Feykir - 30.10.1991, Blaðsíða 3
38/1991 FEYKIR 3
Verðlaunahafar í eldri flokkum knattspyrnufólks. Því miður
mistókst mynd, sem tekin var af þeim yngri.
Uppskeruhátíð knattspyrnufólks:
Guðbjartur, Kristjana
og Indriði valin best
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar
Tindastóls var haldin í Bifröst
fvrsta vetrardag að vanda.
Veittar voru fjöldi viðurkenninga
fvrir árangur og ástundun í öllum
aldursflokkum karla og kvenna.
Knattspvrnumaður Tindastóls var
valinn Guðbjartur Haraldsson og
knattspyrnukona Tindastóls er
Kristjana Jónasdóttir. Indriði
Einarsson leikmaður úr fimnita
aldursflokki varvalinn efnilegasti
leikmaður vngri flokka.
Þeir voru margir bikararnir
sem afhentir voru á uppskeru-
hátíðinni. Flesta hafa gefið þeir
Erlingur Jóhannesson knatt-
spyrnuáhugamaður og múrari á
vörður meistaraflokks. Ætti
ambassador Tindastóls i Belgíu.
Við síðustu uppskeruhátíð fyrir
ári var Ijóst að fjölga mætti
bikurum í kvennaflokknum og
gáfu tveirstjórnarmanna bikara
til kvennaboltans nú, Stefán
Logi Haraldsson og Magnús
Sverrisson. Þá hefur verslunin
Tindastóll gefið bikar til að
heiðra þann aðila sem ár hvert
þykir hafa unnið mikið og
óeigingjarnt starf í þágu knatt-
spyrnunnar í bænum. Að þessu
sinni hlaut þá viðurkenningu,
Adidasbikarinn, Gísli Sigurðs-
son stjórnarmaður og mark-
vörðu meistaraflokks. Ætti
þetta að verða Gísla nokkur
sárabót, þar sem slæm meiðsli
urðu til þess að hann lék
einungis nokkra leiki með
meistaraflokki á liðnu sumri.
Listi yfir nöfn þeirra er hlutu
viðurkenningar á uppskeruhátíð-
inni er eftirfarandi. Fyrst er
talinn efnilegasti leikmaðurinn,
þá sá eða sú sem þótti sýna
mestar framfarir eða stunda
íþrótt sína best og síðast sá eða
sú sem var valinn besti
leikmaðurinn:
7. flokkur: Steinar Mapnús-
son, Viðar Emilsson, Oskar
Sigurðsson. 6. flokkur: Helgi
Margeirsson, Gunnlaugur Erlends-
son, Haukur Skúlason. 5.
flokkur: Ingi Árnason, Auðunn
Kristjánsson, Indriði Einarsson.
4. flokkur: Davíð Rúnarsson,
Guðmundur Otti Einarsson,
Marteinn Jónsson. 3. flokkur:
Daníel Kristjánsson, Ingi Björgvin
Kristjánsson, Ómar Sigmarsson.
3. flokkur kvenna: Rúna Bima
Finnsdóttir, Bryndís Jónasdóttir,
Inga Dóra Magnúsdóttir, 2.
flokkur kvenna: Bima Valgarðs-
dóttir, Sigurlaug Bjarnadóttir,
Jóna Kolbrún Ámadóttir, meistara-
flokkur kvenna: Heba Guðmunds-
dórtir, Rakel Ársælsdóttir, Kristjana
Jónasdóttir. Meistaraflokkur karla:
Sigurjón Sigurðsson, Stefán
Vagn Stefánsson, Guðbjartur
Haraldsson.
Maneinn Jónsson var marka-
kóngur yngri flokka og Kristjana
Jónasdóttir markadrottning og
Guðbrandur Guðbrandsson
markakóngur í meistaraflokk-
um Tindastóls.
Stofnun félagsmiðstöðvar í
undirbúningi á Hvammstanga
Undirbúningur að stofnun
félagsmiðstöðvar fyrir ung-
linga á Hvammstanga er nú
hafinn og stefnt er að því að
hægt verði að opna hana 1.
desember n.k. Hreppurinn
hefur samþykkt að veita kr.
500.000 til verkefnisins nú
fyrir áramót, og vonast er til
að meira fé fáist eftir áramót
til reksturs og tækjakaupa.
Þriggja manna nefnd hefur
verið skipuð og í henni eru
Guðmundur Einarsson, Vil-
hjálmur Pétursson og Guðrún
Helga Bjarnadóttir. Hafa
þau tekið að sér að koma
verkefninu af stað og standa
vaktir til að byrja með.
Að sögn Guðmundar
Einarssonar er allt komið á
fullt við að innrétta. Verður
þarna herbergi til að rabba
og spila, salur til að dansa í
og annar salur til að hlusta á
tónlist, horfa á sjónvarp og
vídeó, spila bobb, borðtennis
og jafnvel billjard þegar frá
líður, en það er ekki í
sjónmáli ennþá. Stefnt er að
því að hafa opið tvö kvöld í
viku til að byrja með og sjá
svo til hvernig áhuginn
verður.
Guðmundur segist ftnna fyrir
miklum áhuga bæjarbúa á
þessu verkefni og greinilegt
að þarna er á ferðinni það
sem fólk hefur lengi séð að
vantaði á stað eins og
Hvammstanga, þó ekki hafi
orðið af framkvæmdum fyrr
en nú. EA.
Dósla sýnir
á Blönduósi
Hjördís Bergsdóttir, Dósla,
opnaði málverkasýningu í
héraðsbókasafni A-Hún. á
Blönduósi um helgina. Á
sýningunni eru 14 verk og
eru öll til sölu. Þetta erfjórða
einkasýning Dóslu en auk
þess hefur hún tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Hjördís er kennari á
Blönduósi og hefur búið þar
á þriðja ár. „Mér finnst mjög
gott að vera hér og segja má
að ég hafi byrjað fyrir alvöru
að mála eftir að ég kom
hingað”, sagði hún í samtali
við blaðamann. „Þaðskerpir
vitundina að koma alveg í
nýtt umhverfi þar sem maður
þekkir engan, hér hef ég gott
næði og get verið ein með
sjálfri mér”.
Verk Dóslu eru fígúratív. í
verkunum er mikið fjallað
um fólk og hún spáir í
mannleg samskipti, t.d. heitir
ein myndin ,
FEYKIR ER EKKI
EINUNGIS FRÉTTABLAÐ
...HELDUR STERKUR
AUGLÝSINGAMIÐILL!
Öll blöð þurfa auglýsingar til að standa undir útgáfukostnaði.
•Með auglýsingu í Feyki gefst þér tækifæri til að
auglýsa vöru og þjónustu á Norðvesturlandi öllu,
þar sem blaðið hefur mikla útbreiðslu.
Feykir fer inn á flest heimili á Sauðárkróki,
stærstu vinnustaðina og velflestir bæjarbúar lesa blaðið.
í stærstu hreppum Skagafjarðar er Feykir keyptur
á nær hverju heimili.
Feykir hefur góða útbreiðslu í Húnaþingi.
Þá eru ótaldir á fjórða hundrað óskrifendur blaðsins í Reykjavík
og víða um land
Útbreiðsla Feykis er styrkur Noðurlands vestra
VERNDUM ATVINNUTÆKIFÆRI - VERNDUM BYGGÐ
VERSLUM í HEIMABYGGÐ