Feykir - 17.01.1996, Qupperneq 7
2/1996 FEYKIR7
Jón Arnar með þakið borð bikara og viðurkenninga og Páll Ragnarsson formaður Tinda-
stóls í ræðustól.
Heimaaðilar heiðra Jón Arnar
Jón Arnar Magnússon íþrótta-
maður ársins hefur verið út-
nefndur bæði íþróttamaður
Tindastóls og íþróttamaður
Sauðárkróks, en þetta er í fyrsta
sinn sem íþróttamaður Sauð-
árkróks er útnefhdur og verð-
ur svo ár hvert í framtíðinni.
Þetta var tilkynnt í samsæti
sem haldið var íþróttamanni
ársins til heiðurs af íþróttaráði
og bæjarstjórn Sauðárkróks sl.
laugardag. Bæjarstjórn Sauð-
árkróks heiðraði iþróttamann
ársins með því því að gefa hon-
um stangarstökksstöng og veita
honum peningaverðlaun. Þá
hlaut Gísli Sigurðsson þjálfari
mikið lof fyrir sinn þátt í þeim
frábæra árangri sem Jón Arn-
ar hefur náð.
Mörg ávörp voru flutt í sam-
sætinu og Jón Arnar og Gísli
þjálfari hans voru heiðraðir með
blómum og gjöfum. Af hálfu
Sauóárkróksbæjar tóku til máls
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri, Steinunn Hjartardóttir for-
seti bæjarstjórnar, Hilmir Jó-
hannesson formaður íþróttaráós
og Páll Kolbeinsson íþróttafull-
trúi. Helga Þórðardóttir fulltrúi
Ungmennasambands Skagafjarð-
ar og Páll Ragnarsson formaóur
Tindastóls tóku einnig til máls.
Páll vék m.a. í máli sínu að sér-
stöðu Jóns Amars sem íþrótta-
manns, en hún felst í því að hann
gerir sér að góðu þá aðstöðu sem
fyrir hendi er og er ekkert að
væla yfir því þótt ýmislegt sé
ekki til staðar sem afreksmenn
gera jafiian kröfur um. Jón nýtir
sér íþróttamannvirkin í bænum
en auk þess brúkar hann náttúr-
lega leikvanga, eins og Ld. Borg-
arsandinn, sem afreksmaðurinn
hefúr sagt að sé besta æfingaað-
staða i heimi.
Allir luku ræóumenn Iofsoröi
á þá góðu kynningu sem Jón
Arnar veitir Sauðárkróki og
Skagafirði. Iþróttamaður ársins
þakkaði fyrir sig og upplýsti
samkomugesti um verkefni þau
sem framundan em á árinu, en
þar ber hæst þátttakan á Olymp-
íuleikunum í Atlanta í Bandaríkj-
unum um mitt sumar.
Bændur misánægðir með
beitarkönnunina
„I»að er búið að klúðra málinu
og ég tel þetta forkastanleg
vinnubrögð hvernig að þessu
mati var staðið. Það er ekkert
nema gott eitt um það að segja
að fylgst sé með beit og við
bændur erum mjög hlynntir
að það sé gert, en það verður
þá að gera það á þann hátt að
gagn sé að. Hér um slóðir hef-
ur enginn orðið var við þenn-
an mann sem sagt er að hafi
farið hér um og skoðað jarðir
og menn hlæja að þessu. Eg
hef talað við nokkra sem finnst
lítið um þessa skoðun. Ég er
Ld. ansi hræddur um að hann
hafi ekki skoðað Goðdaladal-
inn sem er stór hluti beitilands
þessarar jarðar“, segir Borgar
Símonarson bóndi í Goðdöl-
um.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landgræðslunni íýlgdi aðili frá
sveitarstjóm skoðunarmanni svo
að tryggt væri að skráð væri hjá
réttum aðila.
Borgar í Goðdölum er einn
þeirra bænda sem ekki er sáttur
vió könnun á ástandi hrossahaga
sem Landgræðsla ríkisins stóð
fyrir ásamt fleiri aðilum, en nið-
urstöður þeirrar könnunar birtust
í Feyki fyrir skömmu, og hafa
síðan verið mikið í fréttum.
Skagafjörður kom sýnu verst
ftmm sýslna út úr þessari könn-
un.
Borgar segir að það segi sig
alveg sjált að sé sjónmati beitt
þurfi að fara um allar jaröimar til
að fá yfirsýn um beitina. Hann
segir bændur óhressa með það
hvemig að þessu var staðið, með
hótunarbréfi að ofan, frá Land-
græðslunni, og komið hafi verið
að bændum að óvömm, því eng-
inn þama um slóðir hafi orðió
þessa skoðunarmanns var.
Jóhannes Ríkharðsson ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Skagafjarðar segir bændur mis-
ánægða með nióurstöóur beitar-
könnunarinnar. Sér virðist þó
sem mesti urgurinn sé út af bréfi
ffá landgræðslustjóra, sem sé of
almennt, að því leyti að ofbeitin
sé einungis flokkuð í tvo flokka.
Bændum finnist það hart aö vera
flokkaóir með ofbeitarmönnum,
þó einungis eitt lítið hungurhólf
finnistájörðinni.
I bréfi þessu er farið yfir til-
gang könnunarinnar, og efhisat-
riði varðandi matið, sem greint
var frá í frétt Feykis í síðasta
blaði. í lok bréfsins segir: „Við
viljum því með bréfi þessu beina
þeim vinsamlegu tilmælum til
þín að komið verði í veg fyrir of-
beit á hrossahögum þínum í
framtíðinni. Starfsmenn stofnun-
arinnar og hlutaðeigandi búnaó-
arsambands em fúsir til að veita
eftir föngum ráðgjöf um úrbæt-
ur. Hvorki þú sem umráðamaður
lands né Landgræðslan geta
unað við núverandi ástand".
Okeypissmáar
Til sölu!
Til sölu Lada jeppi árgerð 1987,
ekinn 80 þúsund km. Upplýs-
ingarí síma 453 6519.
Til sölu ljósabekkur með 200 klst.
pemm. Verð 65 þús. Upplýsingar
í síma 453 6034.
Hlutir óskast!
Hestamenn! Mig vantar einn bás
fljótlega og jafnvel annan í apríl.
A fóður og er vön hirðingu. Upp-
lýsingar í síma 453 6125.
Þeir sem eiga í fómm sínum
myndir frá byggingu Göngu-
skarðsárvirkjunar em vinsam-
legast beðnir að hafa samband
við Jóhann í síma 453 5280 vs.
og 453 5780 hs.
Mannfagnaðir
Aðalfundur knattspymudeildar
Tindastóls verður haldinn í
kennslustofu íþróttahússins í
kvöld, miðvikudaginn 17.
janúar, kl. 20,00.
Stjórnin.
Húsnæði!
Óskum eftir 3-4 herbergja íbúð
til leigu á Sauðárkróki. Upp-
lýsingar í síma 453 6293 hs. og
453 5966 vs. (Ingunn).
Ibúð til leigu í nágrenni Sauðár-
króks, fyrir sanngjamt gjald.
Upplýsingar í síma 453 5558.
Góðir áskrifendur!
fyrir áskiiftargjöldunum
Frá Gagnfræðaskóla
Sauðárkróks
Vegna bamsburðarleyfis vantar kennara
til kennslu í 6. bekk o.fl. frá 1. febrúar nk.
og út þetta skólaár.
Upplýsingar gefa: Bjöm Sigurbjömsson
skólastjóri í síma 453 5382 eóa hs. 453
6622, og Oskar Bjömsson
aðstoðarskólastjóri í síma 453 5385 eöa
hs. 453 5745.
Skátaskáli Eilífsbúa við Brekku:
Brotist inn og
stolið miklum
verðmætum
Þegar hópur unglinga úr
skátafélaginu Eilífsbúum á
Sauðárkróki kom í skála
félagsins í landi Brekku ofan
Varmahlíðar um helgina,
varð þess vart að ýmsa hluti
vantaði sem þar áttu að
vera. Þegar málið var kann-
að frekar kom í ljós að
heilmiklu dóti hefur verið
stolið úr skálanum nú ný-
verið og að mati Björns Sig-
hvatssonar formanns skáta-
félagsins er andvirði þessa
hluta á bilinu 200-300
þúsund.
„Maður er náttúrlega sár og
svekktur og þetta er mikið
kjaftshögg fyrir ekki öflugra
félag“, segir Bjöm. Þjófamir
höfðu á brott meó sér tvo
gasofna og kúta þeim tengda,
gaseldavél, 12 ullarvoðir og
tvær dýnur, gasljós og kút
með því, verkfærakistu fulla
af vericfæmm og fleira smádóL
Bjöm segir að greinilegt sé
að farið hefði verið inn um
glugga á skálanum, hann
skrúfaður upp og snyrtilega
gengið þarna um, því þegar
krakkarnir komu frameftir
hefðu þau í fyrstu ekki áttað
sig á hvað hefói gerst, því
engin sjánanleg merki voru
þess að brotist hefði verið inn.
Lögrelgunni hefur verið
falið málið til rannsóknar.