Feykir


Feykir - 17.01.1996, Síða 7

Feykir - 17.01.1996, Síða 7
2/1996 FEYKIR7 Jón Arnar með þakið borð bikara og viðurkenninga og Páll Ragnarsson formaður Tinda- stóls í ræðustól. Heimaaðilar heiðra Jón Arnar Jón Arnar Magnússon íþrótta- maður ársins hefur verið út- nefndur bæði íþróttamaður Tindastóls og íþróttamaður Sauðárkróks, en þetta er í fyrsta sinn sem íþróttamaður Sauð- árkróks er útnefhdur og verð- ur svo ár hvert í framtíðinni. Þetta var tilkynnt í samsæti sem haldið var íþróttamanni ársins til heiðurs af íþróttaráði og bæjarstjórn Sauðárkróks sl. laugardag. Bæjarstjórn Sauð- árkróks heiðraði iþróttamann ársins með því því að gefa hon- um stangarstökksstöng og veita honum peningaverðlaun. Þá hlaut Gísli Sigurðsson þjálfari mikið lof fyrir sinn þátt í þeim frábæra árangri sem Jón Arn- ar hefur náð. Mörg ávörp voru flutt í sam- sætinu og Jón Arnar og Gísli þjálfari hans voru heiðraðir með blómum og gjöfum. Af hálfu Sauóárkróksbæjar tóku til máls Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar- stjóri, Steinunn Hjartardóttir for- seti bæjarstjórnar, Hilmir Jó- hannesson formaður íþróttaráós og Páll Kolbeinsson íþróttafull- trúi. Helga Þórðardóttir fulltrúi Ungmennasambands Skagafjarð- ar og Páll Ragnarsson formaóur Tindastóls tóku einnig til máls. Páll vék m.a. í máli sínu að sér- stöðu Jóns Amars sem íþrótta- manns, en hún felst í því að hann gerir sér að góðu þá aðstöðu sem fyrir hendi er og er ekkert að væla yfir því þótt ýmislegt sé ekki til staðar sem afreksmenn gera jafiian kröfur um. Jón nýtir sér íþróttamannvirkin í bænum en auk þess brúkar hann náttúr- lega leikvanga, eins og Ld. Borg- arsandinn, sem afreksmaðurinn hefúr sagt að sé besta æfingaað- staða i heimi. Allir luku ræóumenn Iofsoröi á þá góðu kynningu sem Jón Arnar veitir Sauðárkróki og Skagafirði. Iþróttamaður ársins þakkaði fyrir sig og upplýsti samkomugesti um verkefni þau sem framundan em á árinu, en þar ber hæst þátttakan á Olymp- íuleikunum í Atlanta í Bandaríkj- unum um mitt sumar. Bændur misánægðir með beitarkönnunina „I»að er búið að klúðra málinu og ég tel þetta forkastanleg vinnubrögð hvernig að þessu mati var staðið. Það er ekkert nema gott eitt um það að segja að fylgst sé með beit og við bændur erum mjög hlynntir að það sé gert, en það verður þá að gera það á þann hátt að gagn sé að. Hér um slóðir hef- ur enginn orðið var við þenn- an mann sem sagt er að hafi farið hér um og skoðað jarðir og menn hlæja að þessu. Eg hef talað við nokkra sem finnst lítið um þessa skoðun. Ég er Ld. ansi hræddur um að hann hafi ekki skoðað Goðdaladal- inn sem er stór hluti beitilands þessarar jarðar“, segir Borgar Símonarson bóndi í Goðdöl- um. Samkvæmt upplýsingum frá Landgræðslunni íýlgdi aðili frá sveitarstjóm skoðunarmanni svo að tryggt væri að skráð væri hjá réttum aðila. Borgar í Goðdölum er einn þeirra bænda sem ekki er sáttur vió könnun á ástandi hrossahaga sem Landgræðsla ríkisins stóð fyrir ásamt fleiri aðilum, en nið- urstöður þeirrar könnunar birtust í Feyki fyrir skömmu, og hafa síðan verið mikið í fréttum. Skagafjörður kom sýnu verst ftmm sýslna út úr þessari könn- un. Borgar segir að það segi sig alveg sjált að sé sjónmati beitt þurfi að fara um allar jaröimar til að fá yfirsýn um beitina. Hann segir bændur óhressa með það hvemig að þessu var staðið, með hótunarbréfi að ofan, frá Land- græðslunni, og komið hafi verið að bændum að óvömm, því eng- inn þama um slóðir hafi orðió þessa skoðunarmanns var. Jóhannes Ríkharðsson ráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Skagafjarðar segir bændur mis- ánægða með nióurstöóur beitar- könnunarinnar. Sér virðist þó sem mesti urgurinn sé út af bréfi ffá landgræðslustjóra, sem sé of almennt, að því leyti að ofbeitin sé einungis flokkuð í tvo flokka. Bændum finnist það hart aö vera flokkaóir með ofbeitarmönnum, þó einungis eitt lítið hungurhólf finnistájörðinni. I bréfi þessu er farið yfir til- gang könnunarinnar, og efhisat- riði varðandi matið, sem greint var frá í frétt Feykis í síðasta blaði. í lok bréfsins segir: „Við viljum því með bréfi þessu beina þeim vinsamlegu tilmælum til þín að komið verði í veg fyrir of- beit á hrossahögum þínum í framtíðinni. Starfsmenn stofnun- arinnar og hlutaðeigandi búnaó- arsambands em fúsir til að veita eftir föngum ráðgjöf um úrbæt- ur. Hvorki þú sem umráðamaður lands né Landgræðslan geta unað við núverandi ástand". Okeypissmáar Til sölu! Til sölu Lada jeppi árgerð 1987, ekinn 80 þúsund km. Upplýs- ingarí síma 453 6519. Til sölu ljósabekkur með 200 klst. pemm. Verð 65 þús. Upplýsingar í síma 453 6034. Hlutir óskast! Hestamenn! Mig vantar einn bás fljótlega og jafnvel annan í apríl. A fóður og er vön hirðingu. Upp- lýsingar í síma 453 6125. Þeir sem eiga í fómm sínum myndir frá byggingu Göngu- skarðsárvirkjunar em vinsam- legast beðnir að hafa samband við Jóhann í síma 453 5280 vs. og 453 5780 hs. Mannfagnaðir Aðalfundur knattspymudeildar Tindastóls verður haldinn í kennslustofu íþróttahússins í kvöld, miðvikudaginn 17. janúar, kl. 20,00. Stjórnin. Húsnæði! Óskum eftir 3-4 herbergja íbúð til leigu á Sauðárkróki. Upp- lýsingar í síma 453 6293 hs. og 453 5966 vs. (Ingunn). Ibúð til leigu í nágrenni Sauðár- króks, fyrir sanngjamt gjald. Upplýsingar í síma 453 5558. Góðir áskrifendur! fyrir áskiiftargjöldunum Frá Gagnfræðaskóla Sauðárkróks Vegna bamsburðarleyfis vantar kennara til kennslu í 6. bekk o.fl. frá 1. febrúar nk. og út þetta skólaár. Upplýsingar gefa: Bjöm Sigurbjömsson skólastjóri í síma 453 5382 eóa hs. 453 6622, og Oskar Bjömsson aðstoðarskólastjóri í síma 453 5385 eöa hs. 453 5745. Skátaskáli Eilífsbúa við Brekku: Brotist inn og stolið miklum verðmætum Þegar hópur unglinga úr skátafélaginu Eilífsbúum á Sauðárkróki kom í skála félagsins í landi Brekku ofan Varmahlíðar um helgina, varð þess vart að ýmsa hluti vantaði sem þar áttu að vera. Þegar málið var kann- að frekar kom í ljós að heilmiklu dóti hefur verið stolið úr skálanum nú ný- verið og að mati Björns Sig- hvatssonar formanns skáta- félagsins er andvirði þessa hluta á bilinu 200-300 þúsund. „Maður er náttúrlega sár og svekktur og þetta er mikið kjaftshögg fyrir ekki öflugra félag“, segir Bjöm. Þjófamir höfðu á brott meó sér tvo gasofna og kúta þeim tengda, gaseldavél, 12 ullarvoðir og tvær dýnur, gasljós og kút með því, verkfærakistu fulla af vericfæmm og fleira smádóL Bjöm segir að greinilegt sé að farið hefði verið inn um glugga á skálanum, hann skrúfaður upp og snyrtilega gengið þarna um, því þegar krakkarnir komu frameftir hefðu þau í fyrstu ekki áttað sig á hvað hefói gerst, því engin sjánanleg merki voru þess að brotist hefði verið inn. Lögrelgunni hefur verið falið málið til rannsóknar.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.