.
„Fólk var mjög ánægt með
þetta og það verður alveg
klárlega haldið áfram. Það er
greinilegt að marga fýsir í
göngur”, sagði Jón.
Það er ekkert nýtt að illa
viðri þegar réttað er á
Laufskálum. Einungisþrisvará
síðustu 10 árum hefurviðrað
vel og sagði Jón í umræðunni
að færa göngurnar fram. Það
mundi þá líklega gerast með
því að fjölgað yrði í afréttinni
þannig að beitardagar héldust
jafnmargir. Á móti kænti að
heimahagar yrðu betur búnir
að taka við lengingu haust-
beitar.
Línubátur á Skagaströnd byrjar vertíðina vel:
Rúm fimm tonn í tveim róðrum
Einn bátur er byrjaður
línuveiðar frá Skagaströnd og
hefur fiskað mjög vel í þeini
tveim róðrum sem hann hefur
komist á sjó, fékk tæp þrjú
tonn í fyrri sjóferð og tvö og
hálft í seinni. Þessi byrjun
gefur vissulega ástæðu til
bjartsýni á haustvertíðina.
Það' er burtfluttur Skag-
strendingur, Sigurður Pálma-
son, sem kom norður á sex
tonna bát sínunt og leggur
upp hjá HólanesL Sveinbjarnar-
grunn vestur af Skagaströnd
hefur reynst honum vel, en
það mun vera skammt frá
Hióllspolli svokölluðum, góðum
miðum sem Hrólfur Jakops-
son frá Illugastöðum fann á
sínum tíma.