Feykir - 23.02.1994, Side 3
8/1994 FEYKIR3
Af götunni
Ekkert landabrugg í
Fljótum
Fréttamenn hafa í vetur vart
haftundan aðflytjafrettirafbrugg-
verksmiðjum sem hafa verið upp-
rættar á höfuóborgarsvæðinu og
reyndar víðar, en erfiðlega hefur
hinsvegar gengið að uppræta
ráðslag bruggaranna sjálfra, sem
láta ekki segjast, enda er þeim
jafhharðan sleppt og þeir liafa
viöurkennt brot sín.
En það eru fleiri en þeir á suð-
vesturhominu sem bendlaóir hafa
verió við bruggun. Skagfirðingar
hafa t.d. þótt liðtækir vió þá iðju
um tíðina, sérlega Fljótamenn og
Lýtingar, en reyndar er einn fræg-
asti landabruggari landsins kenndur
við bæ einn í Sléttuhlíð, Lónkot.
I afmælisveislu í vetur barst
þessi meinta árátta Fljótamanna í
tal. Varð þá Símon Gestsson póst-
meistari til að svara fyrir hönd
sveitunga sinna. Sagði hann fjarri
lagi að Fljótamenn lægju þama í
sökinni. „Það hefur aldrei verið
tekin bruggverksmiðja í Fljótum,
en núna heyrir maður að sé verið
að uppræta bruggverksmiðjur út
um allt land", sagði hinn vísi maður
Símon.
Bílastæðavörður
ríkisins
Helsta áhyggjuefhi skipuleggj-
enda 50 ára lýðveldisafmælis á
Þingvöllum í sumar, er umferð og
bílastæði. Gert er ráó fyrir 20 þús-
und bílum á svæðið og hvar á að
koma flotanum fyrir?
Þjóðhátíðamefnd þarf sem sé
að ráða bílastæðavörð á Þingvöll.
Þetta þarf að vera maður sem er
gjörkunnugur staðháttum, en hann
þarf einnig að vera geðprúður og
fullur kristilegs jafhlyndis til þess
að láta ekki önuga og óþolinmóða
íslenska ökumenn æsa sig upp að
óþörfu.
Nú er ljóst að aðeins er til einn
maður í þessu landi sem sameinar
fyrmefhda kosti. Sem sé Heimir
nokkur Steinsson. En hann er því
miður í fullu starfi sem útvarps-
stjóri og má því varla vera að því
aó sinna bílastæöavörslu í sumar.
En þegar þjóðamauðyn krefur, þá
verður að grípa til róttækra ráó-
stafana. Fjölmargir em hæfir til aó
gegna stöðu útvarpsstjóra skamm-
laust, en aðeins einn maður er fær
um að stjóma umferð á Þingvöll-
um 17. júní í sumar, þannig að
komið verði í veg fyrir upplausn,
slagsmál og árekstra sem myndu
rýra álit Islands vemlega í augum
tiginna, erlenda gesta.
Það þarf sem sé að reka Heimi
úr stöðu útvarpsstjóra þannig aó
hann verði á lausu í sumar og ráða
hann svo sem yfirbílastæðavörð
ríkisins á Þingvöllum.
(Víkurblaðið)
Auglýsið
í Fcyki
Skagfirðinga-
bók komin út
Skagiirðingabók ársrit Sögufé-
lags Skagfirðinga, 22. árgang-
ur er nýkomin út. Þetta er ár-
bókin fyrir árið 1993 og varð
nokkur dráttur á útkomunni,
en til hennar er vel vandað í
alla staði eins og jafnan áður. í
þessu hefti er að finna mjög
svo fróðlega og skemmtilega
þætti, um þekkta menn í sögu
héraðsins, svo sem Jón Þ.
Björnsson frá Veðramóti, sem
lengi var kennari og skóla-
stjóri á Króknum, og Jón
Pálma Jónsson ljósmyndara.
Einnig eru þættir um þá sem
minna eru þekktir í samtíð-
inni, eins og t.d. Lúsa-Finn
sýslumann.
Þaó er Jón Þorbjöm Magn-
ússon sem ritar þáttinn um Jón
Þ. Bjömsson og er hann mikill
af vöxtum, tæpar 70 blaðsíður.
Segir þar allítarlega frá lífs-
hlaupi Jóns Þ. Bjömssonar
skólastjóra, sem markaði með
margháttuðum störfum sínum
mikil spor í sögu Sauðárkróks.
Er Jón t.d. af mörgum talinn
einn merkari fræði- og vísinda-
maóur sem alið hefur sinn aldur
undir Nöfum, m.a. vegna
mannfræðirannsókna sinna.
Guðmundur Sigurður Jó-
hannsson ættfræðingur skrifar
um Jón Þórðarson í Háaskála í
Ólafsfirði. Aðalheiður B.
Ormsdóttir ritar um Elínu
Briem Jónsson og rit hennar
Kvennafræðarann. Nefnist þátt-
ur sá: ,Að hafa gát á efnahag
sínum".
Ekki er
allt gull
Þótt mannlíf sé í heildina gott
undir Nöfum, sjálfsagt hátt í það
eins gott og það frekast getur orðið
í þessum heimi, á það sér sínar
skuggahliöar. Hérertd. til minna
efnað fólk, sem kannski má telja
til fátæklinga, og síðan nokkrir
einstæðingar sem í einstæðings-
skap sínum geta átt vanda til að
gera sig full áberandi í bæjarlífinu,
til að mynda þegar þeir reyna að
slökkva á einmanakenndinni um
stund með því að fá sér dálítið
ofan í því.
Það em sem sagt ekki allir sem
lifa í lífsins lystisemdum hér undir
Nöfum, þó að húsaskjól hafi allir og
engir séu útigangsmennimir. Það
erkannski eins gott, eins mikil og
frostin vom á tímabili í vetur, en
frosthörkur hafa verið meiri í vet-
ur en þekkst hefur lengi hér um
slóðir.
Og það er þetta með einstæð-
ingsskapinn og kuldann og frost-
ið. Það rifjar upp minningu hjá
pistilritara um atvik sem gerðist
fyrir nokkmm ámm. Forsaga þess
hefur sjálfsagt verið á þann veg,
að einn einstæðinga bæjarins,
kannski fleiri, fengu sér í staup-
inu. Og það fór fyrir þessum ein-
staklingi eins og fleimm, að þeg-
ar drykkjan er hafin er ekki svo
gott að stoppa við og segja hingað
og ekki lengra. Og það var dmkk-
ið fram á nótt og nóttin dugói ekki
einu sinni til. Þegar leið aó morgni
vom vínföng á þrotum og ein-
manakenndin varó yfirþyrmandi
að nýju. Þá var haldió út á götuna,
út í óvissuna, hugsunarlaust.
Þetta var köld nótt, frostið svo
mikið að það marraði í snjónum á
gangstéttunum. Gatan var ein
glæra af samanþjöppuðum snjó
undan bílaumferðinni. Pistilritari
haföi nýrisið úr rekku og var að
undirbúa sig fyrir að halda til
vinnu, þegar allt í einu er bankað
á þvottahúsdymar.
Uti á dyrastéttinni stóð maður
blár í gegn af kulda. ,JComdu sæll
og blessaður vinur. Viltu vera svo
vænn að lofa mér að koma aðeins
inn fyrir og gefa mér kaffisopa,
mér er svo óskaplega kalt. Eg skal
ekki dvelja lengi", sagói maður-
inn með bænasvip. Jú, það var
ekkert sjálfsagðara en aó maður-
inn kæmi inn úr kuldanum og
fengi kaffisopa. Þaö var einmitt
að renna á könnuna.
Maðurinn setti sig í eldhús-
krókinn og var greinilega mjög
feginn að vera kominn inn í híýj-
una. Eg hellti í kaffibollann hjá
honum og spurði hvort hann vildi
ekki brauðsneið með, það væri
reyndar ekki til neitt nema bak-
aríisbrauð í þetta skiptið. ,Nci,
blessaður góði það er fínt að fá
bara molasopa", sagði maðurinn.
Síðan upphófst smárabb, líklega
um daginn og veginn, altént var
umræðuefnið ekki merkilegra en
það að ég man það ekki. En allt í
einu segir maðurinn. „Heyröu áttu
nokkuð smá leka?" Nei ég átti
víst engan leka og hefði vísast
ekki látið hann af hendi hvort eð
er ef hann hefði verði til. En það
náði ekkert lengra og áfram hélt
spjallið, þangað til maðurinn
sagði allt í einu upp úr þurru.
„Heyn3u hvernig er það, bakiði
ekki héma?“. Ég áttaði mig ekki
alveg á þessari spumingu fyrst,
hélt fyrst að ég hefði gleymt að
bjóða honum meðlæti og áréttaði
því fyrra boð mitt. „Nei, nei,
molasopinn er mér nóg".
Og vinurinn stóð við það sem
hann hafði sagt. Eftir aö hafa
dmkkið nægju sína af kaffinu,
stóð hann upp, kvaddi og hélt aft-
ur út í morguninn, og marrið und-
an skónum hans dó út í morgun-
kyrrðinni.
Dropi.
Samvinnubókin
4% nafhvextir
4,04% ársávöxtun
Raunávöxtun á síðasta
ári var 7,92%
Innlánsdeild
Kaupfélags
Skagfirdinga