Feykir - 16.06.1993, Page 3
22/1993 FEYKIR3
„ Þeir sem meta
náttúruna koma
aftur og aftur"
segir Knútur á farfuglaheimilinu á Ósum
„Vcnjulega kcinur það í ljós á
fyrstu þrcm árunum hvort að
grundvöllur sc fyrir þessa starf-
semi. I>að kom fram strax á
iyrsta ári hjá okkur, cnda er tals-
vcrður fcrðamannastraumur hcr
fyrir Vatnsnesið og fólk hrífst af
náttúrufcgurðinni", scgir Knút-
ur Levy ungur Vatnsnesingur,
scm fyrir þrcmur árum hóf starf-
nckslu farfuglahcimilis á Osum
á Vatnsncsi, en sá bær er
skammt frá náttúruundrinu
Hvítserk. I>cgar Feykir sló á
þráðinn til Knúts fyrir helgina
var hann cinmitt að vinna að
gcrð göngustígs niður að þcssum
scrstæða klctti, og auðveldar það
cldra fólki og þeim scm crfitt ciga
með gang að komast í návígi við
Hvítserk.
Að sögn Knúts voru það útlend-
ingar að langstærstum hluta sem
nýttu scr gistingu og aðstöðu í far-
fuglaheimilinu til að byrja mcð, cn
því fcr sífcllt fjölgandi innlenda
feróafólkinu scm kcmur við á
Osum.
„Þcir scnt unna íslenskri náttúm
og dýralíli njóta þcss vcl að ferðast
um Vatnsnesið. Stemning miðnæt-
ursólarinnar cr mikil hér og þcir
sem þrá að komast í návígi við
fugla- og dýralíf koma hingað aftur
og aftur. Héðan frá Osum er t.d.
steinsnar í selalátur bcggja vegna
Sandsins og í fuglalífið í bjarginu.
Æðarvarp er hér líka í landareign-
inni og stendur einmitt sem hæst
núna. Síðan cru veiðileyfi seld í
Sigríóarstaðavatni. Þar gefst fólki
kostur á mjög fallegum liski, feitri
og fallegri sjóbleikju til dæmis. Það
virðist sem dvöl hér spyrjist vel út
og fólk sem hingað kemur segist
njaman vilja eiga Vatnsnesið fyrir
sig, enda er talsverð umferð hér um
yfir ferðamannatímann, margir
fólksllutningabílar fara hér um yfir
daginn. Þetta er líklega í hæfilegri
akstursleió fyrir hópferðir frá
Reykjavík að skoða náttúmperlur
héma í nágrenninu svo sem Borg-
arvirki og Hvítserk og fara Vatns-
neshringinn áður en haldið er suður
á bóginn aftur", segir Knútur.
Talsvcrt er um að útlcndingam-
ir panti gistingu í farfuglaheimilinu
og geri boó á undan sér. Knútur
nær þá gjaman í þá í áætlunarbílana
á þjóðveg eitt og sér um að greiða
götu þeirra meðan á dvöl þeirra á
Vatnsnesinu stendur svo og annarra
gesta sem að Osum koma.
Miðhús í Blöndhlíð:
Andahreiður á lóðinni
I>egar heimilisfólk í Miðhúsum
í Blönduhlíð var að slá lóðina
kringum íbúðarhúsið fyrir
stuttu, flaug allt í einu stokkönd
upp úr slægjunni. I>egar að var
gáð reyndist hún eiga hreiður í
garðinum með fimm eggjum í.
Það mun vera frcmur sjald-
gæft að stokkönd vcrpi svo ná-
lægt bæjunt, þó svo að þcssi
fuglatcgund sé ekki ntannafælin.
Að sögn Sigríðar Garöarsdóttur
húsfrcyju cr þetta trúlcga sania
stokköndin scm verpt hefur í
skógræktarrcit kvenfélagsins
undanfarin vor, en rciturinn er
skammt frá Miðhúsabænum.
Reiknað er með að ungamir komi
úr cggjunum í þessari viku og
fljótlega upp úr því fari móðirin
að þjálfa suntök þeirra á vatni
skurða þama í nágrenninu áður
en lagt vcróur út á hafió djúpa,
Héraðsvötnin.
Lýðveldisdegi fagnað
Á morgun, 17. júní, verður lýðveldisstofn-
unarinnar 1944 minnst um allt land. Þessi
skcmmtilega mynd barst Feyki úr myndasafni
Rósu Jcnsdóttur en hún er einmitt frá þjóðhá-
tíðardeginum 1944 og þá var talsvert öðruvísi
um að litast á Króknum en í dag. Myndin er
tekin frá Gamla bamskólanum og sýnir skrúð-
gönguna. Þeir sem auðveldlega má þekkja á
myndinni eru: Svava Steindórs, Ema Fríðu á
Hesti, Guttormur og Lissý böm Jóns í Ketu,
Gýja Haraldar lögreglustjórafrú í Reykjavík,
Ragnhildur dóttir séra Helga Konráðs og Silla
Gunna frá Víðimel. Húsin sem sjást á mynd-
inni eru fyrir miðju hús Guðrúnar frá Lundi,
þar scm Ingimar Pálsson og Dóra Hclgadóttir
búa nú. Húsið til vinstri er hús Frissa Júll. og
t. h. hús Olafs Gíslasonar en í því bjuggu lengi
Daddi Þorvaldar, bróðir Búbba, ásamt Dag-
björtu konu sinni. Takið eftir Sauóánni þar
sem hún seitlar áfram til sjávar fyrir ofan hús-
in. Yst til hægri má sjá enda vamargarðs með-
fram ánni en þarna rétt við er endi stokksins
yfir ánni sem gamlir Króksarar muna eftir, en
skrásetjari hefur alla sína vitneskju varðandi
þessa mynd frá þeirn.
Vilt þú selja Skagfírðingum og
Húnvetningum vöru þína og
þjónustu?
Þá er Feykir sá miðill sem þú
þarft á að halda!
Blaðið hefur mikla útbreiðslu á þessu svæði og á sér
reyndar einnig marga áskrifendur í Reykjavík, og út
um allt land.
Á Sauðárkróki býður nánast hver bæjarbúi eftir
blaðinu vikulega.
í sveitum Skagafjarðar er Feykir keyptur á nánast
hverjum bæ og Húnvetningar halda tryggð við Feyki.
Auglýsing í Feyki er gulls í gildi!