Feykir - 17.01.1996, Síða 5
2/1996 FEYKIR5
0
I
1
I
I
1
I
I
i
i
I
i
i
1
i
i
i
I
i
i
i
I
1
i
i
1
i
i
i
i
i
i
I
Afmælisár á Sauðárkróki
í ár og á næsta ári verða merk tíma-
mót í sögu Sauðárkróks. Af því tilefni
hefur bæjarstjórn samþykkt að tímabilið
frá júlí 1996 fram í júlí 1997 verði nokk-
urs konar afmælis- og átaksár á Sauðár-
króki.
Fyrir baráttu Skagfirskra bænda löggilti
Friðrik sjöundi Danakonungur verslunar-
stað á Sauðárkróki árið 1857. Sömuleiðis
var það kaþþsmál fyrir Skagfirska bænd-
ur að varanleg byggð risi á Sauðárkróki.
Peim varð loks að ósk sinni árið 1871 er
Árni klénsmiður Árnason reisti sér hús á
Sauðárkróki, þar sem nú er Lindargata 7.
Par með hófst byggð á Sauðárkróki.
Byggðin á Sauðárkróki óx hratt og alda-
mótaárið var íbúafjöldinn kominn yfir
400. Þessi ört vaxandi byggð sem Sauð-
árkrókur var kallaði á ýmsar fram-
kvæmdir sem urðu til þess að skerþa
skilin á milli þéttbýlisins og sveitarinnar
innan Sauðárhreþþs. Því fór svo að árið
1907 var Sauðárhreþþi skiþt uþþ í Skarðs-
hreþþ og Sauðárkrókshreþþ. Áfram hélt
byggðin á Sauðárkróki að vaxa og dafna
og loks árið 1947 fékk Sauðárkrókur
kauþstaðarréttindi. Þá voru íbúar bæjar-
ins 983.
Þessi sögulega yfirreið segir okkur að
nú í ár eru liðin 125 ár frá því að byggð
hófst á Sauðárkróki og að árið 1997 eru
liðin 140 ár frá því að Sauðárkrókur varð
verslunarstaður, 90 ár frá því að Sauðár-
krókur varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár
frá því að Sauðárkrókur varð kauþstaður.
Auk þessa eiga mörg félög í bænum
stórafmæli á J^essu tímabili.
Bæjarstjórn skipaði síðastliðið sumar
sérstaka afmælisnefnd til að finna grund-
völl fyrir afmælishaldið. í nefndinni eru;
Árni Ragnarsson, Brynjar Pálsson, Elsa
Jónsdóttir, Guðmundur Guðmundsson
og Ómar Bragi Stefánsson. Nefndin réði
sér starfsmann í hálft starf, sem er Páli
Brynjarsson.
Nefndin hefur komið sér saman um
meginviðhorf til afmælishaldsins og á
þeim grundvelli byggjast hugmyndir
hennar. Nefndin telur brýnt að nota
þessi tímamót Sauðárkróks sem framund-
an eru til þess að auka styrk bæjarins í
því ört vaxandi samkeþþnisþjóðfélagi
sem við búum við. Því verður tímabilið
frá júlí 1996 fram í júlí 1997 eins konar
átaksár. Litið verði yfir farinn veg og um
leið horft fram á veginn, “á fortíð til
framtíðar” og innviðir bæjarins verði
skoðaðir og styrktir.
Ræðuklúbbur Sauðárkróks
Á árunum 1894 til 1902 var starfandi á Króknum Ræðuklúbbur Sauðárkróks.
Klúbbnum var ætlað að “efla félagsskaþ, vekja áhuga á ýmsum málum, æfa
menn við ræðuhöld og stytta mönnum stundir í vetrarkyrrðinni. Vér ætlumst til
að rætt verði ýmislegt sem oss sérstaklega varðar, máske einhver landsmál, fyrir-
lestrar fluttir og ýmislegt annað, sem andinn kynni að blása mönnum í brjóst”.
Lengi vel var saga Ræðuklúbbsins týnd og mönnum hulin. En laust fyrir 1980
er gamla hafnarhúsið var rifið fannst fundargerðabók klúbbsins. Bókin er ómet-
anleg og ákaflega skemmtileg heimild um sögu Sauðárkróks. Hún sýnir glöggt
hvaða málefni voru efst á baugi á Króknum laust fyrir og um aldamótin, einmitt
þegar bærinn er að mótast. Afmælisnefndin hefur í hyggju að gefa fundargerða-
bókina út til þess að sem flestum gefist kostur á að kynna sér þennan merkilega
klúbb og jafnframt að fræðast um sögu bæjarins.
Það er hugmynd afmælisnefndar Sauðárkróks að endurvekja Ræðuklúbbinn
hið fyrsta og að starfsemi hans verði undir uppainalegum formerkjum. Þannig
að Ræðuklúbburinn verði vettvangur umræðu og fyrirlestra sem tengjast þátíð,
nútíð og framtíð Sauðárkróks.
Með því að skoða þátíðina verði sóttur
kraftur og þor til þess að horfa til fram-
tíðar. Uþþhaf og saga bæjarins er sá
grunnur er bæjarlífið byggir á. Því er
nauðsynlegt að bæjarbúar þekki söguna
sína og hafi aðgang að henni. Afmælis-
nefndin hyggst því leggja fram tillögur er
stuðla að því að varðveisla þess sem
gamalt er verði eflt til muna, gamla bæn-
um komið í betra horf og að gert verði
átak í safnamálum bæjarins. Ljóst er að
til að svo verði þarf nefndin að leita til
bæjarbúa eftir minjum og uþþlýsingum
er gefa okkur mynd af gamalli tíð á
Sauðárkróki.
Þá mun nefndin leggja til að átak verði
gert í umhverfismálum og fegrun bæjarins
og væntir nefndin þess aö einstaklingar
og fyrirtæki sýni þar samhug í verki. Af-
mælisnefndin hvetur félagasamtök í bæn-
um til að taka þátt í afmælis- og átaksár-
inu og að þau standi fyrir öflugri starfsemi
á árinu. Lokahnykkur afmælisársins verð-
ur í júlí 1997 og verður hann tekinn með
trukki og dýfu. Afmælisnefndin mun í
júní 1996 gefa út sérstakt dagtal með
þeim atburðum er verða á Króknum á af-
mælis- og átaksárinu.
Til þess að hrinda megi hugmyndum
afmælisnefndar í framkvæmd er ljóst að til
verður að koma öflugt samstarf við bæjar-
nefndir, fyrirtæki og félagasamtök. Af-
mælisnefndin mun því leita eftir samstarfi
við þessa aðila Framkvæmdin veltur því
að stærstum hluta á atorku nefndanna, fé-
laganna og fyrirtækjanna. Afmælisnefnd-
in væntir góðs samstarfs við bæjarbúa og
samstöðu þeirra í milli. Að afmælis- og
átaksárið verði því sameiginlegt verkefni
okkar allra og samtaka munum við byggja
bæinn okkar þannig, að framtíðin eigi vís-
an og góðan samastað á Sauðárkróki, í
öflugum skagfirskum bæ.
Afmælisnefnd Sauðárkróks.
1
i
i
i
I
I
i
I
i
i
I
0
MBJBJBJBJBJBJBJBMBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBlBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBJBJBlBJBJBJBlBJBfBfBJBJBMBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBJBJBfBJBJBJBJBJBJBJBMBfBJBJBJBJBlBJBJBlBJBJBJ|0