Feykir


Feykir - 15.09.1993, Qupperneq 3

Feykir - 15.09.1993, Qupperneq 3
31/1993 FEYKIR3 Hluti safnafólksins úti fyrir dyrum Byggðasafnsins í Glaumbæ. Farskóli safnamanna haldinn á Löngumýri Af götunni Reykingar bannaðar Reykingamenn hafa átt undir högg að sækja hér í landi á undanfömum árum og stöðugt er unnið að því að koma í veg fyrir svokallaðar óbeinar reykingar, það er að segja að fólk þurfti að meðtaka tóbaksreyk úr umhverfi sínu. Þannig gerist æ algengara að reykingar séu bannaðar á vinnu- stöóum og t.d. hafa hjúkrunar- stofhanir í landinu skapað fordæmi í þessum efnum. Svo gæti farið að starfsfólk Blönduósbæjar taki höndum saman og geri vinnustaði sína reyklausa. Sigrún Zophanísdóttir bæjarfulltrúi lagði fram tíllögu þess efhis á dögunum að reykingar yróu afhumdar á stofnunum bæjarins. Samþykkt var að Ofeigur Gestsson bæjarstjóri kannaði viðhorf starfs- manna bæjarins við þessari tíllögu. Lítill áhugi á sameiningarmálunum Enn sem komið er virðist lítill áhugi vera fyrir sameiningarmál- unum og þau ekki mikið rædd manna á meðal. Trúlega á þetta þó eftir að breytast þegar frekari kynning verður gerð út um kjör- dæmið á tíllögum umdæmisnefnd- arinnar. Væntanlega verður áhuginn fyrir sameiningarmálunum síðan oróinn mjög mikill þegar dregur að kosningunum 20. nóvembernk. Eftir því sem Feykir hefur hlerað virðast flestír vantrúaðir á að þessar stóru sameiningar verði staðreynd. Hinsvegar muni tíllögumar ýta undir það að forsvarsmenn sveitarfélaga leiti eftir samkomulagi við nágranna sína um sameiningarmálin og sveit- arstjómarmenn muni síðan vinna að því að afla þeim tíllögum fylgis innan sinna sveitarfélaga. Minna atvinnuleysi Atvinnuleysi minnkaði talsvert á Norðurlandi vestra í ágústmánuði frá mánuóinum áður, og er nú það næst minnsta á landinu. Það er að- eins á Vestfjörðum sem atvinnu- ástandið er betra. Atvinnuleysi er nú minna en 2% í kjördæminu og munaöi mestu um að atvinnulausum á Sauðárkróki fækkaði um helming í ágúsL Þar eru nú 14 á skrá. Malbik lagt yfir Skagfirð- ingabraut Um og fyrir helgina stóðu yfir malbikunarframkvæmdir á Sauðárkróki og er þeim nú Iokið. Minna var malbikað nú en áður, enda hafa nær allar götur og helstu plön í bænum verið bundin varan- legu slitlagi. Bæjarbúar urðu þó meira varir við malbikunina nú en oftast áður, þar sem að sett var yfirlögn á Skagfirðingabraut- ina frá gatnamótunum við skólana að Bláfelli. Þá var hluti Artorgsins malbikaður og plön hingað og þangaó um bæinn bundin varanlegu slitlagi. Bíla- plön leikskólans í Furukoti í Hlíðahverfí, Sauðárkrókskirkju og húss Pósts og síma voru malbikuð. Stafnsrétt: Veturgeng- inn hrútur til réttar Heimtur voru góðar af Eyvind- arstaðaheiði eins og annars staðar þar sem smalamennska fór fram um síðustu helgi, en veður og aðrar aðstæður til leita voru einstaklega góðar að þessu sinni. Meðal kinda sem komu til réttar í Stafni sl. laug- ardag var veturgamall hrútur frá Fossum í Svartárdal, sem talið cr öruggt að hafi gengið úti allan síðasta vetur. Hrúturinn hefúr greinilega mátt þola harðræði í rysjóttri verðr- áttu síðasta vetrar og eru tennur hans orðnar áberandi slitnar. Talið er líklegra að hrússi hafi leynst á Hraununum svokölluðu norður af Hofsjökli síðasta vetur frekar en í Blöndugili. Þrátt fyrir nokkur snjóalög á hálendinu síðasta vetur, mun hafa verið framur snjólétt á þessu svæði. Um síðustu helgj voru 62 helstu safnamenn landsins saman- komnir á Löngumýri á svoköll- uðum „Farskóla íslenskra safnamanna“. Þetta var í fimmta sinn sem þessi farskóli var haldinn, en hann er haid- inn árlega og kappkostað að fara með hann sem víðast um landið. Þátttakan hefúr aldrei verið jafh góð og að þessu sinni. Auk fyrirlestra, umræðna og vinnu í starfhópum ferðuðust þátttakendur um Skagafjarð- arhérað og fóru til Siglufjarðar. Þeir skoðuðu Sfldamiinjasafnið á Sigiufirði, Pakkhúsið á Hofs- ósi, Glaumbæjarsafhið og tvö einkasöfn í Skagafirði, nafh- anna Kristjáns Jóhannessonar á Reykjum í Tungusveit og Runólfssonar á Sauðárkróki. „Við fengum frábærar mót- tökur á öllum þessum stöðum og ég held að gestimir hafi verið mjög ánægðir með komuna í Skagafjörð. Svo skemmdi heldur ekki að á kvöldvöku sem haldin var í lok fyrri dagsins, á föstu- dagskvöldi, komu þeir í heim- sókn Alftagerðisbræður, Pétur og Sigfús, og sungu við undirleik Stefáns Reynis Gíslasonar. Það upphófst mikil stemmning og fólk byrjaði að syngja um leið og ég held að fólk hafi sofhað syngj- andi upp úr miðnættinu“, sagði Sigríður Sigurðardóttír safnvörð- ur í Glaumbæ, en hún á sæti í far- skólanefnd ásamt þeim Olafi Ax- elssyni í Arbæjarsafni, Ingu Láru Baldvinsdóttur í Þjóðminjasafni íslands og Nikulási Úlfari Más- syni í Arbæjarsafhi. Meðal fyrirlestra í Farskólan- um að þessu sinni má nefna að Magnús Pálsson viðskiptafræð- ingur hjá Félagi íslenskra iðnrek- enda fjallaði um ný viðhorf í markaðsmálum. Guðný Gerður Gunnarsdóttir kynnti nýtt flokk- unarkerfi, rætt var um markmið Félags íslenskra safnamanna og þar fluttu stutt framsöguerindi Hrefna Róbertsdóttir og Guðný GerðurGunnarsdóttir. Þá fjölluðu þær um söfunarstefnu Guðrún Kristinsdóttir og Inga Lára Bald- vinsdóttir. Einbýlishús til sölu! Húseignin vió Suðuigötu 8 Sauóárkróki er til sölu. Þetta er fallegt einbýlishús á fhósömum og grónum staó í gamla bænum. Nánari upplýsingar gefur Agúst Guömundsson í síma 35900 eóa aö Borgarmýri 1 Sauðárkróki. SKOTVOPNANAMSKEIÐ NÁMSKEIÐ FYRIR UMSÆKJENDUR SKOTVOPNALEYFA VERÐUR HALDIÐ ' BYRJUN OKTÓBER N.K. EF NÆG ÞÁTTTAKA FÆST. UMSÆKJENDUR SNÚI SÉR TIL YFIRLÖGREGLUÞJÓNS, LÖGREGLUSTÖÐINNI Á SAUÐÁRKRÓKI, FYRIR LOK SEPTEMBERMÁNAÐAR ATHUGIÐ AÐ VIÐ SKRÁNINGU BER AÐ FRAMVÍSA SAKAVOTTORÐI YFIRLÖGREGLUÞJÓNN Til okkar liggur leibin //AMMU W

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.