Feykir - 18.11.1992, Side 3
40/1992 FEYKIR 3
AF GÚTUNNI
Sveitarfélaganefndin kynnir tillögur sínar
Sauðburðurí
nóvember
Fyrir skömmu fæddust
lömb á bænum Krossanesi á
Vatnsnesi í V.-Hún. Þetta
kom í ljós þegar veriö var aö
smala saman fé á bænum.
Ærin sem hér um ræöir lét í
apríl í vor. Var tilviljun aö
hún var sett á í haust, en þaö
þótti ekki vænlegt meö tilliti
til aldurs ærinnnar. Aö sögn
hjónanna Agnar og Benedikts
í Krossanesi er fremur fátítt aö
kindur beri á þessum tíma, en
skammt er síðan ær bar á bæn-
um Bakka í Vatnsdal. EA.
Hlynshúsið undir eldi?
Húsnæöi á sjávarkambin-
um milli Sæmundargötu og
Strandgötu hefur um tíma
ekki þótt auðseljanlegt, eink-
um sökum þröngra lóöa og
takmarkaðra möguleika til
nýtingar. Hús á þessum stað
eru í dag aðeins talin nýtast
sem iönaöar- eða skrifstofuhús-
næði. Menn ætluðu því aö lítill
áhugi yrði fyrir gamla verk-
stæöishúsi Hlyns úr þrotabúi
byggingarfélagsins. Einhverjir
munusamthafa sýnt húsinu
áhuga. Meðal annars mun
aðstandendum eldis heitsjávar-
fiska lítast stórvcl á húsnæðið.
Þaö gæti því farið svo að
Barrar yröu syndandi í kerjum
viö Sæmundargötuna áöur en
langt um líöur.
Nýr slökkviliðsstjóri
Nýlega var gengiö frá
ráóningu nýs slökkviliösstjóra
á Sauðárkróki. Af 12 um-
sækjendum um stööuna varö
Oskar Stefán Óskarsson rúnt-
lega þrítugur Suðurnesja-
maður fyrir valinu. Óskar hefur
starfað um 10 ára skeið hjá
slökkviliöinu á Keflavíkur-
flugvelli. Hann mun taka viö
af Guöbrandi Guðbrandssyni
sem brátt lætur af störfum
fyrir aldurs sakir. Þess má
geta aö nýi slökkviliðsstjórinn
á ættir sínar aö rekja í Arnar-
staöi í Sléttuhlíö og er bróöir
Atla Más byggingameistara á
Króknum.
Hólanesbréfin til sölu?
Stjórn Hólaness á Skaga-
strönd hefur rætt þann mögu-
leika aö selja bréf félagsins í
Skagstrendingi hf, en þau eru
aö nafnvirði rúmlega 15
milljónir og nema 9% hluta-
fjár Skagstrendings. Hrepps-
nefndarmenn á Skagaströnd
hafa lýst áhyggjunt sínum ef
svo stór hluti í útgerðinni
hverfi úr eign heimamanna,
og hafa óskað eftir aö Höfóa-
hreppi veröi boðin bréfin verði
þau seld.
Sveitarfélaganefndin, sem
undirbýr samciningu sveit-
arfélaga, hélt fundi með
sveitarstjórnarmönnum á
Norðurlandi vestra um
helgina þar sem nefndin
kynnti tillögur sínar.
Fundurinn með Húnvetn-
ingum var á Blönduósi á
föstudagskvöldið og með
Skagfirðingum og Siglflrð-
ingum á Sauðárkróki á
laugardag. Sigfús Jónsson
formaður nefndarinnar var
ánægður með fundina og
viðbrögð sveitarstjórnar-
manna gagnvart tillögun-
um, sem hann sagði jákvæð,
menn væru greinilega til-
búnir að skoða málin opn-
um huga.
Sigfús sagöi að sérstaklega
virtust Skagfiróingar og Sigl-
firðingar taka tillögunum vel.
Þar hefði enginn talað á móti
þeim. A fundinum á Blöndu-
ósi heföu hinsvegar heyrst
gagnrýnisraddir á tillögurnar.
Upphaflega voru hug-
myndir sveitarfélaganefndar-
innar byggðar á fjórum val-
kostum, cn stjórn Santbands
íslenskra sveitarfélaga hefur
óskað eftir því aö stcfnt skuli
aö því að sameina heil héruö,
þannig að sveitarfélag hafi
ekki undir 1000 íbúurn, ncnia
í undantekningar tilfellum.
Þannig er stefnt aö því aö
Skagafjörður verði eitt sveit-
arfélag, Siglufjöróur eitt, og
Sveitarstjórnarmenn vestan Vatnsskarðs funda með sveitarfélaganefndinni í Safnahúsinu
á Sauðárkróki sl. laugardag.
1993 eða á fyrri hluta árs
Húnavatnssýslur sitt hvort
sveitarfélagiö.
Sveitarfélaganefndin legg-
ur til að félagsmálaráöherra
leggi fram á Alþingi frumvarp
til breytinga á sveitarstjórnar-
lögum í ársbyrjun 1993.
Jafnframt setji ráðherra með
sérstakri reglugerð ítarleg
ákvæöi um stækkun og sam-
einingu sveitarfélaga. Síðari
hluta árs fari fram skoðana-
kannanir og kosningar meðal
íbúanna þannig aö útfærsla á
framtíðarskipan landsins í
sveitarfélög liggi fyrir í árslok
1994. Þar sem sameining
hefur verið samþykkt skal
koma henni í framkvæmd
fyrir 1. janúar 1998.
Héraðsmót í körfubolta
veröur haldiö í íþróttahúsinu á
Sauöárkróki 28. og 29. nóv. nk.
Keppni hefst kl. 10 laugardagsmorgun.
Þátttökurétt eiga öll aðildafélög UMSS. Skráningu
skal skila á skrifstofu UMSS, sími 35460 eða í
síma 36141 fyrir mánudaginn 23. nóvember.
Boltaráö UMSS
SAMVINNUBOKIN
/
• Nafnvextir 6,25% • Arsávöxtun 6,35%
• Raunávöxtun Samvinnubókar árið 1991 var 7,64%
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA