Feykir - 08.03.1995, Blaðsíða 7
10/1995 FEYKIR7
Þjóðdansaflokkur Kvenfélags Sauðárkróks í kringum 1970.
Ókeypássmáor
Til sölu!
Til sölu mjög góðir bílar: BMW
518 I árgerð 1986, Nissan
Pathfinder árgerð 1988 og
Cherocky Limeted árgerð
1984, sjálfskiptur. Upplýsingar
gefur Jóhann í síma 35141 og
35227 hs.
Til sölu VW Jetta árgerð 1982
(B2). Bíll með mikla reynslu.
Til greina koma ýmiss skipti.
Upplýsingar í síma 36048 eftir
kl. 18,00.
Til sölu páfagauksbúr, selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 35677.
Til sölu Toyota Corolla XL
árgerð 1991, lítið ekin, góður
og fallegur bíll. Upplýsingar í
síma 95-35740.
Hlutir óskast!
Óska eftir vinstri hliðarrúðu á
Zetor dráttarvél árgerð 1977.
Upplýsingar í síma 36762 eða
35219.
Hús til leigu á
Spáni!
Til leigu hús á Spáni, tímabilin
12. júlí - 2. ágúst og 24. ágúst -
14. september. Hentar vel fyrir
tvær fjölskyldur. Upplýsingar í
síma 36780 (Pálína).
Munið áskriftargjöldin!
Kvenfélagið undir Nöfum
Á þessu herrans ári 1995, er
Kvenfélag Sauðárkróks 100 ára
og hefur félagið alltaf lyft menn-
ingarlífi hér á Krók á hærra plan.
Kvenfélagið hefur haldið sitt
þorrablót síðan árið 1968 og ég
tel að hvert einasta þorrablót,
sem Kvenfélagið hefur haldið
hafi verið menningarviðburður,
sem geta hefði mátt um í fjöl-
miðlum. í mörg ár æfðum við
konur þjóódansa fyrir þorrablótið
og sýndum í íslenskum búning-
um, þetta segi ég að hafi verið
menningarviðburður og fréttir,
bæði fyrir staóarblaðið sem og
aðra fjölmiðla. Á hverju ári er
æft og samið í nokkrar vikur fyr-
ir þorrablót og tugir kvenna fara
á svið og skemmta samborgur-
um sínum. Þetta er menningar-
viðburður og matur fyrir fjöl-
miðla, ekki síst héraðsftéttablöð,
en aldrei hefur maður séð minnst
á þetta í staðarblaðinu okkar.
í ár var engu minna æft og
puðað fyrir þorrablót. Konur
lögðu nótt við dag síðustu vik-
una til að allt færi sem best fram,
og vil ég fullyrða að sjaldan hef-
ur þessum elskum tekist jafn vel
upp og vil ég þakka þeim öllum
fyrir samstarfið. Og viti menn
þorrablót Kvenfélags Sauðár-
króks komst í fjölmiðlana, þess
var getið í staðaíblaðinu og ekki
bara þar, heldur líka í DV og út-
varpi. En það var ekki talað um
það í fjölmiðlum fyrir góð
skemmtiatriði, nei heldur vegna
leiðinda atviks sem varö í lok há-
tíðarinnar og stóð í 10 mínútur,
óundirbúið. I öllum þessum frétt-
um er farið kolvitlaust með stað-
reyndir og er víst að allir hafa
þessir fjölmiðlar fengið fréttimar
af götunni eða hjá Gróu á Leiti,
eins og sagt var í gamla daga.
Ritstjóri Feykis hefði átt að leita
til réttra aðila ef hann hefði viljað
fá sannar fréttir af þorrablóti
Kvenfélagsins, en ekki til ffétta-
stofu götunnar. Að gefhu tilefni
(DV) vil ég taka það ffarn að við
vorum öll í fríi frá okkar vinnu
sem vorum að skemmta okkur á
þessu þorrablóti.
Eg veit ekki hversu viðkvæm
„Jóna og Geir“ eru, en minn
skrápur er orðinn það þykkur að
hann hefði þolað að til mín væri
leitað og ég heföi greint rétt og
satt frá, fyrst endilega þurfti að
koma þessu á prent í staðarblað-
inu. Mér finnst þessi skrif um
þorrablót Kvenfélags Sauðár-
króks ómakleg á 100 ára afmæli
þess, það er eins og það hlakki í
fólki af því að eitthvað fór illa
hjá Kvenfélaginu, hjá þessu fé-
lagi sem alltaf hefur haft það að
markmiði að hjálpa öðrum og
láta gott af sér leiða.
Að lokum vil ég svo þakka
öllum þeim konum sem í gegn-
um árin hafa starfað með mér
fyrir þorrablót og aðrar skemmt-
anir hjá Kvenfélaginu innilega
fyrir fádæma gott og skemmti-
legt samstarf, ég er svo mikið
ríkari fyrir vikið. Eg vil líka óska
Kvenfélaginu til hamingju með
100 ára afmælið og bið bæjarbúa
að hlúa vel að þessu aldna
fjöreggi sínu, sem alltaf er sí-
ungL
En við ritstjóra þessa blaðs vil
ég bara segja: ,Aðgát skal höfð í
nærvem sálar.“
Guðbjörg Bjarman.
Þeir sem enn kunna að hafa í fórum sínum ógreidda gíró-
seðla fyrir áskriftargjöldum eru beðnir að greiða hið allra
fyrsta. Þeim sem glatað hafa gíróseðli skal bent á að hægt
er að millifæra áskriftargjaldið á reikning Feykis nr. 1660
í útibúi Búnaðarbankans á Sauðárkróki.
Fasteign til sölu!
Til sölu er raðhúsið að Grenihlíð 18. Húsið er
á tveimur hæðum, 3-4 herbergja 128 fermetra
meö bílskúr.
Upplýsingar í síma 35468 eftir kl. 18,00.
Til sölu er verslunin
Saumakistan á Sauðárkróki!
Um er aó ræða sölu félagsins Saumakistan hf., eða
einungis sölu á vörubirgðum verslunarinnar.
Nánari upplýsingar eru gefnar hjá
Endurskoðun hf I síma 36070.
Svipmyndir
frá
Öskudegi
Það var líflegt á Öskudaginn
eins og öllu jafnan og skraut
og búningar barnanna af
hinu ýmsu tagi. Söngurinn
var samt enn að miklu leyti
klassískur, þessi sígildu
öskudagssöngvar eins og:
Hafið bláa hafið, Það er
leikur að læra og Bjarnastaða-
beljurnar, sem að vísu heyrð-
ist nú í nýrri útgáfú, nefhilega
Bjarnastaðagellurnar.