Feykir - 26.01.1994, Qupperneq 7
4/1994 FEYKIR7
Nauðasamningar Slátursamlags í gegn
Glansmynd dregin upp af skuldunaut félagsins í fjölmiðlum
Nýlega staðfesti Héraðsdómur
Norðurlands vestra nauða-
samninga sem Slátursamlag
Skagfirðinga gekk í gegnum í
haust. Lýstar kröfur námu um
80 milljónum og falla kröfu-
hafar frá helmingi þeirra.
12,5% krafhanna, 10 milljónir
króna, er verið að greiða um
þessar mundir, en þrír fjórðu
hlutar sem eftir standa, 30
milljónir, verða síðan greiddir
með skuldabréfi til fimm ára.
Sú erfiða staða sem Slátursam-
lagið komst í á sl. ári má að
sögn forráðamanna að tals-
verðu leyti rekja til gjaldþrota
tveggja kjötkaupenda á höfuð-
borgarsvæðinu, en hvor um sig
skulduðu þessir aðilar Slátur-
samlaginu á þriðja tug millj-
óna.
Ljóst er að nokkrir aðilar í
héraði tapa stórum upphæðum
vegna þeirrar erfiðu stöðu sem
Slátursamlagið komst í og leiddi
til nauðasamninganna. Stærstu
kröfuhafar voru Búnaðarbanki
Islands með 42 milljónir króna,
Vöruflumingar Bjama Haralds-
sonar með tæpar 2,3 milljónir,
KS og íslandsbanki með 1,5
milljónir hvor. En flestir kröfu-
hafa voru bændur. Einn þeirra átti
1,7 milljónir hjá Slátursamalag-
inu og nokkrir um milljón.
Það var því ansi kaldhæðnis-
legt fyrir þessa aðila, þegar á
sama tíma og héraðsdómur stað-
festi nauðasamninginn, birtist
glansgrein mikil og fjölskyldu-
mynd á baksíðu viðskiptablaðs
Morgunblaðsins af öðrum stóru
kjötkaupendanna í Reykjavík
sem Slámrsamlagið fór verst út
úr vióskiptum sínum við. Þessir
aðilar sem nú em hættir kjötsölu,
vom þar að auglýsa hve frábær-
lega þeim hafði tekist til með út-
flutning á laxi. Það svo að þeir
önnuðu ekki eftirspum og verk-
unaraðferðimar höfðu þeir lært af
afa sínum, sem kenndur var við
kjötbúðina Borg.
Agnar Gunnarsson stjómar-
maður Slámrsamlags Skagfirð-
inga sá ástæðu til að gera athuga-
semd í Mogga við fréttina. Þar
segirm.a.:
„Eg get ekki látið hjá líða að
segja frá viðskipmm Slátursam-
lags Skagfirðinga við Borgar-
bræður hf. A íyrri hluta árs 1993
seldi Slámrsamlag Skagfirðinga
Borgarbræðmm vömr íyrir rúm-
ar 40 milljónir. Nú um áramót
skulda Borgarbræður Slámrsam-
laginu yfir 23 milljónir og er sú
upphæð búin að vera í vanskilum
í u.þ.b. hálft ár. 011 viðskipti við
þessa Borgarbræður hafa verið
þannig að Slámrsamlagið óskar
engum þess að lenda í viðskipt-
um viö þá, því til þess em vítin að
varast þau. Mér er kunnugt um
að þeir Borgarbræður em víða í
vanskilum og að þeir em á van-
skilaskrám.
Hvemig skyldi standa á því að
þeir fá ekki lax til að reykja?
Hvers vegna skyldu þeir hafa
hætt kjötvinnslu? Ætli geti verió
að þeir hafi átt í vandræöum með
að greiða fyrir vömna? Mér
finnst það vera ábyrgðarhluti að
birta nánast auglýsingu fyrir fyrir-
tæki eins og Borgarbræður hf.
Það em of margir í viðskiptum
sem telja að ekki sé nauðsynlegt
að greiða fyrir vömna heldur
þvælast áfram með svikum og
lygum. Frjáls viðskipti dafna
aldrei nema þau stundi heiðarleg-
ir menn“, sagði Agnar Gunnars-
son á Miklabæ.
Fyrir nokkmm dögum náði
auglýsingamennska Borgarbræðra
einnig í gegn í fféttatíma Ríkisút-
varpinu. Ef staðan er slík hjá
þessum umræddu Borgarbræðr-
um sem Agnar á Miklabæ grein-
ir frá, og engin ástæóa er til að
draga í efa, þá er það ansi áleitin
spuming hvemig standi á því að
þær fréttastofur sem taldar hafa
verið þær trúverðugustu í land-
inu, hjá Ríkisútvarpinu og Morg-
unblaðinu, gleypa við slíku?
ÞÁ.
Leiðrétting
I síðasta Feyki var ranglega
farið með nafn klúbbsins sem
Verkalýðsfélagið Fram hefúr gert
samning viö um sérstakan afslátt
hjá ýmsurn verslunum og fyrir-
tækjum. Klúbburinn heitir Heim-
ilisklúbburinn en ekki Heilsu-
klúbburinn. Leiðréttist þetta hér
með og em hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Ókeypis smáar
Til sölu
Til sölu Mazda 626 árgerð
1986, ekinn 118 þúsund km.
Mjög góður bíll. Upplýsingar í
síma 35141 (Jóhann).
Til sölu Volvo lapplanderárgerð
1981, með VM turbo dísel vél.
Nýuppgert. Upplýsingar í síma
96-33220
Til sölu stór jeppa- og vél-
sleðakerra. Upplýsingar gefur
Jóhann í síma 38119.
Til sölu Atari tölva STE 1040
með litaskjá, 100 leikjum og
forritum. Upplýsingar í síma
12515.
Til sölu bamabílstóll fyrir
fjögurra ára og yngri. Upp-
lýsingar í síma 24321.
Básar eða hesthús!
Oska eftir að taka á leigu hest-
hús eða nokkra bása.
Húsnæði
til leigu!
Fimm herbegja íbúó á
Sauðárkróki til leigu.
Upplýsingar í síma
95-35209.
Forstofuherbergi til
leigur meó inngangi
að salemi. Upplýsingar
í síma 35575.
Lopapeysur!
Lopapeysur úr íslenskri
ull til sölu. Upplýsingar
gefur Sigurlína í síma
36006.
Upplýsingar
síma 36473.
gefur Svanur
Verið skuldlaus í byrjun nýs árs!
Flestir vilja vera skuldlausir í byrjun nýs árs. Vinsamlegast
munið að greiða gíróseólana fyrir áskriftargjöldunum
sem allra fyrst. Þeim sem hugsanlega hafa glatað seðlum
skal bent á reikning Feykis nr. 8029 í Búnaðarbankanum
á Sauðárkróki.
Útsalan
hefst fimmtudaginn
27. janúar kl. 13-00.
Opið á föstudag frá
kl. 10-12 og 13-18
Vcrsíunin
rakkakotí
Munið endurskinsmerkin
Hugmyndasamkeppnin „snjallræði
fi
Iðntæknistofnun og fleiri að-
ilar efna í annað sinn til hug-
myndasamkeppninnar Snjall-
ræðis. Heildar verðlaunaupp-
hæðin getur numið allt að lið-
lega tveimur milljónum króna
fyrir einstaka hugmynd. Mark-
mió samkeppninnar er að hvetja
einstaklinga til að vinna hug-
myndum sínum brautargengi og
koma þeim í markaðshæft fomi.
Verðlaununum er varið til þró-
unarvinnu hugmyndanna. Verð-
launahafar verða að leggja fram
mótframlag, sem getur verið í
formi eigin vinnuframlags.
Snjallræði er skipt í tvo áfanga.
I fyrri hlutanum eru valdar átta
hugmyndir. Verðlaunaupphæð-
inni og mótframlaginu er varið
til að kanna hvort hugmyndin er
arðvænleg til frekari vinnslu.
Verðlaunaupphæðin í fyrri á-
fanga nemur allt að 600 þús.
króna.
í seinni hlutanum em valdar
fjórar hugmyndir, af þeim átta
sem fyrst urðu fyrir valinu.
Verðlaunaupphæðin getur
numið allt að 1,5 millj. króna og
er varið til fullnaðarþróunar,
fmmgerðarsmíóar og undirbún-
ings fyrir framleiðslu og mark-
aðssetningu.
Síðast þegar efnt var til sam-
keppninnar bámst um 250 hug-
myndir. Auk Iðntæknistofnunar
standa Iðnaðarráðuneytió, Iðn-
lánasjóður og Iðnþróunarsjóður
að vericefninu. Umsóknarfrestur
er til 18. febrúar. Allar nánari
upplýsingar em veittar á Iðn-
tæknistofnun.
(fréttatilkynning)