Feykir - 14.10.1992, Blaðsíða 8
14. október 1992,35. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka dagafrá kl. 9.15-16.00 ! 4E4C4 M Landsbanki
Sími 35353 á Wi Islands Banki allra landsmanna
Sú var tíðin að loka átti Neðra sláturhúsinu á þeim forsendum að húsnæði og aðstaða til
slátrunar uppfyllti ekki kröfur til hollustuhátta. Það verður hinsvegar ekki séð annað en
þeir Slátursamlagsmenn standi framar öðrum að ýmsu leyti, til að mynda hafa þeir í
sláturtíðinni í haust sett allan gor og úrgang frá slátruninni í gám, svo ekki þarf lengur að
aka því í opnum vagni um Eyrina á leið til urðunar.
Bæjarstjórn Sauöárkróks:
Hefur ekki enn fundað með þingmönnum
kvöldfundir með þreyttum þingmönnum afþakkaðir
Bæjarstjómarmenn á Sauðár-
króki voru óhressir með þann
fundartíma sem þingmenn
kjördæmisins buðu upp á í
yfirreið sinni um kjördæmið í
lok síðasta mánaðar. Fundar-
tíminn var klukkan 10 á
þriðjudagskvöldi á seinni degi
fundarferðar þingmanna. Var
þessi tími aiþakkaður, og þar
sem þingmenn sáu sér ekki
Tilraunir til eldis heitsjávar-
físka virðast vekja áhuga
Sauðkrækinga. Stofnfundur
undirbúningsfélags var haldinn
sl. fimmtudagskvöld og skráðu
forsvarsmenn fyrirtækja og
einstaklinga í bænum sig fyrir
öllu því hlutafé sem að var
stefnt í félagið, á þriðju
milljón króna sem kemur frá
um 30 aðilum.
Að sögn Guðmundar
Arnar Ingólfssonar aðal-
frumkvöðuls stofnunar
félagsins, veiður fyrsta skrefið
að gera samninga við
eigendur þeirra eigna á
fært að funda með bæjarstjórn
Sauðárkróks á sunnudeginum
eða miðvikudeginum, hafa
þessir aðilar ekki hist ennþá.
Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri hefur skrifað fyrsta
þingmanni kjördæmisins, Páli
Péturssyni, og óskað eftir
fundi sem fyrst.
Það er svo sem ekki nýtt að
bæjarstjómarmenn á Sauðár-
svæðinu sem félagið hefur
hug á að nýta. Þá munu í
byrjun næsta mánaðar koma
í heimsókn vísindamenn frá
frönsku hafrannsóknarstofn-
unni og líta á aðstæður til
eldisins hér. Þá býst Guðmundur
við að fljótlega verði hafíst
handa við markaðskönnun.
I stjórn undirbúnings-
félags um heitsjávareldi voru
kosnir: Gísli Halldórsson
formaður, meðstjórnendur
Páll Pálsson og Arni Guð-
mundsson og varamenn
Magnús Erlingsson og Friðrik
J. Jónsson.
króki séu óánægðir með
fundartímann sem þingmenn
ætla þeim. Fundarferðin
hefst ætíð á vestursvæðinu og
endar síðan á austursvæðinu
seinni daginn. Sauðárkrókur
er þar síðastur í röðinni, og
finnst bæjarstjórnarmönnum
þingmenn sýna málefnum
stærsta þéttbýlisstaðarins litla
virðingu. Þingmenn þreytast
eðlilega á þessari miklu
yfirreið. Þegar fundurinn á
Króknum hefst venjulega um
kvöldmatarleytið, er ferða-
og fundaþreytan farin að
segja það mikið til sín, að
einstakir þingmenn dotta
fram á borðið, að sögn eins
bæjarstjórnarmanns, en tals-
verðar umræður urðu í tilefni
þessa á bæjarstjórnarfundi í
síðustu viku.
Bæjarstjóri og forseti bæjar-
stjórnar fóru mildilegum
orðum um málefnið og sögðu
nauðsynlegt að halda góðum
samskiptum við þingmenn.
Sagðist forseti bæjarstjórnar
ekki efast um að fundinn yrði
hentugur fundartími á næst-
unni, enda auðvelt að komast
til og frá bænum þegar flogið
væri morgna og kvöld
nokkra daga vikunnar.
Mikill áhugi fyrir
eldi heitsjávarfiska
Skagfirðingur í fyrsta sinn
til heimahafnar á föstudag
Gerði góöa sölu í Þýskalandi
Skagfirðingur SK 4, sem áður
var Vigri RE, seldi í
Bremenhaven á mánudags-
morgun fyrir 128,18 króna
meðalverð, sem er það besta
sem fengist hefur á markaðn-
um síðan gamli Skagfirðingur
seldi þar 30. maí á 152 krónur.
Það verð var aftur það besta
síðan þetta skip, sem þá hét
Vigri, seldi í upphafi árs. Það
má því segja að Skagfirðingi
gangi vel í fyrstu veiðiferð hjá
nýjum útgerðaraðila, en skipið
mun koma í fyrsta skipti til
hafnar á Sauðárkróki á
föstudaginn.
Að vísu var Skagfirðingur
einungis með um hálffermi
vegna lélegra veiða í Rósa-
garðinum nú undanfarið. Af
þeim sökum var unnt að
vanda frágang aflans til
fullnustu, en að mati Skag-
firðingsmanna er góður frá-
gangur afla togara félagsins
stór ástæða þess hversu gott
meðalverð fæst fyrir aflann.
Það verð sem Skagfírðingur
fékk nú var35 krónum hærra
en Gullver frá Seyðisfirði
fékk í síðustu viku og 50
krónum betra en Hegranesið
fékk fyrir tveim vikum,
þannig að heppnin eltir
áhöfn Skagftrðings. Skipið
seldi 138,5 tonn fyrir 17,8
milljónir.
í tilefni af komu Skagfirð-
ings til Sauðárkróks á
föstudag, veiður skipið bæjar-
búum til sýnis milli klukkan
5-7 síðdegis, og starfsfólki
Fiskiðjunnar og Skagfirðings
verður boðið upp á veitingar í
tilefni dagsins.
Verðlagsráð skikkar Stein-
ullarverksmiðjuna til að
selja Þýsk-íslenska steinull
„Við höfum hingað til haft
meira frelsi með sölu stein-
ullar í smásölu en verðlags-
ráði virðist kunnugt um. Með
samþvkkt sinni virðist okkur
takmörk sett með það í
framtíðinni, en ég á von á því
að við förum að selja Þýsk-
íslenska steinull, annaðhvort
beint eða í gegnum dreifingar-
aðila á Reykjavíkursvæðinu,
sem er Krókháls, en það gerist
ekki nema með samkomulagi
allra aðila”, segir Einar
Einarsson framkvæmdastjóri
Steinullarverksmiðjunnar.
Sum kunnugt er kærði
Þýsk-íslenska Steinullarverk-
smiðjuna til verðlagsráðs
fyrir skemmstu, sökum þess
að verksmiðjan hafði synjað
fyrirtækinu um kaup á
vörun íi í smásölu. ,,A sínum
tíma vildi Þýsk-íslenska
gerast dreifingaraðili við hlið
Krókháls, en við töldum
nægjanlegt að hafa einn
dreifingaraðila á Reykjavíkur-
svæðinu og vildum að
byggingarvörusalar á höfuð-
borgarsvæðinu keyptu vöruna í
gegnum umboðsaðilann”, sagði
Einar Einarsson.
I úrskurði Verðlagsráðs
segir, að í ljósi markaðslegrar
stöðu, einokunaraðstöðu,
Steinullarverksmiðjunnar og
að lítil samkeppni ríki í
smásölu steinullar á Reykja-
víkursvæðinu, telji ráðið að
synjun á sölu steinullar til
Þýsk-íslenska feli í sér
skaðlega takmörkun á sam-
keppni sbr. 20 grein laga nr.
56 frá 1978.
Þess má geta að tvö
smásölufyrirtæki hafa 90%
markaðarins á Reykjavíkur-
svæðinu. Næsta skref í
málinu er það að Verðlagsráð
hefur mælst til þess að
Verðlagsstofnun leiti sætta
með málsaðilum og finni
leiðir til að binda enda á
málið.
GÆOAFRAMKOLLUN
GÆDAFRAMKÖLLUN
BÓKABIÍÐ
BKmiARS