Feykir - 16.03.1994, Side 8
Öháð fréttablað á Norðurlandi vestra
16. mars 1994,11. tölublað 14. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
LANDS BOK
Þrjár bækur með mismunandi binditíma,
háum raunvöxtum og lántökurétti í RS
m Landsbanki
Sími Mk ís,ands
JHLJI Banki allra landsmanna
Fjöldi fólks var á skíðum um síðustu helgi. Nú eru bestu skíðahelgarnar framundan.
Áform um nýtt skíðasvæði í Stólnum
Ef að líkum lætur fara nú í hönd bestu dagar
ársins til skíðaiðkunar. Það var líflegt um að lit-
ast á skíðasvæði Ungmennafélagsins Tindastóls
við Heiði í Gönguskörðum um helgina. Fjöldi
fólks var út um allt fjalllendið og heiðina, annað-
hvort að renna sér í brekkunum eða ganga á
skíðum. I>etta fólk naut svo sannarlega veður-
blíðunnar og þegar hlé var gert á skíðaiðkuninni
beið rjúkandi kakó og vöfflur í skála skíðadefld-
arinnar.
Skíðafæri var mjög gott og snjór nægur, en snjó-
leysið hefur oft hamlað því að lyftan við Heiði sé
opin. Mikill hugur er nú í forsvarsmönnum skíða-
deildar Tindastóls, sem eru að gæla við þá hugmynd
að koma upp nýju skíðasvæði. Svokallaðir Lambár-
botnar vestan í Tindastólnum er talið af sérfræðing-
um mjög hentugt og skemmtilegt skíðasvæði. Þar
em góðar og fjölbreyttar brekkur í 5-600 metra hæð,
sem þýðir að snjór er þar mest allan veturinn og
langt fram á vor.
Það er langt síðan aó forráðamönnum skíðadeild-
ar Tindastóls varð ljóst að landið vió Heiði yrði ekki
skíðasvæði til framtíðar, einfaldlega vegna þess að
þar er of sjaldan snjór. Þar verður því ekki sett upp
ný lyfta þegar gamla lyftan hefur gengið sér til húó-
ar. En það kostar mikla peninga, einhverjar milljón-
ir, að koma upp skíðasvæði í Lambárbotnum. Veg-
ur yrði þá lagður eftirhryggjunum við Veðramót og
um fimm kílómetra leið inn í Lambárbotna. Efsti
hluti vegarins þyrfti að vera á töluverði upphækkun.
Vegagerð þama uppeftir yrði því nokkuð kostnaðar-
söm og þá þyrfti einnig að kaupa nýja lyftu. Þetta
yrði því mikið átak hjá skíðadeildinni ef af verður,
en ljóst er að þar á bæ er töluverður áhugi nú að
koma upp nýju skíðasvæði.
PáU Ragnarsson tannlæknir og formaður Tinda-
stóls endar ferðina á góðri „Þelamerkursveiflu“.
Svipuð útkoma hjá KS milli ára:
Tuttugu milljóna
hagnaður í fyrra
Kaupfélag Skagfirðinga var á
síðasta ári rekið með 20 millj-
óna króna hagnaði fyrir
skatta, sem er mjög áþekk út-
koma og árið á undan. Endan-
iegir reikningar munu liggja
fyrir innan skamms, en ljóst er
að tap verður á dótturfyrir-
tæki KS, Fiskiðjunni, sem
væntanlega mun eyða þessum
hagnaði og gott betur, þannig
að í heild verði einhver halii á
samtæðunni.
Þetta kom fram í viðtali við
Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra
í blaðinu Degi fyrir helgina. Þar
segir kaupfélagsstjóri að tekjur
félagsins hafi lækkað um 7%
milli ára, sem stafi af breytingum
á verði landbúnaðarvara. Að
þeim áhrifum slepptum hafi
tekjuaukning félagsins orðið 4%
á síðasta ári. Aukning varð bæði
á vöru- og þjónustusölu.
Eigió fé KS er nú um 1050
milljónir, og eiginfjárhlutfallið
50%. Skuldir eru mikið til ó-
breyttar og veltufjárhlutfall 1,8.
Aðalástæður fyrir tapi í sjávarút-
vegi á síðasta ári, segir Þórólfur
gengistap vegna gengisfellingar í
júní. Menn séu samt ekki óá-
nægðir með reksturinn í sjávarút-
veginum. Unnið hafi verið meira
magn á síðasta ári en nokkru
sinni áður, tæp 10 þúsund tonn af
bolfiski.
Riða staðfest á enn
einum bænum í
Vatnsdalnum
Nýlega var staðfest riða á bæn-
um Bjamastöðum í Sveinstaða-
hreppi í Austur-Húnavatns-
sýslu. Þar verður 235 kinda
hjörð fargað vegna riðunnar og
er það önnur hjörðin sem farg-
að er á skömmum tíma í A.-
Hún. Skammt er síðan skorið
var niður á Skriðulandi í Engi-
hlíðarhreppi.
Ellert Pálmason bóndi á
Bjamastöóum sagði þetta í fyrsta
sinn sem riða hefði fúndist í hjörð
sinni. Riða hefúr verið að koma
upp annað slagið í Sveinsstaða-
hreppnum og Vatnsdalnum, en
hennar hefði ekki orðið vart í ná-
grenni Bjamastaða á síðustu
árum. Einungis fjárbú er á
Bjamastöðum og tjónið því til-
finnanlegt. Ellert sagði bætumar
sem greiddar væm nægðu engan
veginn til að bæta tjónið, ekki
einu sinni þótt hann fengi fóðrun-
ina að hluta bætta, þá bætti það
ekki fóðurkostnaðinn að fúllu.
Þrjú lömb finnast í Mælifellshnjúk
Þrjár kindur fundust í stöllunum norðan í
Mælifellshnjúk um síðustu helgi. Reyndust
þarna vera þrjú lömb frá liðnu vori, tvö frá
Korná og eitt frá Sölvanesi. Frekar óvenjulegt er
að kindur finnist þegar svo langt er Iiðið á vetur.
Það var Indriði bóndi á Hvíteyrum sem varð
kindanna var. Hjálmar á Komá sagði að lömbin litu
ljómandi vel út og greinilegt væri að þau hefðu ver-
ið á einhverjum grösugum stað í vetur. „Blotum
sem valda harðfenni og jarðbönnum verður síður
vart til fjalla og það er greinilegt að þessi lömb hafa
ekki liðið skort“, sagði Hjálmar.
Oddvitinn
Gott lag er aldrei of oft samið.
Gæðaframköllun
BÓKABÚÐ
BHXUJCARS