Feykir


Feykir - 11.01.1995, Qupperneq 4

Feykir - 11.01.1995, Qupperneq 4
4FEYKIR 2/1995 ÞRJÚ HUNDRUÐ MÍLUR Myndir Ferð Gufubaðsgengisins á Vestfirði 21.-24. apríl 1994 oe texti: Seinni hluti Hjalti Pálsson Jeppar og sleðar á Bolungarvíkurleið. Bolungarvíkur. risatappi í klakabrynju upp úr jöklinum. Þangað komumst við upp á sleðunum og þar rofaði nokkuð til svo aö sást ofan í Reykjarfjörðinn. Víða sáust nýjar og gaml- ar slóðir, bæði eftir bíla og sleóa. Var síð- an haldið áfram norður yfir jökulinn og komið ofan á svonefnt Nónfjall, sem er upp af Skorarheiði milli Hrafnfjarðar og Fum- fjarðar. Nú var orðið skellibjart og hið fegursta veður og færi; útsýni stórkostleg yfir Fum- fjöró og norður eftir. Við náðum tali af sleðamönnum frá ísafirði, sem höfðu kom- ið noróan úr Homvík um daginn og þeir sögöu að við gætum fylgt slóðum þeirra norður eftir. Annars fannst mér þeir ekkert ýkjavinsamlegir, greinilegt að við áttum ekkert að vera að flækjast hér. Skarðsfjall framundan milli Barðsvíkur og ar úr Njarðvík og Keflavík á nýjum 4Runn- er með spili og Toyota HiLux. Þeir kváðust hafa komið úr Reykjarfirði og vera að at- huga hvað þeir kæmust langt. Fóm síðan kveðjur á milli og við héldum áfram, en þeir létu lítió yfir sér, ætluðu að sjá til með áframhaldið. Upphófst nú hið æsilegasta Qallarall upp og nióur snarbrattar brekkur, um sléttur og hliðarhalla, skörð og hamragil, sem við kunnum ekki að nefna. Hefði okkur orðið torfundin rétt leið, ef ekki hefði notið við slóða þeirra Isfirðinga. Landslagið er ærið stórbrotið og nýstárlegt, en þar sem mjög var liðið á daginn, stönsuðum við minna en ella. Kl. um sjö vomm við komnir norður um Látravík og stungum okkur niður að Hombjargsvita. í jólablaði Feykis birtist fyrri hluti feróasögunnar og lauk þar sem feróafélagamir höfðu tekió náttstaö hjá sæmdarhjónunum Andrési Jónssyni og Þórdísi Jónsdóttur á Þingeyri. Stóri dagurinn, 23. apríl Menn vom árrisulir á laugardagsmorg- uninn og hugðu til stórra ferðalaga. Samt tók tíma að smala saman hópnum og tygja sig af stað og klukkan var orðin níu, þegar lagt var upp. Veður var allbjart, enda hafði veðurstofan lofað góðu og sýnt heila sól yfir Vestfjörðum kvöldið áður. Við þeyst- um til baka sömu leið og daginn áður með litlum hvíldum, mílu eftir mílu og þaó var slegið duglega í á köflum, enda haföi snjó- koma gærdagsins víða lagt mýkingareftti ofan á harðfennið. Einkum var tekinn góó- ur hlaðsprettur í bækistöðina á Steingríms- fjarðarheiði. Enn af lykilatriði Nú blöstu aftur við vandræði söguritara. Hann komst ekki inn í bílinn til að ná í bensínið sitt, sem þar var geymt í brúsa. Var nú gengið í að leysa hans mál. Jói á Hrauni átti nothæfan vír og með honum tókst að opna læsinguna. Þá var kálið kom- iö í ausuna, en ekki sopið, því enn vantaði lyklana og sýndist þá helst til ráða að tengja framhjá eins og bílþjófar gera. En þótt bif- vélavirkjar væru með í för, var þar enginn sem reynslu hafði í bílþjófnaði svo þetta var ekki einfalt mál. Svo var stýrislásinn.... Menn höfðu enn litlu eytt af nesti sínu, keypt allan viðurgjöming í Djúpuvík og á Þingeyri voru veitingar ekki skomar við nögl. Þegar ég fór aó huga í nestiskassann, sem festur var aftan á sleðann, kom í ljós að núist hafði í sundur fema undan kókómjólk og sýndi sig nú reynsluleysi mitt í slíkum ferðalögum að taka með mér drykkjarföng í slíkum umbúðum. Sá ég því nauðsyn á að taka allt upp úr kassanum og þrífa hann. Að lokum hellti ég mjólkinni úr bominum og gerast þá ekki undur og stórmerki. Lyklam- ir glötuðu féllu niður í snjóinn. Var nú gleði undirritaðs fullkomin, eða næsmm því. — Þegar lyklamir komu í leitimar var nefhi- lega búið að snúa í sundur stýrislásinn og nú virkaði ekki lykillinn í lásnum. En þetta vandamál varð að bíða betri tíma. Á Drangajökli Enn á ný stefnt í norðvesmr og hugsað að komast norður á Homstrandir, ef guð lofaði. Við áttum vísa næturgistingu í Un- aðsdal á Snæfjallaströnd og höfðum pantað tunnu af bensíni ffá ísafirði, sem átti að setj- ast í land á Bæjum. Land norður af Stein- grímsfjarðarheiðinni er smáhæðótt og fjöldi vatna á þessu hálendi, en þau vom auðvit- að öll undir ísi og hvergi sá á dökkan díl, þótt komið væri sumar eftir almanakinu. Færi var betra en daginn áður, dálítil lausa- fönn komin ofan á breðann í öllum lægðum og gekk förin greitt. Stefnan var á lóranpukt í suðaustanverðum Drangajökli. Þar var lágskýjað og skafrenningur og skyggni slæmt. Við sáum samt til Hrolleifsborgar og komum að Reyðarbungu, sem er eins og í Hrafnfirði Kl. var um fimm er við steyptum okkur ofan í Hrafnfjörð. Þar er snarbratt niður af Skoraiheiðinni. Athygli vakti slóó eftir tvo jeppa niður í fjörðinn. Upp af fjarðarbotn- inum er sérkennilegt náttúmvætti, gríðar- stór, skeifumyndaður hamar með stuðla- bergi, svonefndur Gýgjarsporshamar. Þar var talin vera kirkja álfa, en sumir töldu kaupstað þeirra. Nokkum spöl út með firðinum að sunn- an er eyðibýlið Hrafhfjaðrareyri. Þar er leiði frægasta útilegumanns íslands, Fjalla-Ey- vindar. Engan tíma höfðum við til að vitja hans, en héldum út meó firðinum að norð- an, þar sem er hliðarhalli í sjó fram. Þar sáum við að bílslóóimar lágu út í sjóinn. Þama er gmnnt og útfiri mikið innst í firð- inum og höfðu bílamir svamlað á annan kílómetra út eftir firðinum, þar til þeir höfðu brotist í land. Er viö komum út í Álfsstaða- dalinn, gaf að líta hvar bílamir vom í efstu brekku aó klóra sig upp úr dalnum, upp á svokallaða Bolungarvíkurheiði. Var nú stansað og býsnast yfir þessum undmm, bílamir í 1-2 kílómetra fjarlægð. “Eigum við að giska á að þetta sé Toyota 4Runner, diesel Turbo”, segir Bjössi. “Eigum við að veðja flösku upp á það”, svarar Bragi. Ekki að orölengja það, þegar viö komum til jeppamanna, sem þá vom komnir alla leió upp, að Bjössi hafði rétt fyrir sér, en ekki er vitaó hvort Bragi hefur enn goldið flöskuna. Þama vom á ferð fjórir hressir jeppakall- Síðasta vígi Stalíns Ólafur Jónsson er vitavörður á Hom- bjargsvita. Hann er af kunnugum jafhan nefndur Óli kommi. Tók hann á móti okk- ur og bauð í bæinn. Við þáðum kaffisopa eftir að hafa snætt af nesti okkar úti í góð- viðrinu. Þama vom fyrir fjórir menn úr Ár- neshreppi á þrem sleðum og tóku menn tal saman. Einn sleói Strandamanna var gam- all Y amaha 440, sem nú er ekki borin mik- il virðing fyrir, þótt einu sinni þætti hann góður. Jói á Hrauni hafði árangurslaust reynt að komast upp í svonefht Breiðaskarð á útleiðinni og lent í brasi að snúa í brattan- um og komast niður aftur. Ökumaður gamla Y amma kvaðst hafa farið þar upp og taldi ekki sérlega erfitt. Urðu þá orðaskylm- ingar, því Jói brá sverði og kvaðst illa trúa að hægt væri að komast þar upp á svo gam- alli dmslu. Strandamaður bar fimlega af sér og lagði í móti þeim orðum, að það færi nokkuð eftir því hvað sleðinn þyrfiti að bera mikið. Hlógu þá allir nema Jói, sem er maður þéttur á velli. Ráðskona var hjá Óla, sem hellti upp á kaffi og reiddi fram meðlæti, en Óli leiddi gesti til stofu og ræddi við komumenn. Svo stendur hann upp til að sækja kaffið. Bragi Þór hafði komið sér makindalega fyrir í hægindastól og Óli kallar til hans: “Komdu héma”. “Ha, ég”, svarar Bragi hissa. “Já þú, komdu að vinna, sækja bolla og glös”, seg- ir Óli. Jú, Bragi stendur á fætur til að veita aðstoð, enda gamalvanur í björgunarsveit- inni, en Bjössi útskýrir viðbrögó Braga fyr- ir Óla og segir. “Hann er seinn til svara þessi, hann er nefnilega sjálfstæður atvinnu- rekandi.” Það er óneitanlega sérstætt að koma inn í vitahúsið. Umgengni öll ber vitni um snyrtimennsku, en innbúð dregur dám af skoóunum húsráðanda. Þótt Stalín karlinn sé nú víðast í ónáð fallinn á hann ömggt at- hvarf á Hombjargsvita. Geysistór, fagur- rauður fáni með hamri, sigó og stjömu klæðir einn vegginn og stórar innrammað- ar myndir af Stalín og Maó ríkja á öórum veggjum. Þar em einnig fleiri byltingarfor- ingjar leiddir til öndvegis, svo sem Che Cevara, og einnig má sjá nokkrar vel vald- ar áróðursmyndir, sem sýna öreigana brjóta af sér hlekki auðvaldsins: Kapitalismus NEIN — Kommunismus JA. Við sögóum Óla ffá bílunum, sem væm á leióinni. Að Hombjargsvita hcfur aldrei komið bíll og Óli lét þau orð falla, að það væri þá kominn tími til að fara að flýja héð- an, ef maður gæti ekki lengur verið óhult- ur fyrir bílaumferð. Og sem við stöndum úti Á Hombjargsvita. Óli kommi og ráðs- konan við dyrnar ásamt sögumanni. Neðar eru Sigurþór, Jóhann, Bragi og Sigríður. Hundurinn lét ekki nafns síns getið. Ljósm: Bjöm Svavarsson. á hlaði eftir meðteknar veitingar og búumst til brottfarar, þá birtist annar bíllinn á brún- inni utan og ofan við vitann. Hann var á leiðinni niður, þegar við fómm af stað. Við höfðum tal af þeim og beindum á rétta leið niður. Þar er með ólíkindum að nokkur bíll skuli komast þessa leið og slíkt getur aldrei orðið nema í sérstöku færi og þannig var það núna, alls staðar harðfenni í brekkum og þar sem skafið hafði, svo að viðspyma var eins góð og hugsast gaL Á leið í náttstað Klukkan var orðin átta aó kvöldi, er við lögðum upp úr Látravík, þar sem vitinn er norðan undir Axarfjalli. Löng leið var til baka niður á Snæfjallaströnd og við vomm uggandi hvort bensínió mundi duga okkur í náttstað. Þess vegna þorðum við ekki að fara norður á Hombjarg og í Homvík, þótt það væm aðeins fáeinirkílómetrar, vildum held- urekki lenda í myrkri á ókunnum slóðum.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.