Feykir - 30.10.1991, Blaðsíða 8
Oháð fréttablað á Noröurlandi vestra
30. október 1991, 38. tölublað 11. árgangur
STERKUR AUGLYSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla
virka daga frá kl. 9.15 -16.00
Sími 35353 ii
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Bæjarráð Sauðárkróks:
Tillaga um að útvarpa frá
fundum bæjarstjórnar
Borin hefur verið upp tillaga í
bæjarráði Sauðárkróks af
bæjarfulitrúum framsóknar,
þess efnis að útvarpað verði
frá bæjarstjómarfundum. Fjöl-
brautaskólanemar segjast gjaman
vilja útvarpa beint frá
hæjarstjórnarfundum, en Rás
Fás reið á vaðið í haust með
beinar lýsingar frá útileikjum
Tindastóls í Japisdeildinni.
Bókanir nefnda og ráða
bæjarins komu enn einu sinni
til umræðu á bæjarstjórnar-
fundi í síðustu viku. Anna
Kristín Gunnarsdóttir (G)
gagnrýndi að bæjarráð skilaði
ekki skýrslu um för sína til
Reykjavíkur á dögunum
þegar haldið var á fund
Ijárveitingavaldsins, en utan
dagskrár fundað með for-
ráðamönnum flugmálastjómar,
vita- og hafnarmála og
vegagerðar ríkisins. Anna
sagðist af tilviljun hafa frétt
af þessu, og eins þyrfti að
taka til endurskoðunar hvað
bókanir funda væru yfir-
borðskenndar og lítið upp-
lýsandi fyrir hinn almenna
bæjarbúa.
Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri sagði ekkert nýtt
að menn óskuðu eftir
ferðaskýrslum. Þetta gerðist
yfirleitt einu sinni á kjör-
tímabili og eftir það tækju
menn sig til og skiluðu
skýrslum en fljótlega fjaraði
pennagleðin út og í sama
farið sækti að nýju. Snorri
sagði alveg ljóst að bókanir
af fundum segðu oft á tíðum
ekki mikið um það sem
gerðist á fundinum og gætu
verið mun ítarlegri. Ef menn
vildu nákvæmari bókanir þá
væri ekkert annað en óska
eftir því hjá viðkomandi
nefnd eða ráði. Varðandi
fundina með nugmálastjórn,
vita- og hafnarmálum og
vegagerðinni sögðu þeir
Stefán Logi (B) og Snorri
Björn að bæjarráðið hefði
verið að nýta tímann í
Reykjavík. Vissulega hafi
verið fengur að fundi með
þessum aðilum, þó svo
ekkert fréttnæmt hefði komið
út úr þeim.
Þessar byggingar gætu verið í fátækrahverfi einhverrar stórborgarinnar, en þetta eru
peningshúsin á Kambinum. Reikna má með að bráðlega heyri þessar byggingar sögunni til þar
sem búfjárhald verður bannað á Króknum neðan Nafa eftir 2 ár. Rollubændur vilja að fjárborg
verði skipulögð í nágrenni bæjarins, þar sem þrengi að rollubúskap á Krók.
Framsóknarmenn í bæjarstjórn:
Vilja lýsa upp
„Þingvallahrmginn"
, JJaejarstjórn Sauðárkróks beinir
því til veitustjórnar að við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 1992 verði gert ráð fyrir
fjármagni er tryggi lýsingu
Sauðárkróksbrautar frá gatna-
mótum Siglufjarðarvegar að
gatnamótum Skagfirðingabrautar
og verkinu verði lokið haustið
1992”.
Bæjarfulltrúar framsóknar
vilja lýsa upp þennan hluta
hringsins kringum Sauðár-
feykjur
Auglýsing og
umferöaröryggi
Körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls hefur sótt um leyfi til
uppsetningar auglýsingaskiltis
á suðurhlið íþróttahússins.
Byggingarnefnd hefur hafn-
að erindinu og leggur til
grundvallar þrjár forsendur:
umferðaröryggi, fordæmis-
gildi og útlitsbreytingu. Að
venju hlítir bæjarstjórn
niðurstöðu fagnefnda bæjar-
ins. Ljóst er engu að síður að
skiptar skoðanir eru innan
bæjarstjórnar um málið, og
til kasta þeirra kann að koma
þar sem líklegt má telja að
málið verði tekið fyrir að
nýju.
Herdís Sæmundardóttir
(B) sagðist fallast á rök
byggingarnefndar gagnvart
umferðaröryggi. Þarna
sunnan við væri um umferð
gegnum skólahverfi að ræða
og mörg börn á ferðinni.
Ódýr hraöahindrun
Knútur Aadnegaard (D)
sagði að á grundvelli þessa
yrði líklega að endurskoða
leyfi fyrir tveimur auglýsinga-
skiltum sem leyfð höfðu verið
við Skagfirðingabrautina. Á
sundlaugargirðingunni þar
sem knattspyrnumenn aug-
lýstu leiki sína og við
fjölfömustu gatnamót bæjarins
þar sem boltaleikirnir væru
auglýstir sumar og vetur.
Sjálfur væri hann hlynntur
auglýsingu á íþróttahúsið
sem tekjuöflun fyrir körfu-
knattleiksdeildina. Að auki
mundi hún fríkka suður-
hliðina sem væri ekkert
augnayndi í dag.
Stefán Logi Haraldsson
(B) og stjórnarmaður í
knattspumudeild brást snöggt
við athugasemd Knúts vegna
auglýsingar hjá sundlaug.
Kvað Stefán hana virka mjög
jákvætt, nefnilega að draga
úr hraðaumferð á Skagfirð-
ingabraut. Þá sagði Stefánað
þeir í meirhlutanum gætu
sjálfum sér um kennt að
umrædd hlið íþróttahússin
væri ekki fallegri, þar sem
eftir væri að múrhúða hana
og mála.
Knútur kvað þetta mjög
ódýra lausn á hraðahindrun-
um á Skagfirðingabrautinni,
en ætli tilgangurinn hafi samt
ekki verið að auglýsa knatt-
spyrnuleikina.
mýrarnar, sem sumir kalla
„Þingvallahringinn” en hann
er fjölfarinn trimmurum og
oft hafa þeir kvartað yfir
myrkrinu á fyrrgreindum
kafla, neðan frásjóoguppað
gatnamótum Sauðárkróks-
og Skagfirðingabrautar. í
umræðum um tillöguna í
bæjarstjórn var ákveðið að
færa þetta í tal við forráða-
menn vegagerðarinnar, en
umræddur kafli er ekki inni á
þjbnustusvæði Raíveitu Sauðár-
þjónustusvæði Rafveitu Sauðár-
króks.
Hvammstangi:
Slæmar
gæftir á
skelina
Bjarma frá Hvammstanga
hefur gengið þokkalega við
skelveiðarnar í haust svo
framarlega sem gefið hefur á
sjóinn.
Gæftaleysi hefur hamlað
veiðum og ekki gefið í skelina
nema 2-3 daga í viku.
Reiknað er með að annar
bátur bætist við á skelina
áður en langt um líður. Það er
Siggi Sveins sem verið hefur í
slipp undanfarið.
Rottueyöing á næstunni
vestan Tröllaskaga
Á næstunni fer fram rottueyð-
ing á svæðinu austan Héraðs-
vatna frá Hólahreppi til
Siglufjarðar. Lengi vel voru
nokkur brögð að rottugangi á
þessu svæði, en svo virðistsem
góður árangur hafi náðst í
rottueyðingu á sl. vetri. Hún
fer þannig fram að eiturblandað
fóður er sett við brunna,
frárennslisenda, sorphauga og
útihús þar með talið fjárhús-
kjallara.
Hvert býli í sveitunum er
heimsótt og farið víða í
þéttbýlinu. Hvetur Sveinn
Guðmundsson heilbrigðisfull-
trúi fólk til að taka vel á móti
meindýraeyðum, jafnvel þótt
ekki hafi orðið vart við rottu
á viðkomandi stað í langan
tíma.
Sveinn segir nauðsynlegt
að fylgja eyðingunni vel eftir.
Eitrið virki seint og það þýði
ekki að leggja út fóður aðeins
einu sinni, því sé nauðsynlegt
að vera með seinvirkt eitur.
„Þetta eru býsna glúrnar
skepnur og þær gætu lært á
það ef eitrið vi rkaði það fljótt
að dauð hræ lægju við
fóðurleifar. Ef eitrið virkar
seint þá draga þær síður
slíkar ályktanir”, segir heil-
brigðisfulltrúi.
GÆOAFRAMKOLLUN N
GÆÐAFRAMKÖLLUN
BÓKABtE)
BHXNJARS