Feykir - 09.10.1991, Blaðsíða 5
35/1991 FEYKIR 5
Hugleiðingar um
Hólastað
Á meðan á Hólum í
Hjaltadal var biskupssetur,
var þar miðstöð allra kirkju-
mála á Norðurlandi. Þar var
prestum kennt og þeir vígðir
til embætta sinna. Mikla
peningastrauma lagði þaðan
um allt stiftið. Hólastaður
var stórauðugur af góðum
kirkjugripum og átti fjölda
jarða í Skagafirði og víðar.
Nú er öldin önnur, en þó
skipa Hólar sérstakan sess
meðal norðlenskra kirkna.
Endurreisn staðarins er
langtíma verkefni sem norð-
lenskir prestar og fjöldi fólks
brennur af áhuga fyrir, og
kirkjuyfirvöld hafa unnið að
árum saman og þokað ýmsu
áleiðis. Einnighefurásíðustu
árum verið byggt við og
lagfært heimili kirkjunnar á
Löngumýri þar sem mikil
starfsemi er í hennar þágu
árið um kring.
Þáttur í því að auka veg og
virðingu Hóla var að flytja
aðsetur vígslubiskups Norður-
lands þangað heim. Fyrir
nokkrum árum settust þar að
fyrsti biskupinn sr. Sigurður
Guðmundsson og kona hans
frú Aðalbjörg Halldórsdóttir.
Hann hafði alla sína starfs-
ævi verið prestur á Grenjaðar-
stað í Þingeyjarsýslu.
Á þessum árum hafa
miklar endurbætur verið
gerðar á Hólakirkju utan
sem innan. Hin gamla
altaristafla var send á
Þjóðminjasafnið til viðgerðar
og er nú komin aftur.
Nokkrir gamlir kirkjumunir
frá Hólum, sem varðveittir
voru á safninu, eru komnir
heim aftur. Nýtt orgel var
smíðað í kirkjuna, vandað og
fagurt.
Þessar framkvæmdir eru
auðvitað yfirstjórn íslenskra
kirkjmála að þakka, en þó á
sr. Sigurður þar góðan hlut
að máli. Með dvöl hans á
Hólum finnst Skagfirðingum
hann hafa fært sönnur á það
að vígslubiskupssetur á Noiður-
landi eigi að vera á hinum
forna biskupsstóli.
Sl. vor lét sr. Sigurður af
embætti fyrir aldurs sakir.
Um það bil sem nýr biskup
tók við embættinu, heyrði ég
þau orð falla, að héðan í frá
yrði höfuðvígi norðlenskra
kirkjumála á Hólum. Mér
brá dálítið ónotalega, því í
mínum huga hefur svo verið
frá því að þetta háa embætti
var flutt þangað, og svo mun
verða um ókomna tíð. Nýr
biskup, sr. Bolli Gústavsson,
flutti í Hóla er hann tók við
embættinu. Hann varprestur
á Laufási í Þingeyjarsýslu.
Það gleður mitt gamla
þingeyska hjarta að báðir
þessi biskupar skuli koma frá
sögufrægum kirkjustöðum á
mínum heimaslóðum, en ég
furða mig ekkert á því.
Skagfirsk kona sem nú er
löngu látin, Aldís Sveinsdóttir,
sagði að það væri trú á því
hér, að þeir sem dvelja á
Hólum byndust staðnum
sterkum böndum. Þeir eign-
ast staðinn og staðurinn
eignast þá.
Ég býð sr. Bolla og frú
Matthildi velkomin í Skaga-
íjörð til að starfa fyrir
kirkjuna og til ánægjulegra
samvista við þá sem hér búa.
12. september 1991
Helga Kristjánsdóttir
frá Silfrastöðum.
Sigurvin Gústa guðsmanns
gerður að safngrip
Fyrir þá sem þekktu til á
Siglufirði hér áður fyrr, fer
ekki hjá því að þeir minnist
Gústa guðsmanns, og Gylfi
Ægisson hefur hresst enn
frekar upp á þá minningu með
stórgóðu lagi. Nú hefur
Sigurvin, báturinn sem Gústi
gerði út í samvinnu við
almættið verið tekinn til
viðgerðar. Ætlunin er þó ekki
að afla haffærnisskírteinis
heldur að gera bátinn klárann
sem safngrip.
Frá þessu segir í Hellunni,
bæjarblaðinu á Siglufirði.
Feðgarnir Njörður Jóhanns-
son og Jóhann Sigurðsson
annast viðgerðina og hefur
fleytan verið flutt í gömlu
Húseiningaverksmiðjuna. Sigur-
vin tilheyrir minjasafninu en
Siglfirðingur hf hefur tekið
hann í fóstur um skeið og
greiðir allan kostnað við
verkið.
Talið er að Sigurvin sé í
góðum höndum hagleiks-
mannanna Njarðar og Jóa.
Njörður gjörþekkir bátinn
eftir að hafa smíðað lítið
módel af honum fyrir
nokkrum árum. Og Jói var
Gústa oft innan handar með
bátsvélina. Smíða þarf efstu
borð og öldustokk öðru
megin, kjöl að hluta o.m.fL.
Upprunaleg vél bátsins er
glötuð en önnur samskonar
fannst eftir krókaleiðum
vestur á Hvammstanga og
hefur hún verið flutt að
bátshlið.
Við bjóðum til
snyrtivöraveislu
N.k. föstudag 11. okt. opnum viö glœsilega
snyrtivöruverslun meö fjölda nýrra merkja .
Líttu viö ö föstudaginn kl. 14-18
...þú muntekkisjö eftirþví!
Vertu velkominn
SKAGFIRÐINGABÚÐ
Snyrtivörur