Feykir - 18.11.1992, Qupperneq 8
Oháö fréttablað á Noröurlandi vestra
18. nóvember 1992, 40. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLYSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00 Cím! ocoeo M Landsbanki
wimi v5v5v i Wi íslands ■-B Banki allra landsmanna
Sauðárkrókskirkja:
Afmælishátíð í kirkj-
unni á sunnudaginn
Húsfyllir var á stórmóti skagfirskra kóra í Miðgarði sl. laugardagskvöld, undirtektir
gesta miklar og þurfti söngfólkið margoft að endurtaka lögin. Undir lok söng-
skemmtunarinnar sungu allir kórarnir fjórir sameiginlega Skín við sólu Skagafjörður.
Myndin sýnir hluta sameiginlega kórsins er taldi um 200 manns.
Á sunnudaginn kemur, 22.
nóvember, verður minnst
100 ára afmælis Sauðár-
krókskirkju. Hátíðarmessa
verður í kirkjunni kl. 13.30,
þar sem biskup Islands
herra Olafur Skúlason,
prédikar og fyrir altari
þjónar sóknarpresturinn sr.
Hjálmar Jónsson prófastur,
séra Gísli Gunnarsson og
sr. BoIIi Gústafsson vígslu-
biskup. í messulok flytur
Þorsteinn Pálsson kirkju-
málaráðherra ávarp.
Að lokinni messu verður
boðið til kaffisamsætis í
Bifröst, þar sem Jón Karlsson
formaður sóknarnefndar flyt-
ur ávarp og rými verður fyrir
ávörp gesta. Klukkan 17 hefst
síðan hátíðarsamkoma í kirkj-
unni, þar sem frumsýnt verð-
ur leikverk eftir Jón Ormar
Ormsson, sem nánar er vikið
að í opnu blaðsins í dag.
Miklar endurbætur hafa átt
sér stað á Sauðárkrókskirkju
síðustu árin og má segja að
guðshúsið sé í besta ásig-
komulagi. Undanfarnar vikur
hefur verið unnið að lag-
færingum á lóð kirkjunnar og
er reiknað með að þeim verði
lokið fyrir vígsludaginn.
Káraborg vígir bækistöð sína
Ný björgunarstöð slysa-
varnardeildar og björg-
unarsveitarinnar Kára-
borgar að Höfðabraut 30 á
Hvammstanga var vígð sl.
laugardag. Með þessum
merka áfanga breytist
aðstaða öll til hins betra, en
nokkuð er liðið síðan húsið
var tekið í notkun ófullgert.
Nú á 50 ára afmæli slysa-
varnardeildarinnar er lokið
öllum frágangi við bygging-
una, sem unnin var af
félögunum í sjálfboðavinnu.
Nýja björgunarstöðin hlaut
nafnið Húnabúð.
Vígsluathöfnin hófst kl. 14
og var margt gesta mætt á
staðinn í tilefni dagsins og til
kaffidrykkju sem boðið var til
í félagsheimilinu eftir athöfn-
ina. Guðmundur Jóhannesson
formaður Káraborgar bauð
gesti velkomna og rakti bygg-
ingarsögu hússins. Byrjað var
á byggingunni árið 1987.
Sr. Kristján Björnsson
sóknarprestur flutti blessun-
arorð og sunginn var sálmur.
Guðmundur formaður Kára-
borgar afhenti forseta SVFÍ,
Einari Sigurjónssyni, lykla að
húsinu. Einar færði Káraborg
farsíma að gjöf frá SVFI,
Ingólfur Guðnason spari-
sjóðsstjóri afhenti 50 þúsund
króna peningagjöf frá Spari-
sjóði Vestur-Húnvetninga.
Bjarni Þór Einarsson sveitar-
stjóri færði sömuleiðis 50
þúsund frá hreppnum, Gísli
Jónsson sömu upphæð frá
Lionsklúbbnum Bjarma. Enn-
fremur færðu Guðmundur
formaður björgunarsveitar-
innar og kona hans sveitinni
peningjagjöf, sem ætluð er til
bátakaupa.
Ymsar fleiri gjafir og
heillaóskir bárust og segja má
að ríkt hafi sannkölluð
hátíðarstemmning.
EA.
Utvarp Kántrýbær
40 mílur á haf út
Útvarp Kántrýbær FM
100,7 hóf útsendingar sl.
laugardag. Þegar klukkan
sló fimm síðdegis hóf
útvarpsstjórinn Hallbjörn
Hjartarson upp raust sína
og fyrsta lagið leið út í loftið
Ráðning nýs hafnarvarðar á Skagaströnd:
Kostar hreppinn 1,8 milljónir að
láta gamla hafnarvörðinn hætta
Nýr hafnarvörður tók til
starfa á Skagaströnd í
byrjun mánaðarins: Vil-
hjálmur Skaftason heitir
hann og nær ráðningin til
árs í fyrstu. Birgir Árna-
son, sem verið hefur hafn-
arvörður síðustu 20 árin,
var látinn hætta störfum
gegn vilja sínum. Birgir
ætlaði sér að gegna starfinu
þrjú ár til viðbótar, eða til
sjötugs. Vegna starfsloka
Birgis þarf Höfðahreppur
að greiða honum 50 þúsund
krónur í mánaðarlaun til
starfsloka hans eftir 3 ár.
Minni hluti hreppsncfndar,
sjálfstæðismennirnir Elín H.
Njálsdóttir og Adolf J.
Berndsen, mótmælti ákvörð-
un hreppsnefndar að segja
Birgi upp störfum. Omann-
úðlegt væri að leyfa honum
ekki að starfa þau þrjú ár í
viðbót sem honum væri leyfi-
legt, og að auki fæli þessi
gjörningur í sér aukinn kostn-
að fyrir hreppinn.
Birgir er síður en svo sátt-
ur við að þurfa aó láta að
störfum og vill rekja ástæður
uppsagnar sinnar allt aftur til
þess er nýr meirihluti var
myndaður eftir síðustu
hreppsnefndarkosningar.
„Mér var aldrei gefin nein
skýring á uppsögninni og var
látinn hætta áður en
uppsagnarfresturinn var
útrunninn. Eg er á fullu kaupi
ennþá og gat meira að segja
leyft mér það sem fáir geta
nema ráðherramir, að fara út
fyrir landssteinana á fullu
kaupi, eins og ég gerði
nýlega. En ekki þar fyrir að
ég hafi ekki nóg fyrir stafni
og þurfi að leiðast, eða kvíöa
framtíðinni, með fullan
ellilífeyri og tekjutryggingu
auk atvinnuleysisbótanna”,
sagöi Birgir fyrrum
hafnarvörður.
á öldum Ijósvakans. Og
auðvitað var það lagið
Komdu í Kántrýbæ. „Þetta
gekk ákaflega vel og það
var hringt í okkur frá skipi,
sem var statt 40 mílur út á
hafi, þangað heyrðist mjög
vel“, segir Hallbjörn.
Kántrýkóngurinn stóð síð-
an við stjórnvölinn til tvö um
nóttina, en þá tók „róbótinn”
við og var útvarpað fram á
fimmta tímann um nóttina.
„Það voru nokkrir sem
hringdu í mig á vaktina til að
velja óskalag og spjalla.
Meiningin er að útvarpa um
helgar, frá sex á föstudags-
kvöldi fram á nóttina, og
síðan lengur á laugardögum
og sunnudögum. Þegar vorar
og ferðamannatíminn byrjar
þá verður náttúrlega opið
lengur, því það er fyrst og
fremst túrisminn sem ég geri
út á. Það er bara verst ef vinir
mínir vestur á Ströndunum
heyra ekki í stöðinni. Eg var
að biðja fólk á Hólmavík og
Drangsnesi að láta vita hvort
það heyrði í stöðinni. Það hringdi
bara ein kona á Drangsnesi, sem
sagðist ná merkinu, cn hlustunar-
skilyrði væru ekki nógu góð“,
sagði Hallbjöm.
GÆOAFRAMKOLLUN N
GÆDAFRAMKOLLUIU
BÓKABIE)
BEYNJARS