Feykir - 28.10.1992, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Ef stóriðjuáformin standast er
Líklegt að virKjun jökulsáa
verði hafin um aldamótin
Nemendur 10. bekkjar Gagnfræðaskóla Sauðárkróks þreyttu í síðustu viku maraþonhjólreiðar
til ágóða fyrir skólaferðalagið sem fara á til Vestmannaeyja næsta vor. Hjóluðu krakkarnir vítt
og breitt um Evrópu á rúmum sólarhring. Fyrst var ætlunin að hjóla til Parísar en ferðin sóttist
svo vel að ákveðið var að hjóla áleiðis heim, og var staðnæmst á Málmhaugum í Svíþjóð. Þá voru
3000 kílómetrar að baki. Aheitum var safnað meðal fyrirtækja í bænum og söfnuðust 300 þúsund,
svo að krakkarnir uppskáru ríkulega laun erfiðis síns, sem var mikið.
íþróttahúsið á Laugarbakka fullbúið
Ef stóriðjuáform stjórnvalda
standast eru töluverðarlíkurá
því að virkjun Jökulsánna í
Skagafirði verði hafin um
aldamót. Þessi virkjun hefur
verið á teikniborðum í
Orkustofnun í mörg ár, og
eftir nýjustu rannsóknir á
svæðinu er Ijóst að unnt er að
reisa þarna mun stærri og
hagkvæmari virkjun en áður
var talið. Jarðgangnagerð
undir gljúfrinu gerir mögulegt
að reisa 1400 gígavattastunda
virkjun í stað 700 áður. Þessi
virkjun hefur þann kost fram
yfir marga aðra möguleika áð
rask á yfirborði náttúru er
sáralítið þar sem mannvirkin
yrðu falin inni í gljúfrinu.
Haukur Tómasson verk-
fræðingur hjá Orkustofnun
segir að þrátt fyrir að þessi
virkjun sé 10-15% dýrari en
Fljótsdalsvirkjun sé um mjög
álitlegan virkjunarkost að
ræða, en þessar virkjanir
yrðu af svipaðri stærðar-
gráðu. Jarðgangnagerðin í
tengingu Jökulánna og fyrir
aðfall í stöðvarhús er 39,6 km
að lengd í samanburði við 36
kílómetra löng göng á
Fljótsdal, ogeinnig verðurað
telja aðstæður við Jökulsár-
gljúfur talsvert erfiðari.
Haukur segir að fallhæð í
virkjuninni verði um 550
metrar. Raunar verður 'um
tvær virkjanir að ræða. Fall
frá Austur-Bug við safnlónið
úr Stafnsvötunum, sem eru í
700 metra hæð, og í aflstöð
sem verður staðsett í fjöllun-
um rétt framan Merkigils.
Affallið þaðan verður síðan
nýtt í annarri stöð niður við
Villinganes, sem er í 150
metra hæð. Þá er innrennsli
frá Nýjabæjarfjalli meira en
áður var vitað. Aðspurður
sagðist Haukur álíta að
beitilönd væru lítil uppi við
Stafnsvötn vegna hæðar
landsins. Ekki væri meiningin
að hrófla við náttúruvætti við
Orravatnsrústir.
,,Rannsóknir hjá okkur á
þessu virkjunarsvæði eru enn
á frumstigi, en ef eitthvað
gerist með orkusöluna verður
sjálfsagt farið á fullt með
rannsóknirnar, hvað svæðið
leyfir með tilliti til jarðfræði
og annarra þátta”, sagði
Haukur.
Landsvirkjun hefur nokkra
aðra virkjunarkosti uppi í
erminni. Þar er Efri-Þjórsá
framar í framkvæmdaröðinni,
en verkhönnun er lokið við
nokkrar virkjanir auk þeirrar á
Fljótsdal. Má þar nefna
Búðarháls í Þjórsá, Sultar-
tangavirkjun, Vatnsfell við
Þórisvötn og Búrfell II.
Þessa dagana er verið að taka
í notkun við Laugarbakka-
skóla nýtt og glæsilegt
íþróttahús og verður það vígt
með viðhöfn á sunnudaginn
kemur. Húsið kemur til með
að leysa brýna þörf á svæðinu,
bæði með íþróttakennslu
skólanna og íþróttaiðkun
keppnisfólks og almennings.
Húsið er fullfrágengið að j
innan og búið öllum tækjum. |
Leikvöllurinn er 26x15 metrar :
að stærð og löglegur til |
keppni í körfuknattleik. Að '
sögn Jóhanns Albertssonar
skólastjóra er útlit fyrir að
húsið verði vel nýtt
Byrjað var á byggingunni!
haustið 1990 þegar steypturj
var kjallari að tengibyggingu.
Arið eftir var húsið steyptj
upp og gert fokhelt og í ár
unnið við frágang að innan.
Um áramót verður smíða-j
stofa tekin í notkun og þá
verður eftir að innrétta
áfanga sem í eru fjórar,
kennslustofur, auk minni;
stofu og kennarastofu. .j
Vígslúathöfnin á sunnu-.
dag hefst kl. 16. Er von fjölda
gesta, þar á meðal mennta-i
málaráðherra. Að hefðbundnum j
vígsluatriðum loknum munui
skólanemar keppa í íþróttum
og að því loknu munu
nemendur bjóða gestum til
kaffidrykkju.
Ibúða húsabyggingar einstaklinga á Sauðárfcrúkí:
Ekki verið líflegra Ul flölda ára
,,Það hefur ekki verið svona
líflegt í íbúðahúsabyggingum
hjá einstaklingum í mörg ár.
Fyrirspurnir um lóðir eru
talsverðar og ef þessi skriður á
lóðaúthlutunum helst, kæmi
mér ekki á óvart að allar 13
lóðirnar við BreJvkutún yrðu
farnar næsta vor”, segir
Guðmundur Ragnarsson bygg-
ingarfulltrúi á Sauðárkróki,
en í sumar og haust hefur verið
byrjað á átta íbúðum utan
félagslega íbúðakerfisins.
Byrjaðar eru framkvæmdir
við byggingu þriggja einbýlis-
húsa á vegum einstaklinga,
og einnig hefur Trésmiðjan
As hafið byggingar fimm
íbúða við Grenihlíð, eins
raðhúss og fjórbýlishúss.
Ibúðir þessar verða seldar á
frjálsum markaði í ýmsu
byggingarástandi, og eru
fyrirspurnir talsverðar, en
framkvæmdir eru nýhafnar.
Sauðárkróksbær hefur gert
fjórar lóðir byggingarhæfar
við Brekkutún sem er neðsta
gatan í svokölluðu Laufblaði
er kemur sunnan Túngötu í
Túnahverfi. Tveim lóðum
hefur verið úthlutað þar, og
var seinni úthlutunin með
fyrirvara um að bærinn gerði
aðrar lóðir við götuna ekki
byggingarhæfar fyrr en að
vori.
,,Ef lánshlutfall til þeirra
sem byggja í fyrsta skipti
verður hækkað eins og mér
skilst að áform séu um, þá á
ég allt eins von á því að
einstaklingar byggi talsvert á
næstu ámm”, segir Guðmundur
byggingarfulltrúi.
—ICTeHjill lipl—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519 • BlLASlMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
ÆÍI
bílaverkstæði %>
simi.
95-35141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
%