Feykir - 17.01.1996, Síða 8
17. janúar 1996, 2. tölublað 16. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Stefan Guðmundsson alþingismaöur var fundarstjóri á fundinum á Sauðárkróki, honum á vinstri
hönd situr Ami Magnússon aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra
og Páll Pétursson alþingismaður sem einnig var á fundinum.
Heimsókn iðnaðarráðherra:
„Gróskan í fyrirtækjunum
kom mér þægilega á óvart"
Sparnaðarráðstafanir hjá Ríkisútvarpinu:
Lokar skrifstofunni
á Sauðárkróki
Finnur Ingólfsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra gekkst
fyrir fundum á Blönduósi og
Sauðárkróki fyrir helgina.
Fundirnir voru haldnir með
yfirskriftina átak í atvinnu-
málum og meginþema fund-
arins var kynning á þeim
möguleikum sem íslensk fyr-
irtæki eiga eftir inngönguna í
EES. Ráðneytið hefiir nýlega
gefið út upplýsingarit sem
heitir „Evrópuverkefni á
sviði lítilla og meðalstórra
fyrirtækja“. Þar eru þessum
möguleikum gerð góð skil og
gerði starfsmaður ráðuneyt-
isins í þessum málum Björn
Ingi Stefánsson grein fyrir
þeim, auk þess sem ráðherr-
ann og aðstoöarmaður hans
Arni Magnússon svöruðu
ýmsum þeim fyrirspurnum
sem til þeirra var beint.
Blönduósfundurinn var á
fimmtudagskvöld í Sveitasetr-
inu og var þátttaka þar mjög
góð og áhugi heimamanna
greinilega mikill fyrir þessum
málum. Iönaöanráðherra heim-
sótti m.a. ein 10 fyrirtæki á
Blönduósi og sagöi hann eftir þá
heimsókn að þaö heföi komið
sér þægilega á óvart sú gróska
sem þar væri, og taldi að nokkur
fyrirtækjanna ættu ágæta mögu-
leika til frekari framþróunar.
Blaöamaður Feykis var
staddur á Sauðárkróksfundin-
um sem haldinn var á Kaffi
Krók í hádeginu á föstudag.
Þátttaka í fundinum var mjög
góö. Fundarmenn voru um
áttatíu talsins og sýnir þetta
þann áhuga sem er fyrir at-
vinnumálum og væntingum
sem menn bera til atvinnusköp-
unar á næstu ámm. Finnur Ing-
ólfsson iðnaðarráöherra upp-
lýsti það þó í upphafi að ekki
væri að vænta neinna „patent-
lausna“ á fundum sem þessum,
en oró væru til alls fyrst. Hann
brýndi fyrir forráðamönnum
fyrirtækja og jafnvel einstak-
lingum á svæðinu að reyna að
nýta sér þá möguleika sem
Evrópuverkefni lítilla og með-
alstórra fyrirtækja fælu í sér. Á
þessu sviði yrðu flest störfm til
og þama væru hugmyndimar
og fjármagnið. Dæmi væri til
þess að þessi eins manns fyrir-
tæki hér í héraði hefðu nýtt sér
þá möguleika sem þama em.
Hér á ráðherra við hlýsjávar-
eldið hjá Máka hf, en starfs-
mönnum þar hefur þegar fjölg-
að.
Á fundinum barst í tal sú
þróun sem orðið hefði í stór-
iðjumálum á undanförnum
mánuðum, og sá ótti sem lands-
byggðarmenn margir bæru í
brjósti um að byggðaröskunin
mundi halda áfram í kjölfar
þess að stóriðjuverin mundu öll
rísa á suðvesturhominu. Svar
Finns Ingólfssonar ráðherra við
þessu var að íslendingar
myndu aldrei byggja atvinnulíf
sitt á stóriðju. Vaxtarbroddur-
inn yrði á öðmm sviðum, og
stóriðjan aðeins viðbót við það.
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra sem einnig var á fund-
inum upplýsti að hann hefði
ákveðið að verða við ósk
stjómar Sambands sveitarfé-
laga á Norðurlandi vestra varð-
andi samvinnu við myndun
starfshóps um úrbætur í at-
vinnumálum kjördæmisins.
Vegna sparnaðarráðstafana í
rekstri Ríkisútvarpsins hefur
starf fréttamanns á Sauðár-
króki verið lagt niður og skrif-
stofunni lokað. Ríkisútvarpið
opnaði skrifstofuna á Sauðár-
króki síðsumars 1989, en þá
skömmu áður hafði María
Björk Ingvadóttir verið ráðinn
í hálfa stöðu fréttamanns sem
hún hefur gegnt fram á þenn-
an dag. María mun halda
áfram að starfa fyrir Ríkisút-
varpið sem fréttaritari.
Forráöamenn Sauðárkróks
em óhressir með það að Ríkisút-
varpið skuli leggja skrifstofuna á
Sauðárkróki niður, enda var lögð
mikil áhersla á að fá fréttamann
til starfa á sínum tíma, t.d. útveg-
aði Sauðárkróksbær Ríkisút-
varpinu húsnæði undir skrifstof-
una fyrsta árið. „Við teljum það
hagsmunamál aó fféttaflutningur
frá okkur eigi greiða leið inn í
fjölmiðlana. Við munum kanna
hvort að möguleiki sé á leiðrétt-
ingu á þessu, og unum því illa að
verið sé að loka skrifstofum og
leggja niður störf á sama tíma og
Heildaraflaverðmæti þeirra
þriggja skipa Fiskiðjunnar
Skagfirðings sem seldu á er-
lendum mörkuöum nú í upp-
hafi árs er nánast það sama og
í fyrra. Núna seldu skipin
fyrir 82,1 milljón, en í fyrra
var það 82,4 milljónir, að frá-
dreginni sölu Drangeyjar sem
seldi fyrir á 22. milljón.
Hegranes seldi í síðustu viku
133 tonn af karfa í Bremerhafen
fyrir 20,5 milljónir, meðalverð
er 154 krónur, sem er gott verð.
Áóur var Skafti búinn að selja
fyrir 24,2 milljónir í Hull og
Skagfirðingur fyrir 37,4 millj. í
Bremerhafen, en það er mesta
við crum aö berjast fyrir því að
fá hingað aukna opinbera þjón-
ustu“, segir Steinunn Hjartar-
dóttir forseti bæjarstjómar Sauð-
árkróks.
Útvarpi Norðurlands er gert
að draga saman um 4 milljónir í
rekstri sínum á þessu ári. Árleg
fjárveiting hefúr minnkað úr 31
milljón í 27. Að sögn Kristjáns
Sigurjónssonar, sem gegnir starfi
forstöðumanns í leyfi Arnars
Páls Haukssonar, verður auk
lokunar skrifstofunnar á Sauðár-
króki fækkaó störfum í tækni-
stjóm úr tveimur í eitt og hálft,
og unnið er að gerð frekari
spamaðaráætlana.
Á rúmum tveimur ámm hefur
störfum við fréttamiðla á Sauð-
árkróki fækkaó úr tveimur og
hálfu í eitt. Fyrst lokaði Dagur
skrifstofu sinni og nú Ríkisút-
varpið. Að mati útgefenda Feyk-
is og væntanlegra margra fleiri
sem vilja sjá grósku í fféttamiól-
un af svæðinu, er þetta óheilla-
þróun sem vonandi á eftir að
snúast við að nýju ffekar en hitt.
aflaverðmæti sem nokkurt skag-
firskt skip hefur selt fyrir á er-
lendum mörkuðum, og kemur
næst þeirri sölu sem sama skip
gerði á sama tíma fyrir nokkr-
um árum, þá sem Vigri RE.
Jólasiglingar togaranna:
Mjög svipðuð
útkoma og í fyrra