Feykir - 16.03.1994, Side 3
11/1994 FEYKIR3
Æfingar hafnar á
Sæluvikuleiknum
Æfingar eru hafnar hjá Leik-
félagi Sauðárkróks á Sælu-
vikuleikritinu, sem að þessu
sinni verður gamanleikurinn
Karlinn í kassanum eftir
Arnold og Back, í þýðingu
Emils Thoroddsen. Leikstjóri
er Jón Ormar Ormsson.
Leikendur eru 15 og að sögn
Sigurbjöms Bjömssonar for-
manns LS gekk þokkalega að
manna verkið. Fmmsýning er
áætluð í byrjun Sæluviku, 10.
apríl. Þetta er í annað sinn sem
Leikfélag Sauðárkróks tekur
Karlinn í kassanum til sýningar,
en einhverjir áratugir eru liðnir
frá því þaó var sýnt síðast.
Til stóð að Ungmennafélag-
ið Tindastóll setti upp leikrit í
Sæluvikunni. Hilmir Jóhannes-
son ætlaði að leikstýra Slátur-
húsinu hröðum höndum, en
þegar til kom virtist ómögulegt
að fá fólk til að leika, svo að
ekkert varð úr.
10. bekkur Laugarbakkaskóla
safnar fyrir Danmerkurferð
Nemendur 10. bekkjar Laugar-
bakkaskóla, 23 talsins, tóku sig
til sl. laugardag og lásu bækur
frá klukkan tíu um morguninn
til klukkan sjö um kvöldið.
Lesnar voru 10823 blaðsíður á
þessum tíma og luku krakkarn-
ir 56 bókum og lásu að auki
hluta úr 20 í viðbóL Tilgangur
með Iestrarmaraþoninu var að
safna áheitum fýrir Danmerk-
urferð sem fyrirhuguð er í vor
að loknum skóla.
Vonuóust nemendur til að
safna með þessu tiltæki sínu um
80 þúsund krónum, en leitað var
til fyrirtækja og einstaklinga bæði
nær og fjær til að leggja þessu
máli lið.
I vetur hefur bekkurinn staðið
fyrir allskonar fjáröflunarstarf-
semi. Þar má nefna sölu jólakorta,
laufabrauðs- og kökusölu, kaffí-
sölu, sölu samloka á mótum í
íþróttahúsinu, félagsvist, diskótek
í skólunum á Laugarbakka og
Hvammstanga, dósasöfnun og
sölu almanaks Þroskahjálpar.
Einnig er fyrirhuguð myndlistar-
sýning og kaffisala á skírdag og
laugardag fyrir páska. Auk þessa
fengu nemendur 10. bekkjar veró-
laun frá Krabbameinsfélaginu fyr-
ir reyklausan bekk, krónur 2500 á
livem nemanda og einnig fengu
þau styrk frá Dansk-íslenska sam-
vinnusjóónum, 63 þúsund krónur.
Umsjón með undirbúningi Dan-
merkurferðarinnar hefúr dönsku-
kennari skólans Jóhanna Sveins-
dóttir.
EA.
Kratar á Skagaströnd
með nýja menn á toppi
Alþýðuflokksmenn á Skaga-
strönd hafa ákvcðið að þeir
Steindór Haraldsson og Þröstur
Líndal skipi tvö efstu sæti fram-
boðslista flokksins íyrir hepps-
nefndarkosningarnar í vor. Að
sögn Björgvins Brynjólfssonar
formanns Alþýðuflokksfélags
Skagastrandar er unnið að frek-
ari uppröðun á listann og verður
hann væntanlega birtur í þess-
um mánuði.
Þorvaldur Skaftason núverandi
hreppsnefndarfulltrúi krata hefúr
ákveóið að gefa ffá sér efstu sætin
á listanum. A félagsfúndi í lok síð-
asta mánaðar var efnt til atkvæöa-
greiðslu um hver skyldi skipa efsta
sæú listans. Þorvaldur og Steindór
Haraldsson, er skipaði annað sætíð
hjá óháöum lista við síðustu kosn-
ingar, fengu jafnmörg atkvæði. Til
að knýja IJam úrslit var ákveðið að
efna til skoðanakönnunar í flokks-
félaginu, en af henni varð ekki þar
sem að Þorvaldur dró sig í hlé.
,T>að er orðin hefð hjá okkur aö
vera frekar tímanlega í því að stílla
upp listanum. Okkur finnst það
afar gott til að geta notað tímann til
að skipuleggja baráttuna betur“,
segir Björgvin Brynjólfsson.
Reiknaðer með að við hrepps-
nefhdarkosningamar á Skaga-
strönd í vor verði einungis í fram-
boði hreinir pólitískir listar. Sam-
kvæmt heimildum Feykis er búist
við að Oháðir muni ekki bjóða
fJamnú.
Tónlistarskóli
Sauðárkróks:
Tvennir
tónleikar á
næstunni
Á næstunni mun Tónlistarskól-
inn á Sauðárkróki standa fyrir
tvennum tónleikum. Á sunnu-
daginn kemur með Jónasi Ingi-
mundarsyni píanóleikara og
10. apríl nk. mun Diddú syngja
við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur píanóleikara.
Jónas Ingimundarson mun
leika verk eftir Hendel, Haydn,
Beethoven, Bramhs o.fl. Tónleik-
amir hefjast nk. sunnudag 20.
mars kl. 16,00. Næstu tónleikar
sem Tónlistarskólinn stendur fyr-
ir verða 10. apríl. Hin kunna
söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir
(Diddú) syngur við undirleik
Onnu Guðnýjar Guðmundsdóttir.
Án efa verða tónleikar þessara
ágætu listamanna vel sóttir og
okkur Skagfirðingum kærkomn-
ir, segir í tilkynningu frá Tónlist-
arskóla Sauðárkróks.
Samvimuibókin
4%nafhvextir 4,04% ársávöxtun
Raunávöxtun á síðasta ári var 7,92%
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga
Krakkarnir í Laugabakkaskóla eyddu laugardaginum innan dyra, við lestur. MyndÆA.
■ i.
i t'