Feykir


Feykir - 14.10.1992, Blaðsíða 5

Feykir - 14.10.1992, Blaðsíða 5
35/1992 FEYKIR 5 „Aflar fólki innsýn og hvetur til að takast á við nýviðfangsefni" Segir Jóhanna Sveinsdóttir um starfsemi Kennarasambands Noröurlands vestra „Fyrirlestrar og fræðsluerindi eru mjög nauðsynlegur Iiður á haustþingum kennarasambands- ins. Breytingar á kennsluað- ferðum og ýmsu öðru sem tengjast kennarastarfinu eru örar. Ég býst við að kennarar sé einna duglegastir allra stétta að afla sér viðbótar- þekkingar, en jafnframt að í fáum stéttum sé jafn mikil þörf á endurmenntun”, segir Jóhanna Sveinsdóttir fráfar- andi formaður Kennarasam- bands Norðurlands vestra, sem hélt haustþing sitt í Varmahlíð fyrir helgina. „Fræðsluerindin hvetja fólk til að mæta og afla því innsýn til að takast á við ný viðfangsefni, enda er mæt- ingin ætíð góð. Hér eru staddir flestir starfandi kennarar á svæðinu”, bætti Jóhanna við, en hún gaf sér tíma til að ræða við blaðamann Feykis meðan átta vinnuhópar þingsins störfuðu á fimmtudeginum. Jóhanna hefur verið for- maður KSNV síðustu tvö árin, en það er kjörtími hverrar stjórnar. Hún var spurð að því hver væru helstu viðfangsefni kennarasambands- ins. „Aðalstarfið felst í undir- búningi þessara haustþinga, jafnframt fræðslustarfmu, sem tengist sérstaklega haust- þinginu. Síðan eigum við tvo fulltrúa í fulltrúaráði Kennara- sambands Islands og einn fulltrúa í stjóm sambandsins, ásamt fulltrúa í stjórn lífeyrissjóðsins. KSNV er að mínu mati nauðsynlegur vettvangur fyrir kennara á svæðinu til að hittast vor og haust og bera saman bækur sínar, auk þess sem félagið er nauðsynlegur tengiliður við Kennarasamband íslands, og seta fulltrúa okkar þar í stjórn gerir okkur kleift að vera í nánari tengslum”. ~ JUn fpl j Frá haustþingi KSNV í Varmahlíð. Ýmislegt sem brennur á kennurum Nú hefur lengi borið talsvert á óánægju kennara varðandi launamál, ber mikið á því á þingum sem þessum? „Launamál eru ekki mikið til umræðu hér, en að sjálfsögðu eru þau og verða sjálfsagt alltaf einn helsti umræðupunktur á aðalfundum Kennarasambands íslands. Annars er ýmislegt annað en kjarmál sem brenna á kennurum í dag. Þar má nefna þær hugmyndir sem uppi eru um að færa rekstur skóla til sveitarfélaga, og einnig hvort endurmeta eigi vinnutíma kennara. Um þetta hvorutveggja eru mjög skiptar skoðanir í okkar hópi”. Efni fyrirlestranna hér á þinginu beinast m.a. að barninu, ummönnun barna og hegðunarmálum, eru hegðunarvandamál meiri í skólum nú en áður? „Eg til mig ekki dómbæra á það, þar sem ég hef eingöngu kennt við sveita- skóla og þar hafa ekki teljandi hegðunarvandamál komið upp. Og þó svo að hegðun nemenda sé ekkert verri nú en áður, teljum við tímabært að ræða þessi mál. Skilningurinn og þekkingin aukist Hegðunarvandamál verða alltaf til staðar. Ég hugsa að í dag sé fólk betur meðvitað um rætur þess vanda sem viðkomandi nemandi á við að stríða. Skilningurinn og þekkingin á þessu sviði hefur aukist. Efnið er athygli- og áhugavert”, sagði Jóhanna að endingu. 111 meðferð á börnum, var meðal fyrirlestra á þinginu. Fyrirlesari var Ólöf Siguiðar- dóttir sérkennari í Fellaskóla. Jóhanna Karlsdóttir fjallaði um hagnýtingu ljóða, með tilliti til áherslu í tjáningu og hreyfingu. Stefán Bergmann fræddi kennara um nýjar áherslur og hugmyndir í náttúrufræðikennslu. Hreinn Pálsson fjallaði um skóla- starf út frá heimspeki, Jón Eyfjöið kynnti íslenska mennta- netið í tölvusamskiptum. Anton Bjarnason fjallaði um hreyfingu og þjálfun barna. Þá voru einnig á dagskrá erindi um samskipti sér^ kennara og ráðgjafaþjónustu, aga og hegðunarvandamál, ritun íslensku, samfélags- fræði og fleiri greina, lestrar- kennslu - sérkennslu í almennum grunnskóla, heimilis- fræði, tungumálakennslu og tónlistarkennslu í almennu skólastarfi. Hólar í Hjaltadal: Ósýniulega félagið frá 18. öld endurvakið Endurvakið hefur verið á Hólum, Ósýnilega félagið, Societas invisibilis. Hér er um menningarfélag að ræða, sem stofnað var á 18. öld af þeim Gísla Magnússyni Hólabiskupi og Hálfdáni Einarssyni rektor Hólaskóla. Félagið lagðist af er Hólastóll var lagður niður um aldamótin 1800. Á sínum tíma var félagið aðallega stofnað til bókaút- gáfu, og var helsta stórvirkið útgáfa Konungs-Skuggsjár, sem reyndar kom út á vegum félagsins í Danmörku. Stofnfundur nýja félagsins var haldinn 30. september sl. Var fundarsókn góð, um 60 manns, og hafa 30 skráð sig sem félaga. Vilhjálmur Ama- son dósent við Háskóla íslands hélt fyrirlestur sem hann nefndi „Er hægt að hagnýta siðfræðina?”. Sið- færði verður einmitt aðalvið- fangsefni menningarfélags- ins fram að áramótum, en það stefnir að fyrirlestrum, bókakynningum, eða ein- hverjum slíkum me-nningar- viðburðum á mánaðarfresti. I nóvember mun Þorvarður Árnason líffræðingur og kvikmyndagerðarmaður flytja fyrirlestur um siðfræði nátt- úrunnar. Aðajhvatamenn að éndur- reisn Ósýnilega félagsins eru þeir dr. Skúli Skúlason, sr. Bplli Gústavsson Hólabiskup, Eyjólfur Isólfsson og Þórar- inn Sólmúndarson. Nýr pitsustaður við höfnina Ungur og bjartsýnn Sauð- björnsson, hefur snúið heim og krækingur, Guðmundur Jón- sett á fót pitsustað við Guðmundur lætur lofta vel um pitsubotn. höfnina, þar sem áður var Hressingarhúsið. Guðmundur hefur ailað sér kunnáttu í pitsugerð í Keflavík og við hlið hans í rekstrinum stendur unnustan, Eydís Ármanns- dóttir. Pollinn, heitir staðurinn og þar er boðið upp á allskonar pitsur, allt að 16 tommu stórum. Mikil að- sókn var á fimmtudags- kvöldið þegar Pollinn var opnaður og er Guðmundur ánægður með móttökurnar sem staðurinn fær í upphafi. „Ég átti ekki von á því að þetta gengið svona vel til að byrja með, og það er greinilegt að pitsur njóta orðið vinsælda hérna”, sagði Guðmundur á Pollanum. Staðurinn verður opinn frá 11,30 og fram á kvöld virka daga og eitthvað lengur um helgar.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.