Feykir - 04.03.1992, Blaðsíða 3
9/1992 FEYKIK .1
Hólar í Hjaltadal:
Nýju Ijárhúsin tekin í notkun
Á undanförnum mánuðum
hefur staðið yfir bygging
nýrra og glæsilegra fjárhúsa á
Hólum. Húsin voru tekin í
notkun á þriðjudag í síðustu
viku þegar kindur voru færðar
í þau í fyrsta sinn. Nýju
fjárhúsin verða vígð formlega
seinna í þessum mánuði. Þau
leysa af hólmi gömul fjárhús
sem byggð voru um 1920.
Nýju fjárhúsin eru björt og
rúmgóð, enda stílað upp á að
þau nýtist vel til verkkennslu
og rannsóknarstarfa. Húsin
eru rétt um 600 fermetrar að
stærð og var grunnur Jjeirra
tekinn haustið 1990. Aætlað
er að byggingunni Ijúki á
þessu ári. Trésmiðjan Borg á
Sauðárkróki hefur annast
framkvæmdir. Arkitekt er
Magnús Ólafsson á Akranesi,
en eftirlit og ráðgjöf hefur
verið í höndum Braga Þórs
Haraldssonar á Sauðárkróki.
Hér leiða þeir forustukindina í húsin: Gunnar Rögnvaldsson
ráðsmaður og Sigurður Guðmundsson fjármaður, sem gjarnan
kallar sig „ríkisféhirði”.
Eins og sjá má eru nýju ijárhúsin hið vandaðasta og glæsilegasta mannvirki.
Fjölbreytt dagskrá a
Opnum dögum í fjölbraut
Starfsvika, svokallaðir Opnir
dagar, heQast í Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki í dag og lýkur
með árshátíð skólans á
laugardagskvöld. Dagskrá vik-
unnar er mjög fjölbreytt,
hvort sem litið er til fræðslu,
menningar eða atþreyingar.
Dagblaðið Molduxi kemur út
alla dagana, skólaútvarpið
útvarpar allan daginn og
fjölmargir gestir koma til
bæjarins að miðla visku og
skemmtun til nemenda og
bæjarbúa.
Að vísu hamlar húsnæðis-
leysi því að fyrirlestrar
vikunnar séu opnir öllum
bæjarbúum. En leiksýning
skólans „Menn, menn, menn”
og blús- og ljóðatónleikar á
fimmtudagskvöld eru öllum
opnir. Þar skemmta tónlistar-
menn frá Húsavík, Blúsvík-
ingar, og ljóðskáldin Gyrðir
Elíasson, Óskar Ami Óskars-
son, Geirlaugur Magnússon
og Kjartan Hallur Grétars-
son lesa úr verkum sínum.
Fyrirlestrar verða haldnir
um eyðni og aðra kynsjúk-
dóma, sem Einar Jónsson
formaður Eyðnisamtakanna
og Halldóra Bjarnadóttir sjá
um. Hannes Hilmarsson
félagsráðgjafi og skólastjóri
á Laugum fræðir unglinga
um vímuefni og heldur
námskeið í slökun. Einar
Thoroddsen vinsmakkari, flytur
fyrirlestur um uppruna vína
og meðferð þeirra, t.d. með
mat. Janus Guðlaugsson
segir frá atvinnumennsku í
fótbolta og fjallar um
íþróttakennslu í framhalds-
skólum. Þá kennir BragiÞór
Haraldsson nemendum skólans
á áttavita. Trúarbrögð Votta
Jehóva verða kynnt og
starfsemi Nordjobbs og
AFS.
Spurningakeppni verður
milli liðs kennara og sveitar
FNVS sem komin er í átta
liða úrslit spurningakeppni
framhaldsskóla. Leitað verður
sterkasta manns skólans í
aflraunakeppni og gesta-
kokkar koma í heimsókn í
mötuneyti skólans. íbúar
sambýlisins reyna 'fyrir sér í
matargerðarlistinni á mið-
vikudagskvöld og á fimmtu-
dagskvöldið verður „skag-
firska sveiflan” í eldhúsinu.
Þá sér hljómsveit Geirmundar
um matargerðina. Opnir
dagar verða síðan brenndir
út við varðeld á Borgarsandi
á laugardagskvöld, en að
honum loknum hefst árshátíð
skólans.
BOCCIA - ÆFINGAR
ÍÞRÓTTAHÚS BARNASKÓLANS
VIÐ SÆMUNDARGÖTU
Aldraðir laugardaga
frá 1<1. 10 - 11 árdegis
Fatlaðir Sunnudag ld. 14.00
UNDIRBÚNINGSNEFNDIN
SKACFIRÐINGAR!
Höfum tekið í notkun ný og
fullkomin mótorstiHitœki
fyrir bifreiðar. Komið og
reynið þjónustuna.
Látið fagmenn annast verkið.
Vörubílstjórar:
Látið okkur sjá um erfiðið
við að umfelga og gera við
hjólbarðana, fullkomin tæki
líka fyrir slöngulausa
hjólbarða
KS BÍLAVERKSTÆÐI