Feykir


Feykir - 04.11.1992, Blaðsíða 1

Feykir - 04.11.1992, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI „Beittir pólitískum mispyrmingum“ Segir Óskar Húnfjörð oddviti D-listans á Blönduósi Meirihlutinn líklega sprunginn eftir aö H-listinn fékk K-listann til stuönings í Kaupfélagsmálinu Sauðárkrókskirkja er 100 ára á þessu ári. Hátíð vegna aldarafmælis kirkjunnar á næsta leyti Líklegt má tclja að nieiri- hlutasanistarfi D-listans og H-listans á Blönduósi sé lokið, eftir að H-listamenn fengu K-listann til liðs við sig til að ná fram hlutaljár- kaupum bæjarins í b-stofnsjóð Kaupfélags Húnvetninga. Fyrir bæjarstjórnarfund í gær lá fyrir, að tillaga bæjarfulltrúa H-listans og K-listans yrði samþvkkt, um kaup bæjarins á hlutabréfum fyrir 12 milljónir. „Það er einkennilegt að ákveða að kaupa meira hlutafé en óskað var eftir. Kaupfélagsmenn óskuðu eftir 8-10 milljónum og það er því greinilegt að H-listinn hefur keypt stuðning K-listans fyrir fjórar milljónir úr bæjarsjóði”, sagði Oskar Húnfjörð oddviti D-listans. ósi hcfur tckið á móti um 2000 tonnum til vinnslu á árinu og er það um fjórðungi meira en árs hráefnisöflun fvrirtækisins er í meðalári. Gert er ráð fyrir að Særún taki á móti 200-300 tonnum til viðhótar það sem eftir er ársins. Gífurleg vinnsla var í Særúnu í sumar, mun meiri en nokkru sinni áður. Til að koma fleiri starfsmönnum í vinnsluna var tekið upp vaktafyrirkomulag í verk- smiðjunni yfir þrjá sumar- „Við höfurn verið beittir pólitískum misþyrmingum í þessu máli, því það var ekki einu sinni reynt að ná samkomulagi við okkur. Það er Ijóst að hér hefur orðið all verulegur trúnaðarbresturog með því að sernja við minnihlutann er H-listinn búinn að slíta samstarfi við okkur. Það er slæntt því samstarfið í heild hefur verið þokkalegt og meirihlutinn verið ágætlega samstíga. Við erum síður en svo mótfallnir því að styðja við kaupfélagið í þrengingunt þess ogskynjum mikilvægi öflugrar starfsemi þess fyrir héraðið. Við vildum gjarnan vera sam- stíga öðrum sveitarfélögum í héraðinu í sameiginlegu átaki til styrktar starfsemi samvinnufélaganna hér. Við mánuði. Unnirvoru lótímar á sólarhring og einnig á laugardögunt og sunnudög- um. Rækjuveiði var mjög góð í sumar og bátar sem lögðu upp hjá Særúnu rneð fleira mótr. Sem kunnugt er gerir fyrirtæki út Nökkva og Gissur hvíta. Sjávarborgin var tekin á leigu í suntar og einnig lögðu upp hjá Særúnu Asborg, Dagfari, Ingintundur garnli og Sæfari. Starfs- mannafjöldi Særúnar er svipaður og áður, urn 25 manns. vildum hinsvegar ekki fara þessa leið, heldur veita félaginu greiðslufrest á skuldum þess við bæjarsjóð með víkjandi láni. Hinsvegar er með þessari afgreiðslu verið að stefna bæjarsjóði í beina samkeppni gegn samkeppnis- aðilum kaupfélagsins á svæð- inu”, sagði Óskar Húnfjörð, en hann er jafnframt for- maður bæjarráðs. Hann sagðist ekki ætla að sitja í því sæti áfram verði vilji til myndunar nýs meirihluta- samstarfs í bænum. Pétur Arnar Pétursson oddviti H-listans og forseti bæjarstjórnar vildi lítið tjá sig um málið og sagði að það kæmi í Ijós með viðbrögðum D-listamanna hvort um áframhaldandi meirihlutasam- starf yrði. „Hérer um ósköp venjuleg hlutabréfakaup að ræða, og okkur varekki stætt á öðru en vera samstíga öðrunt sveitarfélögum í sýsl- unni í þessu máli. Hlutfalls- lega taka þau meiri þátt í þessu en við”, sagði Pétur, sem telur að með þátttöku sveitarfélaganna allra sé um varanlega lausn að ræða fyrir Kaupfélag Húnvetninga, en uppsafnað tap félagsins nemur a.m.k. 80 milljónum króna. Stjórn KH hefur fengið heimild tilaðbjóðaút hlutafé allt að 150 milljónum í b- stofnsjóð félagsins. Sölufélag Húnvetninga ætlarað ábyrgjast 90 milljónir þess fjár. Einstaklingum og fyrirtækjum verður einnig boðið hlutafé til kaups, en nokkur hluti heimildarinnar verður ekki boðinn út að þessu sinni. Aldarafmæli Sauðárkrókskirkju verður haldið hátíðlegt sunnu- daginn 22. nóvember nk. með hátíðarmessu og dagskrá í kirkjunni. Afmælishátíðin hefst með messu klukkan 13,30. Að henni lokinni verður gestum boðið til kaffisamsætis í Bifröst og kl. 17 hefst síðan hátíðarsamkoma í kirkjunni, þar sem meðal annars verður farið eitt hundrað ár aftur í tímann í leiknum þætti um upphaf bæjar og kirkju á Króknuni. Jón Ormar Ormsson hefur skrifað handrit og er hann jafnframt leikstjóri verksins. Æfingar hófust í fyrrakvöld og er reiknað með að um 20 leikarar taki þátt í sýningunni. Þá mun kirkjukórinn að sjálfsögðu syngja á hátíðar- samkomunni og tleira verður á dagskrá sem kemur í Ijós síðar. Meðal gesta verða biskup Islands og kirkju- málaráðherra, prestar pró- fastsdæmisins og fyrrverandi sóknarprestar á Sauðárkróki. I tilefni afmælis kirkunnar kemur út Saga Sauðárkróks- kirkju skráð af Kristmundi Bjarnasyni frá Sjávarborg. Þá voru haldnir tónleikar í Sauðárkrókskirkju á dögun- um í tilefni afmælisins. Heppnuðust þeir ákallega vel og voru vel sóttir. Þar komu fram söngvararnir Friðbjörn G. Jónsson og Björn Björnsson, og hljóð- færaleikararnir Jónas Þórir Þórisson, Jónas Dagbjarts- son, Þorvaldur Steingríms- son, Einar Sigurðsson og Herbert H. Agústsson. HCTen?i»! fcfl— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BlLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 bílaverkstæði ' rn ■ m Sími: 95-35141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 ÍP Bílaviögeröir • Hjólbaröaverkstæöi RÉTTINGAR • SPRAUTUN Metvinnsla hjá Særúnu á Blönduósi Rækjuvinnslan Særún á Blöndu-

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.