Feykir - 04.03.1992, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 9/1992
Vika STORAFREKA hjá
Tindastóli í úrvalsdeiidinni
„Körfuboltaflklar” á Króknum
eru í sæluvímu eftir stórafrek
Tindastólsliðsins og frábært
gengi í síðustu viku, sem þýðir
að nú er Tindastóll kominn í
annað sætið og á meiri
möguleika á úrsiitasæti en
KR. Pressan er nú öll á
vesturbæingunum. Gamanið
byrjaði á þriðjudagskvöldið
þegar KR-ingar komu í
heimsókn í Síkið. Tindastóll
vann þann leik 71:67 í jöfnum
og mjög spennandi leik. Og
ekki var spennan minni i
Ijónagryfjunni í Njarðvík á
föstudagskvöldið. Þar ætlaði
allt af göflunum að ganga
þegar Valur Ingimundarsson
tryggði Tindastóli sigur úr
vítaskotum sex sekúntumfyrir
leikslok.
Fjölmargir Króksarar fylgdu
sínu liði suður, meðal annars
var fengin 20 manna leiguvél
frá Akureyri. Og fólk varð
ekki fyrir vonbrigðum, því
leikurinn var afar skemmti-
legur og spennandi allan
tímann. Menn höfðu á orði
að þeir ættu ábyggilega aldrei
eftir að upplifa aðra eins
spennu og undir lok leiksins.
Eftir að Valur hafði skorað
úr vítunum þýðingarmiklu,
brutu Tindastólsmenn á Isak
áður en hann komst með
boltann fram yfir miðju. Þá
svitnuðu áhorfendur heldur
betur, því þeir vissu ekki að
enn átti Tindastóll villu til
góða. Til bónusvítis kom því
ekki og þær þrjár sekúntur
sem eftir voru dugðu Njarð-
víkingum ekki.
Allt byrjunarlið Tindastóls
lék vel í þessum leik. Það
sama var einnig uppi á
teningnum í leiknum við KR,
helst að Haraldur Leifsson
ætti erfitt uppdráttar framan
af leiknum, en hann stóð sig
vel á mikilvægum augna-
blikum og komst vel frá
leiknum.
Nú er næstu helgar beðið
með spenningi. Lið Snæfells
kemur þá í heimsókn á
Krókinn. Engan veginn er
hægt að bóka sigur gegn
Hólmurum, en við eðlilegar
kringumstæður á Tindastóll
að sigra. A sama tíma fær KR
Njarðvíkinga í heimsókn á
Seltjarnarnes. Menn trúa því
ekki að Njarðvíkingar tapi
tveim leikjum í röð, og
spurning hvort slíkt hafi
einhvern tíma gerst á seinni
árum. Þó að úrslitin ráðist
ekki endanlega um nasstu
helgi, eru miklar líkur á að
möguleikar annars hvors KR
eða Tindastóls aukist til
mikilla muna.
Yngri flokkarnir halda sínu striki
Körfuboltalið Tindastóls í
unglingaflokki kvenna, og 7.
og 10. flokki pilta unnu sér um
helgina rétt til keppni í
úrslitum íslandsmótsins. Tinda-
stóll og íBK eru nú langefst og
jöfn í unglingaflokkum, þannig
að um hreinan úrslitleik
þessara liða verður að ræða.
Stúlkurnar léku í Keflavík
um síðustu helgi. Tindastóll
sigraði Hauka 69:42 og KR
44:30, en tapaði 22:41 fyrir
Keflavík. Stigahæstar stúlkn-
anna urðu Birna Valgarðs-
dóttir með 41 stig, Inga Dóra
Magnúsdóttir með 31 stig og
Kristín Elfa Magnúsdóttir
með 27 stig.
Sjöundi flokkur lék á
Króknum. Tindastóll sigraði
UMFN 43:29, Hauka 48:28,
UMFG 40:36, en tapaði fyrir
ÍBK 34:37 og KR 40:56.
UMFT hafnaði í 3. sæti.
Tíundi flokkur keppti í
Stykkishólmi. Tindastóll sigraði
Val 63:50, Snæfell 47:42,
Hauka 47:38, en tapaði fyrir
UMFN 47:59 og UMFG
35:61. UMFT hafnaði í 3.
sæti.
Prófanir á þriðju aflvél
Blönduvirhjunar ganga vel
Prófanir á þriðju og síðustu
aflvél Blönduvirkjunar, sem
hófust um miðja síðustu viku,
ganga vel. Gert er ráð fyrir að
prófunum verði lokið undir
mánaðamót og þá verði allar
þjár aflvélar Blönduvirkjunar
komnar í rekstur.
Að sögn Guðmundar
Hagalín stöðvarstjóra Blöndu-
virkjunar eru framkvæmdir í
stöðvarhúsi nú á lokastigi.
Prófanir og gagnsetningar
véla virkjunarinnar • hafa
gengið mjög vel og alveg
samkvæmt áætlunum. Fyrsta
vélin var tekin í notkun
formlega 5. október og
önnur aflvél var ræst til
raforkuframleiðslu 26. janúar
sl.
Fjölmenni á jeppasýningu
hjá ÓsdeKKi
Um 500 manns sóttu bílasýn-
ingu sem forráðamenn Os-
dekks á Blönduósi stóðu fyrir
á laugardag. Þar voru sýnd
nokkur torfærutröll, m.a.
jeppinn sem fór fyrstur alla
bíla upp á Hvannadalshnjúk
fyrir nokkrum mánuðum.
Sýnd voru torfærutröll og
ýmiss aukabúnaður frá Bíla-
búð Benna. Þarna var m.a.
Ford Econoline sem búið var að
setja á 44 tommu dekk og
breyta mjög mikið. Þessi bíll
hefur vakið athygli erlendra
bílaáhugamanna og mun
verða fjallað um hann í
erlendu bílablaði á næstunni.
Þá voru á sýningunni sýnd
myndbönd af mikið breyttum
jeppum.
Auk Húnvetninga komu
Strandamenn og Skagfirð-
ingar á sýninguna og jafnvel
menn lengra að. Þótti
forstöðumönnum sýningar-
innar mikið til þessarar
miklu aðsóknar koma.
MÓ.
Jóhann SKúlason hesta-
íhróttamaður SKagafjarðar
Jóhann Skúlason á Sauðár-
króki hefur verið útnefndur
íþróttamaður ársins hjá Hesta-
íþróttadeikl Skagafjarðar. Út-
nefningin átti sér stað á
aðalfundi deildarinnar nýlega
og var Jóhanni afhentur bikar
sem Hrossaræktarsamband
Skagafjarðar hefur gefið og
mun fylgja nafnbótinni hesta-
íþróttamaður Skagaíjarðar.
Að sögn Guðmundar
Sveinssonar fyrrverandi for-
manns HÍDS er keppt um
nafnbótina samkvæmt sér-
stakri stigatöflu sem sam-
þykkt var fyrir ári. Þar er
tekið tillit tilárangursáfimm
mótum, það er ískappreiða
og deildarmóta, sem bæði
eru innanfélagsmót, Héraðs-
móts Skagfirðinga sem árlega
er haldið um verslunar-
mannahelgi, Bikarkeppni
Norðurlands og íslandsmóts
í hestaíþróttum. Jóhann
Skúlason náði mjög góðum
árangri á þessum mótum,
vann t.d. til margra verð-
launa á Bikarkeppni Norður-
lands og komst í verðlauna-
sæti á íslandsmóti.
Hestaíþróttadeild Skaga-
fjarðar nær yfir félagssvæði
allra hestamannafélaganna í
héraðinu: Léttfeta, Stíganda
og Svaða. Félagar HÍDS eru
milli 80 og 90. Á síðasta
aðalfundi tók Bjarni Þóris-
son við formennsku af
Guðmundi Sveinssyni.
Menningardagskrá Menors
Tónlist
Föstudagur 6. mars
- Höfðaborg Hofsósi kl. 21.00
Söngskemmtun:
Rökkurkórinn, stjórnandi Sveinn
Árnason.
Píanó, Rögnvaldur Valgarðs-
son.
Kvennakór Siglufjarðar, stjórn-
andi Elías Þorvaldsson. Laugar-
dagur 7. mars
- Akureyrarkirkja kl. 12.00
Kirkjuvika 1.-8. mars
Hádegistónleikar-ritningalestrar
Bjöm Steinar Sólbergsson flytur
orgelverk eftir Duruflé og Alain.
Léttur hádegisverður á eftir.
- Félagsheimilið Blönduósi kl.
14.30
Tónleikahátíð á Blönduósi:
Sameiginlegir tónleikar grunn-
skóla og tónlistarskóla úr
Vestur- og Austur-Húnavatns-
sýslu, Skagafjarðarsýslu, Siglu-
firði og alls staðar þar á milli.
200 þátttakendur koma saman
og syngja og leika á fjölda
hljóðfæra og sameinast svo í
söng í tilefni af Ári söngsins.
Gestir: Skólalúðrasveit Seltjamar-
ness, stjórnandi Kári Einarsson.
- Miðgarður í Skagafirði kl.
21.00
Heimiskvöld, söngskemmtun,
einsöngur, kórsöngur, grín og
kaffiveitingar.
Karlakórinn Heimir, stjórnandi
Stefán Gíslason.
Hljóðfæraleikaramir Tom Higger-
son, Jaqueline Simm, Eileen
Sllococks og Jennifer Spears
leika.
Sunnudagur 8. mars
- Akureyrarkirkja kl. 14.00
Kirkjuvika 1.-8. mars
Hátíðarmessa.
Prédikun sr. Bolli Gústavsson
vígslubiskup.
Kór Akureyrarkirkju
Stjórnandi og organisti Björn
Steinar Sólbergsson.
Hólmfnður Benediktsdóttir, sópran
og Þuríður Baldursdóttir, alt
syngja dúett.
Fimmtudagur 12. mars
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30
Tónlistarfélag Akureyrar.
Píanótríó.
Laufey Sigurðardóttir, fiðla,
Richard Talkowsky, selló.
Verk eftir Mozart, Brahms,
Haydn.
Föstudagur 13. mars
- Fjölbrautaskóli Norðurlands
Vestra á Sauðárkróki, síðdegis
Háskólakórinn á sínu 20.
starfsári, kynning í tali og
tónum.
Stjórnandi Rerenc Utassy.
- Félagsheimilið Blönduósi kl.
20.30
Háskólakórinn, stjórnandi Fer-
enc Utassy.
íslensk og erlend tuttugustu
aldar tónlist.
- Miðgarður í Skagafirði kl.
'21.00
Aðalkonsert Rökkurkórsins, stjóm-
andi Sveinn Ámason.
Einsöngur Jóhann Már Jóhanns-
so, tenór.
Píanó Rögnvaldur Valbergsson
Laugardagur 14. mars
- Félagsheimilið Hvammstanga,
kl. 20.30
Háskólakórinn, stjórnandi Fer-
enc Utassy.
íslensk og erlend tuttugustu
aldar tónlist.
Miðvikudagur 18. mars
I sal Tónlistarskólans á
Akureyri kl. 20.00
Blásaradeildartónleikar.
Leiksýningar
- Fellsborg á Skagaströnd
Kardimommubærinn eftir Thor-
björn Egner, leikstjóri Árni
Blandon.
Leikhópur Fjölbrautaskóla Norður-
lands-Vestra.
Opnir dagar 4.-7. mars.
Þrír einþáttungar „Menn, menn,
menn”, eftir Melkorku Thelmu
Olafsdóttur, Sindra Freyson og
Bergljótu Arnalds.
Leikstjóri Andrés Sigurvinsson.
Miðvikudagur 4. mars, frum-
sýning kl. 21.00
2. sýning fimmtudag kl. 15.00
3. sýning föstudag kl. 15.00