Feykir - 30.10.1991, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Rækjuveiöar á Húnaflóa:
Leyft að veiða sama
magn og í fyrra
Rannsóknarskipið Dröfn kannaði
rækjumiðin í Húnaflóa og á
Steingrímsfirði í síðustu viku.
Vegna niðurstöðu leiðangurs-
ins hefur Hafrannsóknarstofnun
lagt til að sömu veiðiheimildir
verði veittar á svæðinu og á
síðustu vertíð, 2000 tonn.
Svipuð útkoma var af
veiðitilraunum Drafnar á
Húnaílóa og Skagafirði,
minna magn er af rækju en í
fyrra en hún heldurstærri en
þá. Vegna ýsuseiða og eins
árs þorsks verða rækjuveiðar
bannaðar á Steingrímsfiði og
mun því meira mæða á
Húnaflóanum á þessari ver-
tíð.
Rækjukvótinn skiptist þannig
milli staða á Húnaflóasvæð-
inu: Hólmavík fær 50%,
Skagaströnd 22%, Hvamms-
tangi 18% og Blönduós 10%.
Félag aldraðra í Austur-Hún.:
Afhendir átta íbúðir
Hún lítur ekki vel út rafmagnstaflan í Röst Sk 17, eftir að eldurkom upp í vélarrúmi skipsins úti á
rúmsjó sl. fimmtudagskvöld. Þetta er annað óhappið sem hendir Röstina á skömmum tíma. Ljóst
er, að skipið fer ekki meira á sjó á þessu ári og útgerðskipsinshefurorðiðfyrirtugmilljóna tjóni
vegna fjarveru þess frá veiðum. „Nú verða menn að taka ákvörðun, hvað verður gert”, sagði
Ómar Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri, sem telur sterklega koma til greina að selja skipið.
Byrjunarörðugleikar við Blönduvirkjun:
í þjónustukjarna
á Blönduósi
Grjóthaugur úr Gilsárgili veldur
mótstöðu í frárennslisskurði
Sl. laugardag voru afhentar
með viðhöfn á Blönduósi, átta
íbúðir fyrir aldraða í þjónustu-
kjarna skammt frá Héraðs-
hælinu. Það er Félag aldraðra
í Austur-Húnavatnssýslu sem
stendur fyrir þessum bygging-
um með bakábyrð héraðs-
nefndar og Blönduósbæjar.
Einungis tæp tvö ár eru síðan
félagið var stofnað og hefur
það starfað með miklum
krafti. Þegar er uppsteypt
önnur átta íbúða þjónustu-
bygging sem tekin verður í
notkun seint á næsta ári.
í byggingunni, sem teiknuð
er af Sigurbergi Árnasyni
arkitekt Húsnæðisstofnunar,
eru fjórar hjónaíbúðir 73
fermetrar að stærð, fjórar
einstaklingsíbúðir 62 fermetrar
og sameiginlegt rými 180
fermetrar. Verð stærri íbúð-
anna er rúmar 8 milljónir og
þeirra minni 7 milljónir.
Byggingarnefndin, sem skipuð
er aðilum frá héraðsnefnd,
Blönduósbæ og Félagi aldraða
gaf húsgögn í setustofu og
útibú Búnaðarbankans gaf
sjónvarp. Blönduósbær bauð
upp á kaffiveitingar.
Framkvæmdir voru unnar
af heimaaðilum. Aðalverk-
takar við bygginguna voru
byggingarmeistararnir Hlynur
Tryggvason og Sigurjón
Ólafsson. Jarðvegsframkvæmdir
sá Þorvaldur Evensen um.
Formaður Félags aldraða í
Austur-Húnavatnssýslu er
Torfi Jónsson á Torfalæk.
Fjórða október daginn áður en
fyrsta aflvél Blönduvirkjunar
var ræst, var yfirfall Gilsár-
stíflu prófað og hleypt yfir
allmiklu vatnsmagni. Vatns-
flaumurinn greip með sér
jarðveg og grjót úr Gilsárgili
og var krafturinn svo mikill að
botn ræsis í gegnum nýja
veginn hreinsaðist burtu.
Efnið úr gilinu, hátt í 35
þúsund rúmmetrar, safnaðist í
stóran haug í frárennsliskurð-
inum frá virkjuninni. Þetta
hefur skapað bakþrýsting á
vélarnar við raforkufram-
leiðsluna og þurft hefur að
grípa þar til ýmsra ráðstafana.
Farið var með jarðýtu og
gröfu niður að frárennslis-
skurðinum á dögunum og
gerður farvegur til bráða-
birgða fyrir frárennslið frá
vélum virkjunarinnar til að
minnka bakþrýstinginn. Að
sögn Ólafs Jenssonarstaðar-
verkfræðings verður að hreinsa
efnið úr frárennslisskurðin-
um bráðlega. Menn hafa uppi
ákveðnar hugmyndir um
heftingu framburðar úr Gilsár-
gilinu, en ekki liggi eins
mikið á með það því
sárasjaldan eigi að vera þörf
á að hleypa vatni um
yfirfallið í Gilsárstíflunni,
aðeins þegar sérstakar að-
stæður skapist. Má þar nefna
t.d. ef rakorkuframleiðsla
stöðvast um tíma og afsetja
þarf vatn úr lóninu. Það var
vegna slíkra prófana sem
vatni var hleypt yfir Gilsár-
stífluna 4. október.
„Við vorum búnir að vara
þá við þessu. Gilið er þröngt
og vitað var að jarðvegur er
laus þarna. Þetta var hroða-
lega aðkoma þarna, eins og
andskotinn hefði rennt sér á
rassinum niður gilið. Vatns-
flaumurinn hefur dýpkað
það á annan meter víða. Þeir
hafa verið að hleypa þarna
vatni í gegn annað slagið
undanfarið. Þetta er bölvan-
legt gagnvart skepnum þegar
svona mishátt er í ánni, og
mikil hætta á að þær fari sér að
voða. Það sást t.d. um daginn
til fjögurra kinda sem fóru í
ána, þrjár skiluðu sér upp úr
aftur”, sagði Sigurður Ingvi
Bjömsson bóndi á Guðlaugs-
stöðum.
—ICTengil! hjDI— Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
Aöalgötu 26 Sauöárkróki RÉTTINGAR • SPRAUTUN
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN t/llKI bibcrtalffdi^
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SlMI: 95-35519* BÍLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 lSWiOtíIÍMf -- o.7, iioi^'"' SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141