Feykir - 04.03.1992, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 9/1992
Óháö fréttablaö á Noröurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aðal-
gata 2, Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf
4, 550 Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og
95-36703. Fax: 95-36162. Ritstjóri:
Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Ólafsson A.-Hún., Eggert
Antonsson V.Hún. Auglýsingastjóri:
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftar-
verð 110 krónur hvert tölublað.
Lausasöluverð: 120 krónur. Umbrot:
Feykir. Setning og prentun: Sást sf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.
Sauðárkrókur.
Gatnagerðarframkvæmdir
fyrir 62 milljónir
Talsvert verður um malbikun
gatna á Sauðárkróki næsta
sumar. Þær götur sem
malbikaðar verða eru: Skógar-
gata og Bjarkarstígur í gamla
bænum. I Túnahverfi verður
Túngata malbikuð að Laugar-
túni og sú gata klædd eins
langt og jarðvegsskipti hafa
farið fram. Þá verður lagt yfir
slitlag á Hegrabraut og í
iðnaðarhverfinu verða Borgar-
mýri, Borgarröst, Borgarflöt
og Borgartún malbikaðar.
Til götu- og holræsagerðar
er áætlað að fari 62 milljónir
á þessu ári. Gert er ráð fyrir
að gatnagerðagjöld komi inn
fyrir 36,4 milljónir. Jarð-
vegsskipti þarf að gera í
götunum út í bænum og
leggja ný holræsi þar og í
Túnahverfi. Þá verða holræsi
endurnýjuð í Skagfirðinga-
braut frá Bárustíg að Ránar-
stíg og farið í jarðvegsskipti
við Artorg.
Kantsteinar verða steyptar
við allar þær götur sem
lagðar verða malbiki í sumar,
og gangstéttir steyptar við
Furuhlíð og Grenihlíð í
Hlíðahverfi. Þá verður ríflega
þrem milljónum varið til
frágangs opinna svæða í
bænum á næsta sumri.
Ókeypis smáar
TIL SÖLU!
Skrifborö með skúffum og
fataskápur (krakkahúsgögn,
hvltt og bleikt á litinn).
Upplýsingar I slma 35775.
Jóhanna.
Til sölu gamall en góöur Toyota
Crown árgerð 1974 ýmis skipti
koma til greina. Upplýsingar I
slma 38165.
TIL SÖLU!
Riffill, haglabyssa, örvarbogi,
kajak, fólksbllakerra, loftpressa
200 I. Subaru station 1600 4x4
1981, tölva meö skjá, diskadrifi
og hljómborði. Upplýsingar I
slma 36177.
HEY ÓSKAST!
Vil kaupa ryklaust vel verkaö,
vélbundið hey. Upplýsingar
gefur Guömundur I slma
27154.
IBUÐ OSKAST!
3ja herbergja Ibúð óskast á
leigu frá og með 1. júnl til
a.m.k. 1 árs. Hafið samband
við Birgi I slma 35600.
AÐALFUNDUR!
Ferðafélags Skagfiröinga
verður haldinn I Sveinsbúö
miövikudaginn 11. 3. klukkan
21.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
Myndasýning.
Mekka hestsins
Ekki höfðu nýju fjárhúsin
á Hólum hýst fjárstofn
Bændaskólans marga daga,
þegar sá boðskapur barst yfir
byggðir landsins úr barka
landbúnaðarráðherra, Halldórs
Blöndals, að réttast væri að
gera Hóla að Mekku íslenska
hestsins; koma þar upp
miklum hrossabúgarði og
hætta allri annarri kennslu í
Hólaskóla en þeirri er
viðkemur íslenska hestinum.
Þetta sagði ráðherra við
upphaf Búnaðarþings í gær-
morgun.
Það er svo sem ekkert nýtt
að stjórnvöld breyti skyndi-
lega um stefnu. Ef að
hugmynd ráðherrans fær
hljómgrunn er líklegt að nýju
húsin á Hólum muni ekki
hýsa fé í framtíðinni heldur
verði breytt í hesthús.
Samkvæmt hugmynd ráð-
herrans er Hólabúgarðinum
ætlað að gera Islendingum
kleift að standast þá miklu
samkeppni sem stafar frá
öðrum þjóðum um ræktun
og sölu íslenska hestsins,
sérstaklega Þjóðverjum.
Sæll Grettir
í nýjasta hefti Húnvetn-
ings er skemmtileg grein þar
sem Björn Þ. Jóhannesson
minnist félaga síns Benónýs
Benediktssonar skákmanns.
Björn minnist á að Benóný
hafi verið bráðger og sterkur
umfram aðra jafnaldra, enda
hafi hann ekki látið hlut sinn
fyrir neinum.
„Fornkappar voru honum
hugstæðir, og ærið oft fór
hann með Illugadrápu. Kær
var Benóný sú minning frá
dvölinni á Reykjaskóla í
Hrútafirði, að einu sinni kom
Jónas Jónsson frá Hriflu þar
við og vildi fá sig ferjaðan yfir
fjörðinn. Voru nokkrir skóla-
piltar fengnir til þess og var
Benóný einn þeirra. Að
leiðarlokum kvaddi Jónas
piltana með handabandi og
Benóný meðorðunum: Vertu
sæll, Grettir,”
Rússabaninn
Benóný teíldi á minningar-
móti Guðjóns M. Sigurðs-
sonar 1956. Þangað var
boðið tveim sovéskum stór-
meisturum, þeim Tajmanov
og Ilivitski. Er skemmst frá
því að segja að Benóný gerði
jafntefli við þá báða eftir
sögufrægar skákir, sérstak-
lega við þann síðarnefnda.
Gegn Tajmanov hafði
hann svart, og sjaldan þessu
vant fylgdi hann byrjunar-
fræðunum. Hafði Tajmanov
skrifað bók um þessa byrjun
og rakið í ýmis afbrigði. Þar
kom í taflinu að Benóný lék
leik sem Tajmanov í bókinni
taldi slæman. Sagði Benóný
frá því síðar að Tajmanov
hefði kippst við í hvert sinn
sem Benóný lék eftir þennan
leik.
Skákin við Ilivitski var enn
viðburðaríkari. Benónýhafði
hvítt og fékk því meira ráðið
ferðinni. Nú fékk hann að
njóta sín í frumlegri tafl-
mennsku og hleypti öllu í
uppnám sem hélst til loka
skákarinnar. Mörgum sýndist
staða Benónýs vænlegri lengst
af. Honum tókst þó ekki að
vinna, en stórmeistarinn
mátti strjúka af sér svitann
eins og tekið var til orða í
erlendu skákriti.
Við þetta varð Benóný
landskunnur og í kunningja
hópi kallaður Rússabani.
Engum Rússa banaði hann
þó, en góðum árangri náði
hann við þá.
GOÐUR BILL!
Til sölu Galant GLS 2000
árgerö 1985.
Nýupptekin vél og kúpling.
Lltur mjög vel út. Upplýsingar I
síma 95-35514.
TIL SÖLU!
Harmonikur til sölu.
Upplýsingar I slma 38031.
Til sölu Isskápur með stórum
frysti. Upplýsingar I síma
35049.
Tveir þrumugóöir bílar I
toppstandi. Lada Sport árgerö
1987 fimm glra, ekinn 45
þúsund og Toyota Corolla
1300XL árgerö 1988 ekinn 24
þúsund. Uppl. I slma 36686
eöa 35141 (Ingi).
15. hefti
Húnvetnings
komið út
Fimmtándi árgangur Hún-
vetnings, ársrits Húnvetninga-
félagsins í Reykjavík er
nýkominn út. Ritið er fjöl-
breytt að vanda og ágætlega
gert úr garði ritnefndar, en
hana skipa Bjöm Þ. Jóhannes-
son, Jón Torfason og Ragnar
Agústsson.
Meðal efnis Húnvetnings
má nefna ljóð eftir Dýrmund
Olafsson, Norður heiðar.
Jón Torfason svipast um á
Illugastöðum á Vatnsnesi.
Gerður Magnúsdóttir skrifar
frásöguþátt „Æsku minnar
gestur”. Steinbjörn Jónsson
segir frá því þegar hann lenti
í villu á Vatnsnesfjalli.
Þorbergur Jóhannesson greinir
frá veiðiferð á Arnarvatns-
heiði og Jónas Guðjónsson
frá vegavinnu á Holtavörðu-
heiði fyrir rúmri hálfri öld.
Björn Þ. Jóhannesson
minnist skákkappans kunna
Benónýs Benediktsson í
grein sem heitir: Vertu sæll
Grettir. Ragnar Ágústsson
skrifar hugleiðar um orgel-
kaup í Melstaðakirkju árið
1872. Auðunn Bragi Sveins-
son segir frá jólum í Texas
1988 og Díómedes Davíðs-
son frá fuglalífi á Vatnsnesi.
Að auki eru nokkur ljóðmæli
og styttri frásöguþættir í
þessu 15. hefti Húnvetnings.
Það er rúmlega 150 blaðsíður,
prentað í prentsmiðju Hafna-
fjarðar.
Vinalína RK
Á fimmta tug sjálfboðaliða
hafa verið þjálfaðir til að
svara í síma Vinalínunnar, en
símaþjónustan hófst 16.
janúar síðast liðinn og er
opin á hverju kvöldi vikunnar
frá kl. 20.00-23.00. Símareru
91-616464 og 996464 sem er
grænt númer. Hugmyndinað
símaþjónustunni kom upp
hjá ungmennahreyfingu
Rauða kross íslands í byrjun
árs 1991 og hefur undirbún-
ingur staðið síðan, en fólk á
öllum aldri hefur slegist í
hópinn.
Allir sjálfboðaliðarnir hafa
sótt helgarnámskeið til undir-
búnings auk þess sem
hópurinn hefur fengið til sín
gesti frá ýmsum samtökum.
Þrátt fyrir að sjálfboðaliðar
hafi búið sig sérstaklega
undir að svara í símann,
viljum við leggja á það
áherslu að við erum ekki
sérfræðingar heldur venjulegt
fólk á öllum aldri úr
mismunandi þjóðfélagshópum.
Það sem við eigum sameigin-
legt m.a. eraðviðviljumhafa
mannúðina, sem er ein af
.grundvallarreglum Rauða kross-
ins að leiðarljósi og erum
tilbúin að miðla af okkar
reynslu og tíma til þeirra sem
telja sig geta haft gagn af.
Síminn er hugsaður fyrir
fullorðna sem vilja létta á
hjarta sínu, leita ráða eða
bara tala við einhvern sem er
tilbúinn að hlusta.
Fyrirtæki og einstaklingar
hafa styrkt Vinalínuna með
vinnuframlagi og gjöfum og
hefur okkur verið mjög vel
tekið af þeim sem við höfum
leitað til, en kynning á
starfseminni mun verða aðal
útgjaldaliðurinn. Rauði kross
íslands kostar námskeið og
handleiðslu fyrir okkur sjálf-
boðaliðana.