Feykir


Feykir - 17.01.1996, Qupperneq 5

Feykir - 17.01.1996, Qupperneq 5
2/1996 FEYKIR5 0 I 1 I I 1 I I i i I i i 1 i i i I i i i I 1 i i 1 i i i i i i I Afmælisár á Sauðárkróki í ár og á næsta ári verða merk tíma- mót í sögu Sauðárkróks. Af því tilefni hefur bæjarstjórn samþykkt að tímabilið frá júlí 1996 fram í júlí 1997 verði nokk- urs konar afmælis- og átaksár á Sauðár- króki. Fyrir baráttu Skagfirskra bænda löggilti Friðrik sjöundi Danakonungur verslunar- stað á Sauðárkróki árið 1857. Sömuleiðis var það kaþþsmál fyrir Skagfirska bænd- ur að varanleg byggð risi á Sauðárkróki. Peim varð loks að ósk sinni árið 1871 er Árni klénsmiður Árnason reisti sér hús á Sauðárkróki, þar sem nú er Lindargata 7. Par með hófst byggð á Sauðárkróki. Byggðin á Sauðárkróki óx hratt og alda- mótaárið var íbúafjöldinn kominn yfir 400. Þessi ört vaxandi byggð sem Sauð- árkrókur var kallaði á ýmsar fram- kvæmdir sem urðu til þess að skerþa skilin á milli þéttbýlisins og sveitarinnar innan Sauðárhreþþs. Því fór svo að árið 1907 var Sauðárhreþþi skiþt uþþ í Skarðs- hreþþ og Sauðárkrókshreþþ. Áfram hélt byggðin á Sauðárkróki að vaxa og dafna og loks árið 1947 fékk Sauðárkrókur kauþstaðarréttindi. Þá voru íbúar bæjar- ins 983. Þessi sögulega yfirreið segir okkur að nú í ár eru liðin 125 ár frá því að byggð hófst á Sauðárkróki og að árið 1997 eru liðin 140 ár frá því að Sauðárkrókur varð verslunarstaður, 90 ár frá því að Sauðár- krókur varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár frá því að Sauðárkrókur varð kauþstaður. Auk þessa eiga mörg félög í bænum stórafmæli á J^essu tímabili. Bæjarstjórn skipaði síðastliðið sumar sérstaka afmælisnefnd til að finna grund- völl fyrir afmælishaldið. í nefndinni eru; Árni Ragnarsson, Brynjar Pálsson, Elsa Jónsdóttir, Guðmundur Guðmundsson og Ómar Bragi Stefánsson. Nefndin réði sér starfsmann í hálft starf, sem er Páli Brynjarsson. Nefndin hefur komið sér saman um meginviðhorf til afmælishaldsins og á þeim grundvelli byggjast hugmyndir hennar. Nefndin telur brýnt að nota þessi tímamót Sauðárkróks sem framund- an eru til þess að auka styrk bæjarins í því ört vaxandi samkeþþnisþjóðfélagi sem við búum við. Því verður tímabilið frá júlí 1996 fram í júlí 1997 eins konar átaksár. Litið verði yfir farinn veg og um leið horft fram á veginn, “á fortíð til framtíðar” og innviðir bæjarins verði skoðaðir og styrktir. Ræðuklúbbur Sauðárkróks Á árunum 1894 til 1902 var starfandi á Króknum Ræðuklúbbur Sauðárkróks. Klúbbnum var ætlað að “efla félagsskaþ, vekja áhuga á ýmsum málum, æfa menn við ræðuhöld og stytta mönnum stundir í vetrarkyrrðinni. Vér ætlumst til að rætt verði ýmislegt sem oss sérstaklega varðar, máske einhver landsmál, fyrir- lestrar fluttir og ýmislegt annað, sem andinn kynni að blása mönnum í brjóst”. Lengi vel var saga Ræðuklúbbsins týnd og mönnum hulin. En laust fyrir 1980 er gamla hafnarhúsið var rifið fannst fundargerðabók klúbbsins. Bókin er ómet- anleg og ákaflega skemmtileg heimild um sögu Sauðárkróks. Hún sýnir glöggt hvaða málefni voru efst á baugi á Króknum laust fyrir og um aldamótin, einmitt þegar bærinn er að mótast. Afmælisnefndin hefur í hyggju að gefa fundargerða- bókina út til þess að sem flestum gefist kostur á að kynna sér þennan merkilega klúbb og jafnframt að fræðast um sögu bæjarins. Það er hugmynd afmælisnefndar Sauðárkróks að endurvekja Ræðuklúbbinn hið fyrsta og að starfsemi hans verði undir uppainalegum formerkjum. Þannig að Ræðuklúbburinn verði vettvangur umræðu og fyrirlestra sem tengjast þátíð, nútíð og framtíð Sauðárkróks. Með því að skoða þátíðina verði sóttur kraftur og þor til þess að horfa til fram- tíðar. Uþþhaf og saga bæjarins er sá grunnur er bæjarlífið byggir á. Því er nauðsynlegt að bæjarbúar þekki söguna sína og hafi aðgang að henni. Afmælis- nefndin hyggst því leggja fram tillögur er stuðla að því að varðveisla þess sem gamalt er verði eflt til muna, gamla bæn- um komið í betra horf og að gert verði átak í safnamálum bæjarins. Ljóst er að til að svo verði þarf nefndin að leita til bæjarbúa eftir minjum og uþþlýsingum er gefa okkur mynd af gamalli tíð á Sauðárkróki. Þá mun nefndin leggja til að átak verði gert í umhverfismálum og fegrun bæjarins og væntir nefndin þess aö einstaklingar og fyrirtæki sýni þar samhug í verki. Af- mælisnefndin hvetur félagasamtök í bæn- um til að taka þátt í afmælis- og átaksár- inu og að þau standi fyrir öflugri starfsemi á árinu. Lokahnykkur afmælisársins verð- ur í júlí 1997 og verður hann tekinn með trukki og dýfu. Afmælisnefndin mun í júní 1996 gefa út sérstakt dagtal með þeim atburðum er verða á Króknum á af- mælis- og átaksárinu. Til þess að hrinda megi hugmyndum afmælisnefndar í framkvæmd er ljóst að til verður að koma öflugt samstarf við bæjar- nefndir, fyrirtæki og félagasamtök. Af- mælisnefndin mun því leita eftir samstarfi við þessa aðila Framkvæmdin veltur því að stærstum hluta á atorku nefndanna, fé- laganna og fyrirtækjanna. Afmælisnefnd- in væntir góðs samstarfs við bæjarbúa og samstöðu þeirra í milli. Að afmælis- og átaksárið verði því sameiginlegt verkefni okkar allra og samtaka munum við byggja bæinn okkar þannig, að framtíðin eigi vís- an og góðan samastað á Sauðárkróki, í öflugum skagfirskum bæ. Afmælisnefnd Sauðárkróks. 1 i i i I I i I i i I 0 MBJBJBJBJBJBJBJBMBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBlBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBJBJBlBJBJBJBlBJBfBfBJBJBMBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBJBlBJBJBJBfBJBJBJBJBJBJBJBMBfBJBJBJBJBlBJBJBlBJBJBJ|0

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.