Feykir - 12.10.1994, Síða 8
12. október 1994,35. tölublað 14. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Fyrsti snjór haustsins féll um síðustu helgi. Ökumenn voru
margir hverjir óviðbúnir vetrarakstri og mátti greina það á
umferðinni í sjúkrahúsbrekkunni á Króknum á laugar-
dagsmorgun.
Framboðsmál Alþýðuflokksins:
Minni líkur á að
Jón Sæmundur
gef i kost á sér
Svo virðist sem minni líkur séu
nú fyrir því cn áður að Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson fyrrver-
andi alþingismaður gefi kost á
sér í cfsta sæti framboðslista AI-
þýðuflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra fyrir alþingis-
kosningarnar á vori komanda.
„Það er algjörlega óráðið hvað
ég gcri“, sagði Jón Sæmundur í
samtali við Feyki fyrir hclgina.
Litlu munaði að hann næði kjöri
í síðustu kosningum, hlaut ágæt-
ist kosningu. Alþýðuflokkurinn
bætti við 1,5% fylgi í kjördæm-
inu frá kosningunum á undan.
Jón Sæmundur neitar því stað-
fastlega að hann hafi í hyggju að
bjóða sig fram fyrir Alþýðuflokk-
inn í öðru kjördæmi. Ljóst er að
nokkrir aðilar hafa áhuga á efsta
sæti listans hér í kjördæminu. Þar
hafa verið ncfndir til sögu Kristján
Möller forseti bæjarstjómar Siglu-
fjarðar og tveir skólamenn á Sauð-
árkróki: Jón F. Hjartarson skóla-
meistari Fjölbrautaskólans og
Bjöm Sigurbjömsson skólastjóri
Gagnfræðaskólans og bæjarfull-
trúi.
Alþýðuflokksmenn áforma aö
halda kjördæmisþing sitt seint í
mánuðinum og þar verður væntan-
lega tekin ákvörðun um hvemig
staðið verði að framboðsmálum.
Verulega líkur eru taldar á próf-
kjöri.
Upp hafa komið innan stjómar
Kjördæmisráös Alþýðuflokksins
deildar meiningar um réttmæti
skipunar formennsku í stjóminni.
A kjördæmisþingi fyrir tveim
árum var Guðmundur Amason á
Sigluflrói kosinn formaöuraf hon-
um fjarstöddum. Guðmundur, sem
gegnt hafði trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn lengi, taldi tíma vera
kominn til að einhver annar tæki
við og afhenti umboð formennsk-
unnar Stefáni Gunnarssyni á Hofs-
ósi. Þessu hafa aðrir stjómarmenn
ekki vilja una, þeir Pétur Valdi-
marsson á Sauðárkróki og Steindór
Haraldsson á Skagaströnd.
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
| Pottþéttur klúbbur!
Sími 35353
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Nokkrir hundar hafa drepist af
völdum skæðs vírussjúkdóms
Staðfesting liggur fyrir á því
að svokallaður „parvóvírus“
hafi stungið sér niður á
svæðinu og valdið dauða
þriggja hunda. Sterkur
grunur leikur á að vírusinn
hafi grandað þremur hund-
um til viðbótar, en staðfest-
ing um það liggur ekki fyrir.
Vírusins varð fyrst vart í
hundi á Siglufirði sl. vor, stð-
an í Fljótunum mánuði
seinna og á síðustu vikum
hefur veikin verið að stinga
sér niður í nágrenni Sauðár-
króks og í Seylu- og Akra-
hreppi. Brýnt er að hunda-
eigendur á svæðinu láti bólu-
setja hunda sína við vírusn-
um og setji sig í samband við
dýralækna á viðkomandi
svæðum.
Að sögn Rikkc Schultz
dýralæknis kom þessi vírus
upp á höfuðborgarsvæðinu
fyrir tæpum tveim árum. Veik-
in lýsir sér með miklum upp-
köstum og niðurgangi ásamt
blæðingum úrþörmum. Víms-
inn er bráðdrepandi, sem sést á
því að hundarnir hafa drepist á
hálfum sólarhring frá því að
fyrstu ummerki um veikindi
sáust á þeim.
„Það þarf að tvíbólusetja
við þessum vírus í byrjun, mcð
mánaðarmillibili, og síðan
einu sinni á ári í nokkur ár til
að halda mótefninu við. Það cr
þessi árlega bólusetning sem
fólk hefur viljað trassa en cr
mjög nauðsynleg. Ég vil benda
hundacigendum á að það er
mjög brýnt að þcir láti bólu-
sctja hunda sína", sagði Rikke.
Séra Hjálmar mun njóta
staðgengilsþjónustu
„Ef það kænii til að ég tæki
sæti á Alþingi næsta kjörtíma-
bil er það frágengið við biskup
Islands að prestur verði settur
á Sauðárkrók í fullt starf, auk
þess sem ég mun að sjálfsögðu
ekki flytja burtu“, segir séra
Hjálmar Jónsson sem nú stefn-
ir á 1. sæti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í komandi
kosningum.
Ymislcgt þykir benda til að
prófkjör muni fara fram í kjör-
dærninu um uppstillingu á lista
Sjálfstæðisflokksins. Aóspurður
um hvort hann mundi þjóna
prestakallinu meöíin á prófkjörs-
baráttu stæði segir Hjálmar: „Sú
ákvörðun býður síns tíma, þar
sem að enn er ekki fyrirséð hvort
prófkjör verður, en ég mun
tryggja það að full prestþjónusta
verði þótt ég hverfi um skeið til
annarra starfa og hefur biskup
heitið mér fullum stuðningi til
jjess", sagði Hjálmar og gat þess
einnig að þeir sem kæmu til
þingstarfa væru úr hinum ýmsu
stéttum og venjan væri sú að þeir
fengu staðgengilsþjónustu á
nicðan.
„íslenska lýðveldið er 50 ára
á þessu ári. Mér finnst þaö gott
og göfugt hlutskipti að taka þátt í
landsstjóminni. Pólitík erckki ill
í sjálfu sér. Við þurfum að gæta
þess að málefnin ráði. Ég hef
ýmsar áherslur sem ég mun
koma á framfæri á næstunni,
bæði um innlend málefni og
samskipti við aðrar þjóðii'’, sagði
Hjálmar að cndingu.
Hús brunnu í Kálfshamarsvík
Þrjú hús brunnu til kaldra kola í
Kálfsharnar.svík á Skaga að-
faranótt þriðjudagins í liðinni
viku. Slökkvilið Skagastrandar
var kallað á vettvang og voru öll
húsin brunnin cr það kom á
staðinn. Aðcins eitt hús er nú
uppistandandi í Kálfshamars-
vík, og þjónar það hlutverki
bátaskýlls og nctagcymslu. Fyrr
á öldinni var mikil útgcrð frá
Kálfshamarsvík og bjuggu rúm-
lega 100 manns þar þegar flest
var á öðrum tug aldarinnar.
Ekki hefur verið búið í Kálfs-
hamarsvík til fjölda ára, en nytjar
hafa verið stundaðar af eigendum
staðarins fram á þcnnan dag.
Sveinn Sveinsson bóndi á Tjöm
hefur umsjón með vitanum við
Kálfshamarsvík. Um 20 mínútur
yflr eitt aðfaranótt 4. október var
honum litió niður í víkina eins og
hann á vanda til. Sá hann þá húsin
standa í björtu báli. Húsin vom
skúrbyggingar, svefnskáli og tveir
gcymsluskúrar. Taliö er lullvíst að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
TM tryggingar
þegar mest á reynir
Söluumboð á Sauðárkróki:
Bókabúð Brynjars, sími 35950.
Trygginga-
miðstöðin hf.
Oddvitinn
Ég skal verða kapelán hjá
séra Hjálmari.