Feykir - 29.01.1992, Blaðsíða 8
Oháö fréttablaö á Noröurlandi vestra
29. janúar 1992, 4. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLYSiniGAMIÐILL!
Sauðárkrókur
Ibúðabyggingar
svipaóar milli ára
Bygging íbúðarhúsnæðis á
Sauðárkróki á síðasta ári var
mjög svipuð að umfangi og
árið á undan. Lítið sem ekkert
var byggt af íbúðarhúsnæði í
einkaeign, og þrátt fyrir fulla
nýtingu á heimild Húsnæðis-
stofnunar ríkisins til byggingar
á félagslegu húsnæði er
eftirspurn slíkra íbúða
mun meiri en framboðið.
I skýrslu byggingafulltrúa
segir að lóðaúthlutanir á
síðasta ári hafiverið 17. Leyfi
voru veitt fyrir 10 íbúðum í
félagslega kerfinu, í fimm
parhúsum. Lóð var úthlutað
fyrir einu einbýlishúsi í
einkaeign. Sex byggingaleyfi
voru veitt fyrir atvinnuhús-
næði, nýbyggingum og við-
byggingum. Sjö bygginga-
leyfi voru gefin til minni
háttar framkvæmda, á bíl-
geymslum, sólstofum o.þ.h.
Ennfremur var úthlutað
fimm hesthúsalóðum við
Flæðigerði.
A árinu var hafin bygging
tíu íbúða í parhúsum og
fimm húsum undir atvinnu-
starfsemi. Þrjú einbýlishús
urðu fokheld á árinu, tíu
parhúsaíbúðir og þrjú iðnaðar-
húsnæði. Rúmmetratala þess
húsnæðis sem byrjað var á
síðasta ár er 24419 á móti
10887 árið á undan. Skýringar-
innar er að leita til Bóknáms-
hússins sem framkvæmdir
hófust við á síðasta ári.
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga f rá kl. 9.15 ■ 16.00 W Landsbanki
Simi 353531 fk íslands LA Banki allra landsmanna
Bifreiðaskoðun:
Skagfirðingar
trassar
Sauðkrækingar og Skagfirðingar
eru norðvestlendinga mestu
trassar að færa bíla sína til
skoðunar. Lögreglan á Sauðár-
króki er búin að klippa
bílnúmer af á þriðja tug
bifreiða Króksara síðan um
áramót.
Sauðárkrókslögreglan segir
ótrúlegt hvað bæjar- og
héraðsbúar sumir trassi að
færa bílana til skoðunar og
hefur verið klippt af bílum
sem átti að skoða snemma á
síðasta ári. Húnvetningareru
sagðir taka Skagfirðingum
fram hvað þessi mál varðar,
en Siglfirðingar standa sig
samt best eftir að hafa fengið
„klippu”karla í heimsókn á
mánaðarfresti. Þar eru örfáir
bílar enn án rétts miða fyrir
síðasta ár.
Arans útsendari
Ekki var hún úr hófi fram
gestrisnin sem mætti Jóni
Baldvin og meðreiðarsveinum
hans, þegar þeir áðu í
Skagafirði sl. fimmtudags-
kvöld og efndu til milliliða-
lauss sambands við bændur
um GATT. Það verður að
segjast eins og er að einstaka
ræðumaður hefði betur setið
kyrr en brygsla ráðherranum
um lygi og þaðan af verra
eins og gert var, enda sá
öðlingurinn Egill Bjarnason
ástæðu til að biðjast velvirðingar
á ummælum einstakra manna.
Strandamaður einn sem
fregnaði af miður góðum
ummælum um ráðherrann
setti saman eftirfarandi vísu.
Lævís þykir lýgi hans
loforð einskis virði.
Útsendari andskotans
áði í Skagafirði.
Gestkomandi
fundarstjóri
Þá voru ræðumenn sumir
ansi óprúttnir við fundar-
stjórann, sinntu ekki tíma-
feykjur
mörkum sem reyndar voru
alltof stutt, ekki nema fimm
mínútur, og sendu að auki til
baka aðvörunarmiðann. Þannig
sagðist Guðbjartur Gunnars-
son ráðunautur Húnvetninga
ekkert hafa með miðann að
gera og talaði síðan í korter.
Sem von var seig í Þröst
Olafsson fundarstjóra þegar
Guðbjarti var ekki þokað úr
ræðustóli. Og það var von að
Þröstur hefði orð á því þegar
ráðunauturinn hvarf úr ræðu-
stóli, að það væri eins og sitja
ótemju berbakt að fá fundar-
menn til að virða tímamörkin.
Gunnari Oddssyni bónda í
Flatatungu tókst hinsvegar
að syndga upp á náðina, er
hann hélt því fram að Þröstur
væri gesta-fundarstjóri og
hefði þess vegna horft í
gegnum fingur sér þó
einstaka maður hefði farið
svolítið fram úr ræðutímanum.
Hinsvegar getur ráðherra að
sumu leyti kennt sérumhvað
fundurinn dróst á langinn.
Sjálfur talaði hann í 80
mínútur til að byrja með og
fast að því eins lengi í lokin.
Haugsugu
græðari
Ýmsum fannst hún ansi
skondin frétt Feykis fyrir
stuttu um viðskipti Sigurðar
Inga bónda á Syðri-Löngu-
mýri annars vegar og Kolbeins
í Bólstaðarhlíð og starfs-
manna vegagerðarinnar hins-
vegar. Svo var einnig um
sveitunga þeirra Sigurðar
Inga og Kolbeins, Þorstein
Guðmundsson bónda á Syðri-
Grund. Með tilliti til hvernig
hann sjálfur notar haug-
suguna, það er til að græða
jörðina og sár þau sem þar
myndast, freistast Þorsteinn
til að líta jákvætt á málið í
eftirfarandi vísu.
Nú brosa þeir blítt gegnum
tárin
þótt barist þeir hafi um árin.
Ef haugsugu er beitt
þá gengur svo greitt
að græða upp óvildarsárin.
Þessir krakkar á leikskólanum Glaðheimum fá mánaðarfrí
næsta sumar.____________________
Leikskólarnir lokaðir í
mánuð næsta sumar
Leikskólunum á Sauðárkróki,
í Glaðheimum og Furukoti,
verður lokað í mánaðartíma í
sumar eins og tvö undanfarin
sumur. Félagsmálaráð sam-
þykkti þetta nýlega að
undangenginni munnlegri skyndi-
könnun þar sem leitað var
eftir viðhorfum foreldra til
lokunar skólanna. Miklar
umræður urðu um lokun
leikskólanna á síðasta bæjar-
stjómarfundi, en tillaga félags-
málaráðs samþykkt með sex
atkvæðum gegn þremur.
Þau voru á móti lokun,
Stefán Logi og Viggó
bæjarfulltrúar framsóknar
og Anna Kristín bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins. Gagn-
rýndu þau að ekki skyldi
tekið tillit til niðurstöðu
könnunar á dagvistun sem
gerð var síðasta vor, og töldu
að þar hefði komið fram
ótvíræður vilji foreldra að
leikskólarnir yrðu opnir allt
sumarið. Það sem hefur m.a.
ráðið lokun leikskólanna yfir
sumarið er að forstöðumenn
þeirra mæla með því að
leikskólabörn fái frí frá
skólanum yfir sumarið.
I skyndikönnuninni voru
foreldrar spurðir hvort þeir
væru hlynntir lokun vegna
sumarleyfa? Foreldrar Glað-
heima-barna sögðu já 41 og
nei 6. Tveir svöruðu ekki.
Foreldrar Furukots-barna
svörðu 49 með jái og 6 með
neii. Ellefu svöruðu ekki.
Lokað verður í Glaðheimum
frá 29. júní til 27. júlí og í
Furukoti frá 20. júlí til 17.
ágúst.
Víðidalur:
Átján vetra
hryssa kastar
í janúar
Gjóska átján vetra hryssa frá
Gröf í Víðdal kom verulega á
óvart þegar hún kastaði 17.
janúar, skjóttu og fallegu
folaldi. Gjóska var búin að
vera fylslaus síðustu þrjú ár og
stóð til að lóga henni.
Mjög óvanalegt er að
hryssur kasti í janúar,
sérstaklega eldri hryssur,
enda hafði Skúli Sigfússon
bóndi í Gröf ekki grænan
grun um að Gjóska væri með
fyli. Varð hann því stórum
undrandi á eftirlitsferð sinni
um hagann 17. janúar sl. og
sá Gjósku nýkastaða.
GÆOAFRAMKOLLUN ^
GÆÐAFRAMKOLLUM
BÓKABÚÐ
BRYISUARS