Feykir


Feykir - 28.10.1992, Blaðsíða 4

Feykir - 28.10.1992, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 371992 Hallbjörn Hjartarson ætlar nú galvaskur í vetrarbyrjun að hefja útvarpssendingar frá Skagaströnd. „Byrja af enn meiri krafli..." segir Hallbjörn Hjarlarson sem er að byrja með kántrýútvarpið bessa dagana „Það var auðsjáanlegt að margir minna gesta fögnuðu því mjög að Kántrýbær var opinn að nýju, og ég er mjög ánægður yfir þeim viðtökum sem staðurinn fékk í sumar. I haust hefur verið opið hjá mér um helgar fram að þessu. Ég hef verið að bíða eftir vínveitingaleyfi, er búinn að fá synjun einu sinni og það ræðst af því hvort þetta fer í gegn að ég hafi opið í vetur. En við byrjum af enn meiri krafti aftur næsta vor”, sagði Hallbjöm Hjartarson á Skaga- strönd. Það varð aftur á móti ekkert úr þeim áformum Hallbjarnar að byrja útvarps- rekstur í sumar. En það er hinsvegar alveg komið að því að þessi langþráði draumur hans rætist. „Það eru öll tæki komin í hendurnar á mér nema sendirinn. Sá útbúnaður er í skoðun hjá fjarskiptaeftirlit- inu í Reykjavík. Þeir eru búnir að hafa þetta hjá sér í þrjár vikur og ég er orðinn svolítið langeygður, en þeir eru búnir að lofa því núna að þetta verði forgangsverkefni hjá þeim, svo ég á von á sendinum á næstu dögumog að útsendingar geti hafist núna um mánaðamótin”. Svo þú ætlar bara að fara í loftið núna í vetrarbyrjun? „Já elskan mín góða það skiptir ekki neinu máli með það. Ég fer út í útvarpsrekstur- inn eingöngu vegna míns tónlistaráhuga, þetta undir- strikar minn kántrýáhuga og það sem ég er og hef verið að gera í íslensku kántrýlífi. Það eru engin gróðasjónarmið þarna á ferðinni, þótt ég yrði feginn öllum þeim auglýs- ingum sem stöðinni bærust. Svo er ég náttúrlega að hugsa um mína viðskiptavini að sumrinu, að strax og þeir séu komnir inn á húnvetnska grund geti þeir svissað yfir á kántrýútvarpið, ferðast um héraðið undir kántrýáhrifum og komið svo í Kántrýbæ og fengið sér hamborgara”, sagði Hallbjörn. Kántrý- útvarpið kemur til með að heyrast um allt Húnaþing og vestur á Strandir. Fyrsta gróðurhús landsins á Króknunt „Ekki fyrir alls löngu mátti heyra og sjá í fjölmiðlum fregnir af því að Sauðkræk- ingar hefðu eignast sína „fyrstu” gróðrarstöð. Þessar ánægjulegu fregnir urðu til þess að rifja upp fyrir mér greinarkorn sem ég ritaði í tímarit suður í Reykjavík fyrir nokkrum árum, þess efnis að Sauðkrækingar hefðu orðið fyrstir til að reisa gróðurhús á Islandi, eða réttara sagt danskur maður búsettur á Sauðárkróki. Þessu til árétt- ingar er vitnað í heimildir þar að lútandi”, segir Steinn Kárason garðyrkjufræðingur og skrúðgarðyrkjumeistari frá Sauðárkróki í bréfi til blaðsins. Steinn var svo vinsamlegur að senda ljósrit af greininni sem birtist í tímaritinu Hús & Garður 1. tbl. 1987. Fróð- leiksfúsum lesendum til glöggvunar birtist greinin í heild hér á eftir: Efnafólk í Norður Evrópu hóf ræktun undirgleri á 17du öld til að geta notið aldinna suðrænnar sælu. Appelsínur, fíkjur og annar gróður af suðlægum slóðum var rækt- aður í stömpum og kerjum, sem stóðu úti yfir sumar- tímann, en voru síðan fiutt í upphituð hús yfir veturinn. Dropavökvun hefur snemma verði þekkt, því á myndum (sem eru koparstungur) úr hollenskri garðyrkjubók frá 1670 má sjá bómullarþráð '—Íjaileií— Carl Knudsen danski kaupmaðurinn sem byggði gróðurhús á Sauðárkróki árið 1896, það fyrsta á landinu. Til vinstri við Bjarnabæ má síðan sjá elsta tré á Sauðárkróki að talið er, reyniviður frá 1934. liggja í skál með vatni yfir í ræktunarílát til vökvunar. Fyrsta gróðurhús á Islandi var byggt á Sauðárkróki árið 1896 og var það hitað upp með hrossataði yfir sumar- tímann. Sá sem húsið byggði var danskur kaupmaður Johan Carl Schjering Knud- sen, en í ritinu Saga Sauðárkróks, sem Kristmundur Bjarnason tók saman segir LAUGARDAGINN 31. OKT. OPNUM VIÐ VERSLUN með föndurvöru • hannyrðir • listmuni og heimilisiðnað í kjallara Villa Nova að Aðalgötu 23, og verður opið frá kl. 10 -16. Opnunartími framvegis: Alla virka daga kl. 13 -18 • Laugard kl. 11 -14. Verið Velicomin Hólmfríðuv ojj Þuríðuv Galleví VTLLA NOVA Aðalpötu 23, sími: 36430 frá því að Carl Knudsen kaupmaður hafi fyrst komið hingað til lands árið 1884, selt hér enska vöru, en tekið sauði fyrir. Knudsen var umsvifa- maður í verslun á Sauðár- króki, þar hafði hann vörugeymslur og seldi m.a. byggingavörur. Vínverslun hans var nafnfræg og var á boðstólum mikið úrval vín- tegunda og þótti Knudsen- brennivínið bera af. Á Sauðárkróki var Knud- sen frumkvöðull í garðyrkju og stuðlaði að aukinni garðrækt, enda hefur hann á sínum tíma veriðeinnfremsti garðyrkjumaður landsins. í gróðurhúsi sínu ræktaði Knudsen skrautblóm og matjurtir sem ekki þrifust utandyra. Auk þess kom hann sér upp trjágarði og ræktaði þar meðal annars rifsber, blóm, kartöflur og rófur. Trjágarð þennan girti Knudsen með ærnum kostn- aði og fyrirhöfn, garðurinn varð og mikil bæjarprýði. Eins og góðum garðyrkju- manni sæmir hafði hann í gaiðinum áburðargiyíju, þ.e.æs. safnhaug og lét grafa brunn til að eiga greiðan aðgang að vatni til vökvunar. Ekki kunnu Sauðkrækingar að meta brautryðjendastarf kaup- mannsins og höfðu pörupiltar að leik sínum að vinna spellvirki á verkum Knudsens, svo hann varð að krefjast rannsóknar. Garður Knudsens, eða Gróðrarstöðin eins og garður- inn var síðan kallaður, var á svæði sem nú afmarkast af Aðalgötu að austan, upp í Nafarætur að vestan, og að sunnan frá gamla Góð- templarahúsinu, Gúttó, noiður að Bjarnabæ sem nú er Skógargata 7. Sunnan undir Bjarnabæ stendur nú elsta tréð á þessu svæði, reyniviður sem plantað var 1934, en hin gamla gróska frá tíð Knudsens er farin veg allrar veraldar og enginn upprunalegur gróður lengur til staðar. S.K.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.