Feykir


Feykir - 17.01.1996, Page 8

Feykir - 17.01.1996, Page 8
17. janúar 1996, 2. tölublað 16. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Stefan Guðmundsson alþingismaöur var fundarstjóri á fundinum á Sauðárkróki, honum á vinstri hönd situr Ami Magnússon aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Páll Pétursson alþingismaður sem einnig var á fundinum. Heimsókn iðnaðarráðherra: „Gróskan í fyrirtækjunum kom mér þægilega á óvart" Sparnaðarráðstafanir hjá Ríkisútvarpinu: Lokar skrifstofunni á Sauðárkróki Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra gekkst fyrir fundum á Blönduósi og Sauðárkróki fyrir helgina. Fundirnir voru haldnir með yfirskriftina átak í atvinnu- málum og meginþema fund- arins var kynning á þeim möguleikum sem íslensk fyr- irtæki eiga eftir inngönguna í EES. Ráðneytið hefiir nýlega gefið út upplýsingarit sem heitir „Evrópuverkefni á sviði lítilla og meðalstórra fyrirtækja“. Þar eru þessum möguleikum gerð góð skil og gerði starfsmaður ráðuneyt- isins í þessum málum Björn Ingi Stefánsson grein fyrir þeim, auk þess sem ráðherr- ann og aðstoöarmaður hans Arni Magnússon svöruðu ýmsum þeim fyrirspurnum sem til þeirra var beint. Blönduósfundurinn var á fimmtudagskvöld í Sveitasetr- inu og var þátttaka þar mjög góð og áhugi heimamanna greinilega mikill fyrir þessum málum. Iönaöanráðherra heim- sótti m.a. ein 10 fyrirtæki á Blönduósi og sagöi hann eftir þá heimsókn að þaö heföi komið sér þægilega á óvart sú gróska sem þar væri, og taldi að nokkur fyrirtækjanna ættu ágæta mögu- leika til frekari framþróunar. Blaöamaður Feykis var staddur á Sauðárkróksfundin- um sem haldinn var á Kaffi Krók í hádeginu á föstudag. Þátttaka í fundinum var mjög góö. Fundarmenn voru um áttatíu talsins og sýnir þetta þann áhuga sem er fyrir at- vinnumálum og væntingum sem menn bera til atvinnusköp- unar á næstu ámm. Finnur Ing- ólfsson iðnaðarráöherra upp- lýsti það þó í upphafi að ekki væri að vænta neinna „patent- lausna“ á fundum sem þessum, en oró væru til alls fyrst. Hann brýndi fyrir forráðamönnum fyrirtækja og jafnvel einstak- lingum á svæðinu að reyna að nýta sér þá möguleika sem Evrópuverkefni lítilla og með- alstórra fyrirtækja fælu í sér. Á þessu sviði yrðu flest störfm til og þama væru hugmyndimar og fjármagnið. Dæmi væri til þess að þessi eins manns fyrir- tæki hér í héraði hefðu nýtt sér þá möguleika sem þama em. Hér á ráðherra við hlýsjávar- eldið hjá Máka hf, en starfs- mönnum þar hefur þegar fjölg- að. Á fundinum barst í tal sú þróun sem orðið hefði í stór- iðjumálum á undanförnum mánuðum, og sá ótti sem lands- byggðarmenn margir bæru í brjósti um að byggðaröskunin mundi halda áfram í kjölfar þess að stóriðjuverin mundu öll rísa á suðvesturhominu. Svar Finns Ingólfssonar ráðherra við þessu var að íslendingar myndu aldrei byggja atvinnulíf sitt á stóriðju. Vaxtarbroddur- inn yrði á öðmm sviðum, og stóriðjan aðeins viðbót við það. Páll Pétursson félagsmála- ráðherra sem einnig var á fund- inum upplýsti að hann hefði ákveðið að verða við ósk stjómar Sambands sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra varð- andi samvinnu við myndun starfshóps um úrbætur í at- vinnumálum kjördæmisins. Vegna sparnaðarráðstafana í rekstri Ríkisútvarpsins hefur starf fréttamanns á Sauðár- króki verið lagt niður og skrif- stofunni lokað. Ríkisútvarpið opnaði skrifstofuna á Sauðár- króki síðsumars 1989, en þá skömmu áður hafði María Björk Ingvadóttir verið ráðinn í hálfa stöðu fréttamanns sem hún hefur gegnt fram á þenn- an dag. María mun halda áfram að starfa fyrir Ríkisút- varpið sem fréttaritari. Forráöamenn Sauðárkróks em óhressir með það að Ríkisút- varpið skuli leggja skrifstofuna á Sauðárkróki niður, enda var lögð mikil áhersla á að fá fréttamann til starfa á sínum tíma, t.d. útveg- aði Sauðárkróksbær Ríkisút- varpinu húsnæði undir skrifstof- una fyrsta árið. „Við teljum það hagsmunamál aó fféttaflutningur frá okkur eigi greiða leið inn í fjölmiðlana. Við munum kanna hvort að möguleiki sé á leiðrétt- ingu á þessu, og unum því illa að verið sé að loka skrifstofum og leggja niður störf á sama tíma og Heildaraflaverðmæti þeirra þriggja skipa Fiskiðjunnar Skagfirðings sem seldu á er- lendum mörkuöum nú í upp- hafi árs er nánast það sama og í fyrra. Núna seldu skipin fyrir 82,1 milljón, en í fyrra var það 82,4 milljónir, að frá- dreginni sölu Drangeyjar sem seldi fyrir á 22. milljón. Hegranes seldi í síðustu viku 133 tonn af karfa í Bremerhafen fyrir 20,5 milljónir, meðalverð er 154 krónur, sem er gott verð. Áóur var Skafti búinn að selja fyrir 24,2 milljónir í Hull og Skagfirðingur fyrir 37,4 millj. í Bremerhafen, en það er mesta við crum aö berjast fyrir því að fá hingað aukna opinbera þjón- ustu“, segir Steinunn Hjartar- dóttir forseti bæjarstjómar Sauð- árkróks. Útvarpi Norðurlands er gert að draga saman um 4 milljónir í rekstri sínum á þessu ári. Árleg fjárveiting hefúr minnkað úr 31 milljón í 27. Að sögn Kristjáns Sigurjónssonar, sem gegnir starfi forstöðumanns í leyfi Arnars Páls Haukssonar, verður auk lokunar skrifstofunnar á Sauðár- króki fækkaó störfum í tækni- stjóm úr tveimur í eitt og hálft, og unnið er að gerð frekari spamaðaráætlana. Á rúmum tveimur ámm hefur störfum við fréttamiðla á Sauð- árkróki fækkaó úr tveimur og hálfu í eitt. Fyrst lokaði Dagur skrifstofu sinni og nú Ríkisút- varpið. Að mati útgefenda Feyk- is og væntanlegra margra fleiri sem vilja sjá grósku í fféttamiól- un af svæðinu, er þetta óheilla- þróun sem vonandi á eftir að snúast við að nýju ffekar en hitt. aflaverðmæti sem nokkurt skag- firskt skip hefur selt fyrir á er- lendum mörkuðum, og kemur næst þeirri sölu sem sama skip gerði á sama tíma fyrir nokkr- um árum, þá sem Vigri RE. Jólasiglingar togaranna: Mjög svipðuð útkoma og í fyrra

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.