Feykir - 29.01.1992, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Verkalýðsfélag
Austur-Húnvetninga
Vill lögbinda
75 þús. króna
lágmarkslaun
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélags Austur-Hún-
vetninga hefur ítrekað enn og
aftur kröfu um 75 þúsund
króna lágmarkslaun, og beint
þeim tilmælum til félagsmála-
ráðherra að hann beiti sér
fyrir lögbindingu þeirra lág-
markslauna á þessu löggjafar-
þingi, verði ekki gengið til
samningsgerðar áður en langt
um líður.
„Maður er orðinn marg-
þreyttur á þessum seinagangi.
Satt að segja erum við farin
að efast um að fólk innan
okkar vébanda ýti nægjanlega
á eftir hlutunum og hafi
áhuga fyrir að koma þessum
samningum frá”, sagði Valdi-
mar Guðmannsson í Bakka-
koti formaður verkalýðs-
félagsins.
Þá samþykkti VAH að
heimamenn skyldu njóta
þeirra forréttinda sem þeir
eiga lögum samkvæmt á
vinnu við Blöndu næsta
sumar. Valdimar sagði að
þessi samþykkt væri gerð
vegna unglingavinnu sem
starfrækt hefði verið á
Blöndusvæðinu undanfarin
sumur. Þeirri vinnu hefði
verið skipt á milli heima-
manna og Landsvirkjunar.
Vegna fyrirsjáanlegra vand-
ræða með vinnu fyrir skóla-
fólk í sumar og minnkandi
atvinnu í héraði, aðallega
vegna verkloka við Blöndu,
þætti rétt að gera kröfu um
að öll unglingavinnan kæmi í
hlut heimamanna. Að sögn
Valdimars hafa bæði foreldrar
og forráðamenn sveitarfélaga
þrýst á með það.
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Ólöf Árnadóttir, Vilborg Elíasdóttir og Jóhanna Haraldsdóttir með unga Sauökrækinga sem
allir komu I heiminn á síðasta ári.
Metár hjá Króksumm í fjölburafæðingum
Fjölburafæðingar hafa verið
fremur fátíðar hjá Sauð-
krækingum um árin. Sést það
best á því að í upphafi síðasta
árs höfðu ekki fæðst tvíburar í
bænum síðan 1988. En um
þetta leyti fyrir ári byrjaði
einmitt „tvíburafæðingatörn”
á Króknum. Þá fæddust
þrennir tvíburar á 12 dögum
og í september komu síðan
fjórðu tvíburarnir á árinu í
heiminn.
Ekki er vitað um að
fjölburafæðingar hafa verið
jafnmargar í Skagafirði áður,
að minnsta kosti ekki síðustu
áratugina. Fyrsta tvíbura-
afmælið var haldið hátíðlegt
á dögunum. Eins árs afmæli
þeirra Hjartar og Sigþórs, en
þeir voru einmitt fyrstu
„glasabörn” Sauðkrækinga.
Foreldrar þeirra eru Ingi-
björg Sigtryggsdóttir og
Gunnar Steingrímsson.
Þeim Ingibjörgu og Gunnari
fannst tilhlýðilegt að bjóða
hinum þremur tvíburunum í
afmælið líka, og það var
heilmikið um að vera hjá
ungum afmælisgestum í
Dalatúni 3 á mánudaginn
var, 20. janúar.
Næst þeim Hirti og Sigþóri
í aldursröðinni koma Halla
Mjöll og Edda Borg fæddar
29. janúar, dætur Ólafar
Árnadóttur og Stefáns Jóns-
sonar. Þá Stefanía Ósk og
Pála Rún fæddar 1. febrúar,
dætur Jóhönnu Birgisdóttur
og Páls Stefánssonar. Og
loks 29. september fæddust
þeim Ómari Jenssyni og
Vilborgu Elíasdóttur dætur
sem hlutu nöfnin Elísa og
Pálína.
Rekstur Loðskinns á síðasta ári:
Útkoman ekki eins góð og vonast var til
„Útkoman var ekki eins góð
eftir síðasta ár eins og við
vorum að vona. Hins vegar
eru horfurnar fyrir þetta ár
talsvert betri en þær hafa verið
lengi. Ástæðan er sú að gæði
framleiðslu okkar hefur verið
að aukast, varan er betur
unnin og hentar því betur
kaupandanum”, segir Birgir
Bjarnason framkvæmdastjóri
Loðskinns.
Fullnaðaruppgjör fyrir síðasta
ár liggur ekki fyrir ennþá .
Aðsögn Birgfc lítamarkaðirnir
n okkuð vel út núna, en það
em hinir hefðbundnu markaðir
fyrir framleiðitu verksmiðjunnar
á Ítalíu, í Bretlandi, N orður-
löndnum og jafnvel er
Bandaríkjamarkaður að opnast.
Unnið verður úr svipuðu
magni skinna í L oðskinni á
þessu ári og því síðasta.
Framleiðslan verður þó mun
meiri á þessu ári, þar sem á
síðasta ári voru 50% skinn-
anna hálfunnin vegna sérstakra
samninga. í ár verður
hinsvegar mest allt fullunnið .
—KTen?i!l lijDÍ—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519* BlLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
G
jfiKI bilflygrkstgdi
SAUDáDUIMI
SÆMUNDARGOTU - SÍMI 35141