Feykir - 26.01.1994, Page 3
3/1994 FEYKIR3
Svar við dulbúinni auglýsingu
Þeir eru ekki öfiindsverðir sem
hafa þurft að fara gangandi
um bæinn í hálkunni undan-
farið, sérlega ef golað hefur.
Þannig rakst blaðamaður
Feykis á einn kennara íjöl-
brautaskólans á fjórum fótum
núna fyrir helgina, og hafði
honum orðið fótaskortur á
svellbunka ofan verknáms-
hússins. Þessi ágæti maður
sagðist vonast til þess að hann
færi að snjóa hressilega því þá
gæti hann stungið fótunum
kirfilega ofan í snjóinn og
þyrfti ekki að óttast að Ienda á
hnakkanum eða trýninu í
næsta fótmál, með tilheyrandi
hættu á beinbrotum og öðrum
meiðslum.
Og manninum varó aó ósk
sinni aö nokkru leyti. Strax um
kvöldið fór aö snjóa og snjóaöi
bara þónokkuð miðað við það
sem Króksarar eiga að venjast,
en varla þó nóg til þess að
hálkunnar undir snjónum gætti
ekki fyrir gangandi vegfarandur,
og vart þarf að taka fram að öku-
menn hafa sumir hverjir lent í
erfióleikum vegna erfiðrar akst-
ursskilyrða.
A dögunum var í Feyki gert
svolítið þras út af snjómokstri í
bænum. Þessar línur eiga ekki að
vera framhald af því múðri, og að
sjálfsögðu er ekki hægt að gera
stjómendur bæjarins eða bæjar-
starfsmenn ábyrga fyrir duttlung-
um náttúrunnar og hringlanda í
veðurfari.
En svo skemmtilega vildi til
þegar flett var upp í 10 ára gömlu
Feykis-blaði, að einmitt er þar að
finna hugleiðingu um snjó og
snjómokstur. Fer höfundurinn
skemmtilega með pcnnann og er
ekki síður gagnrýnni en sú rödd
sem höfð var uppi í Feyki fyrir
skemmstu. Við tökum bessaleyf-
ið og birtum svolítinn kafla úr
greininni sem birtist Undir Nöfum.
„Þótt nú sé vetur hefur lítinn
snjó sett hér niður og bæjarfélag-
ið lætur moka snjó af götum svo
færð er góð fyrir hina heilsugóðu
menn á besta aldri, sem hafa góð-
ar tekjur og hreyfa sig um bæinn
sitjandi á rassinum í bíl. Þessa
menn kalla sumir aumingja (til
aðgreiningar frá hinum virkilegu
eymingjum), en það er ekki
sanngjamt, því á herðum þeirra
hvíla mörg ábyrgðarmikil verk-
efni. Til dæmis ráða þeir bæjar-
málum og ýmsu öðru.
Gamalmenni og
„eymingjar"
Nokkuð sem einkennir þá er
að þeir hafa svo mikið að gera.
Þess vegna verða þeir að flýta sér
á milli húsa í bílum og þess
vegna hafa þcir ekki tíma til að
skilja aðrar þarfir en sínar eigin.
Af þessu öllu hefur svo þróast hjá
þeim býsna skemmtilegur
húmor. Hann birtist t.d. í þessu
að láta moka snjó af götunum
upp á gangstéttir, svo þær verða
stórhættulegar yfirferðar. Þetta er
nefnilega allt í lagi, því á gang-
stéttunum eru á ferðinni böm og
unglingar sem ekki hafa kosn-
ingarétt, húsmæður sem láta karl-
ana ráða og gamalmenni og
eymingjar sem engar kröfúr gera.
Og satt að segja eigum við
erfiða ferð um gangstéttir bæjar-
ins. Sums staðar hafa myndast
stærðar fjöll á gagnstéttum; af-
mokstur af götum. Böm og ung-
lingar klífa þau auðveldlega eða
skoppa yfir götuna ef betur er
fært þar. Húsmæður undir Nöf-
um hafa líka löngum bjargað sér.
Þaó em gamalmennin og eymin-
gjamir sem líklcga em skemmti-
legust þegar þau laumast út á ak-
brautimar til þess að komast fyr-
ir farartálma. Þá koma þessi
heilsugóðu á besta aldri á bílun-
um sínuni og flauta á þessi gam-
almenni og eymingja sem kunna
ekki umferðarreglumar. Það hlýt-
ur að vera ofsagaman að sjá fát-
ið sem grípur gamalmennin og
eymingjana þegar þau reyna að
bjarga sér. Annars keyra bílamir
bara yfir fólkið eins og dæmin
sanna.
Einar Sigtryggsson ritaði at-
hugasemd um það í síðasta tölu-
blaði Feykis, hvemig fréttamaóur
Utvarps hefði komið inn tor-
tryggni hjá hlustendum vegna
lækkunar vömverðs í kjölfar
lækkunar virðisaukaskatts. Frétta-
maður vill því koma eftirfarandi á
framfæri.
I fyrsta lagi var ekki um neina
frétt að ræða heldur spumingu
dagsins sem vegfarendur á Sauð-
árkróki svömðu. Spumingin var
samin af fréttamönnum Utvarps
Norðurlands og hljóóaði svo:
Hefur þú orðið vör eða var vió að
verð á matvöm hafi lækkað í kjöl-
far lækkunar virðisaukaskatts?
Svör viðmælcnda vom flest á
þann veg að þeir hefðu ekki oiðiö
varir við lækkunina, að minnsta
kosti ekki nóg, nokkrir töldu þó
svo vera og einn viðmælenda til-
greindi að verð á unnum kjötvör-
um hefði lækkað um nokkrar
krónur. Þessi svör komu án nokk-
urs þrýstings ffá fréttamanni og
var aldrei komið inn á það að
matvöruverslanir í Skagafirði
hefðu ekki staðið sig með að
lækka samkvæmt fyrirmælum
hins opinbcra eins og skilja má á
skrifúm Einars að fjallað hafi ver-
ið um. Helst er á skrifum hans að
skilja að hann hafi ekki áttað sig á
um livað var spurt, eða að hann
hafi ekki heyrt spuminguna.
Málið snerist alls ekki um það
hvort að féttamaðurinn hefði átt
að spyrja eiginmann sinn, deildar-
stjórann, um þetta mál því spum-
ingu dagsins var ekki beint að
honum. Þ:ir að auki eru athuga-
semdir af þessu tagi ósmekklegar
og sendar undir beltisstaó þegar
rök skortir. Hefði þá ekki títt-
nefúdur Einar átt að taka það ffam
að hann skrifaði sem faóir eig-
enda Hlíðarkaups?
Að lokum, Einar, þarf vart að
taka það ffam eina ferðina enn, að
í síðustu verðkönnun á Sauðár-
króki hafi Hlíðarkaup verið með
lægsta vöruverðið, því ef þú hlust-
:ir jafngrannt á Utvarp Norður-
lands og þú virðist gera, ætti ekki
að hafa farið fram hjá þér að þeirri
vcrðkönnun var margoft gerð skil
í fréttum og það þrátt fyrir að
fréttamaður sé gift einum af deild-
arstjómm Kaupfélags Skagfirð-
inga. Hefói ekki verið hreinlegra
að auglýsa bara í Feyki og greiða
fullt verð fyrir það?
María Björk Ingvadóttir
fréttamaður RÚV.
Fasteign til sölu!
Tilboð óskast í fasteignina Raftahlíð 7 a sem er
70 fermetra endaraðhús. Eignin er laus til
afliendingar. Tilskilin er réttur til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Allar nánari upplýsingar I síma 35884 eftir
kl. 18,00 (María Lóa).
Þorramatur!
Súrmaturinn hefur aldrei verib betri.
Sviðasulta
blóðmör
pungar
lundabaggar
sviðalappir
grísasulta
lifrapylsa
eistnavefjur
bringukollar
þorrabakkar
Verölækkun á áleggi
Ódýrt - Ódýrt
unghrossasaltkj öt
Hrossaframpartar
af nýslátruðu:
115 kr. pr. kg. til afgreiðslu
í Sláturhúsi.
Verslanir
Kjötvinnsla Sláturhús.
Einbýlishús til sölu!
Til sölu einbýlishúsió nr. 7 vió Eskihlíð á Sauðárkróki.
Húsið er fimm herbergja, um 150 fermetrar að gólffleti
ásamt tvöföldum bílskúr. Skipti á minni eign kemur
vel til greina. Upplýsingar í síma 35670 og 35470.
Þorbjöm Ámason lögmaóur.