Feykir - 07.09.1994, Side 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Umferð hleypt á
veginn um Ból-
staðahlíðarbrekku
Búið er að hleypa umferð á
nýja veginn uni Bólstaðahlíðar-
brekkuna. I gærkveldi var lok-
ið við að leggja bundið slitlag á
veginn. Halldór Blöndal ráð-
herra ók fyrstur um veginn
klukkan sex í gærdagkveldi.
Bólstaðahlíðarbrekkan var síð-
asti spölurinn sem bundinn var
varanlegu slitlagi á Þjóðvegi 1
milli Akureyrar og Reykjavík-
ur.
I fyrradag voru opnuð tilboð í
gerð vegar að nýju brúnnni yfir
Vesturós Héraðsvatna, sem verð-
ur tæplega tveeir kílómetrar að
lengd. Sex fyrirtæki buðu í verk-
ið og er tilboð Króksverks lægst,
að upphæð 14,768 milljónir eða
63,7% af kostnaðaráætlun. Fyll-
ing átti næst lægsta tilboðið
70,6% af kostnaðaráætlun, Fjöró-
ur sf var í 71,6%, Vinnuvélar Jóa
og Bjama buðu 76,9%, Suður-
verk 82,2% og Klæðning hf var
með eina tilboðið yfirkostnaðar-
áætlun, 109,6%.
Aætlað er að gerð vegarins
verði lokið í desember og umferð
verði þá hleypt á nýju brúna. Sjá
nánari umfjöllun um brúargerðina
á 4. síðu blaðsins í dag.
Tími gangna og rétta er runninn upp. Fyrstu réttir í áttungnum voru í Hrútatungu sl. sunnudag.
Vel viðraði á Hrútfirðinga og gesti þeirra á réttardaginn og þónokkurt slangur af fólki fylgdist með
réttarstörfúm. Fé var aftur á móti með minna móti, enda kann kvikfénaður vel við sig upp til fjalla
eins og viðrað hefúr undanfarið og er ekki fús til heimfarar. Mynd EA.
Mikil frjósemi í kúnum á Skúfsstöðum í Hjaltadal:
Ung kýr ber þrem kálfum, átti tvo í fyrra
Huppa var eðlilega dösuð eftir að hafa borið kálfunum þrem.
„Ég vissi að kýrin var komin fast að burði
og það kom mér því ekki á óvart þegar ég
kom út í morgun að sjá kálf með henni á
túninu. Mér fannst kálfúrinn reyndar vera
í minna lagi og datt því í hug að ganga nið-
ur á túnið og gá betur að, þá komu bara í
Ijós tveir kálfar í viðbót og annað greyið lá
í skurðinum“, sagði Sigurður Þorsteinsson
bóndi á Skúfsstöðum í Hjaltadal. I>ar á bæ
bar það til tíðinda aðfaranótt mánudagsins
að Huppa tveggja vetra kýr bar þremur
kálfúm. Það er afarsjaldgæft að kýr eign-
ist þrjá kálfa, en Huppa er frjósöm og í
fyrra þegar hún var kvíga bar hún tveim-
ur kálfúm.
Kálfamir lifðu allir þrír og eru ásamt móð-
urinni við bcstu heilsu. Tveir kálfanna em
18,5 kíló á þynd og sá stærsti 20 kíló, og
þykja þetta mjög stórir kálfar miðað við fjöl-
bura. Það má með sanni segja að þær séu
nokkuó frjósamar kýmar á Skúfsstöðum. I
sumar bar fyrstakálfskvígan Branddís einnig
tveimur kálfum.
Siguröur bóndi á Skúfsstöðum sagði að
þrátt fyrir að það sé ekki talið heppilegt gagn-
vart nytinni að kýr beri tveimur kálfum, sér-
stakleg ungar kýr, þá virtist það ekki hafa
komið Huppu svo í koll því hún mjólkaði ríf-
lega 6000 lítra í fyrra og er það vel yfir með-
allag. Huppa var að vonum nokkuð dösuð eft-
ir að hafa borió kálfúnum þremur og lét hún
fara makindalega um sig á básnum þegar
blaðamaður leit við á Skúfsstöðum í íyrradag.
Slátursamlagið:
Gert upp
með hagnaði
Á aðalfundi Slátursamlags
Skagfirðinga, sem haldinn var
nýlega, kom fram að félagið
var gert upp með hagnaði, en sá
hagnaður segir þó lítið um út-
komuna vegna hárra afskrifta
viðskiptakrafna á síðasta ári, er
námu um 60 milljónum króna,
og eins hins að nauðasamning-
ar sem félagið gerði við lána-
drottna sína tóku ekki gildi fyrr
en í upphafi þessa árs.
Að sögn Smára Borgarssonar
framkvæmdastjóra Slátursam-
lagsins virðist reksturinn frekar
upp á við en hitt og félaginu geng-
ur þokkalega að standa í skilum
með nauðasamninginn. „Menn
voru á einu máli um það á fundin-
um að halda áfram að slátra enda
er þetta mjög þægileg eining. Gott
að starta slátmn fyrir fáein lömb.
Við slátruðum tæplega 600 fjár í
ágústmánuði og ætlum að halda
áfram slátrun eftir helgina", sagði
Smári.
—KTenflitl tij}|—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargala lb 550 Sauöórkrókur Fox: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN