Feykir - 02.07.1997, Side 4
6 FEYKIR 24/1997
hagyrðingaþáttur 333
Heilir og sælir lesendur góðir.
Nóg hefur verið af hretum á þessu
vori og er mál að linni. Um eina slíka
sendingu yrkir Kristján Amason á
Skálá svo.
Nú er grátt um grœnan völl,
gnauða áttir kunnar.
Samt við gáttuð erum öll
á öfgum náttúrunnar.
Nóttu gerast einni á
ís ogfreri döggin.
En þetta eru íslensk strá
sem afsér bera höggin.
Blóm á gilsins grœnni tó
geislaylsins bíða.
Mega til að reyna í ró
reglum spilsins hlýða.
Lífið margt þó lúta má,
leikið hart við unga.
Lítið hjarta hœtti að slá
er hretið snart með þunga.
Það er Júlíus Jónsson áður bóndi á
Mosfelli sem er höfundur að næstu
vísum.
Andleg tök um aldahaf
eiga vök í straumum,
fagrar stökurfœðast af
frjálsum vökudraumum.
Þegar eitthvað illa fer
og örðug reynist vakan,
fyllsta unaðfœra mér
fákurinn og stakan.
Tvær vísur koma hér í viðbót sem
ég held að séu einnig eftir Júlíus.
Antia veldi ungmeyjar
oft á kveldin þráum
logar eldur æskunnar
undir feldi gráum.
Seyðir vífið viðmót hlý
víða í stríða leiknum,
þar til lífið endar í
ösku áfífukveiknum.
Er þáttur þessi er í smíðum heyrast
látlausar frásagnir af ráðslagi presta á
prestastefnu. Það mun hafa verið
Bjami frá Gröf sem orti svo eitt sinn er
prestar deildu ákaft í blöðum.
Prestar hafa höndum tveim
hrifsað blaðapennann.
Þeir vita allt um annan heim
enn ekki neitt um þennan.
Önnur prestvísa kemur hér og mun
hún vera efdr gamla Káinn.
Prestinn migfýsir aðfinna,
fara ég œtla til messu.
Mundu nú efiir að minna
mig á að gleyma ekki þessu.
Theódór Gunnlaugsson kenndur
við Bjarmaland mun hafa velt fyrir sér
fortíð og nútíð þegar hann orti svo.
Fyrrum klerkar kunnu að beita
kjamyrðum úrgömlum skrœðum.
Nú er að mestu horfið heita
helvíti úr þeirra rœðum.
Pétur Sigurðsson lengi skósmiður á
Seyðisfirði talar svo til manns sem fest
hafði ráð sitt eins og stundum er sagt.
Það er gott þú giftir þig,
gráta kjaftamellur.
Þetta fannst þeimfyrir sig
fiandi vondur skellur.
Önnur vísa kemur hér sem ég held
að sé einnig eftir Pétur.
Hraustir nóg og mœtir menn
margirdóu ívetur.
Lengi þó mun lifa enn
Leitis Gróu tetur.
Sveitamaður einn sem gerst hafði
bílstjóri í Reykjavík var spurður hvort
ekki væri þægilegt að komast í samband
við konur í slíku starfi. Hann svaraði svo.
Ekki glaður ek minn veg
upp þó stúlkur hirði,
einkum þœr sem eins og ég
ekki eru mikils virði.
Jónas Jónsson kunnur hagyrðingur
í Reykjavík um 1940 yrkir svo um
bónda nokkum sem hann þekkti.
Aldrei Magnús eignast grip
sem er að neinu mcetur.
Hans er allt með sama svip
synir, kýr og dætur.
Tvær vísur koma hér í viðbót eftir
Jónas.
Eina hefég alltafhaft
aðferðina tama.
Þeim sem byrja að brúka kjaft
býð ég upp á sama.
Efmér gerir einhver mein
í orðsins fyllsta máta,
hefég oftast einhvem stein
upp í hann að láta.
Sveinbjöm Bjömsson, sem einnig
mun lengst af sinni ævi hafa verið
búsettur í Reykjavík, yrkir svo.
Tál er selt við tildurs þys
tískumelt og borið.
Flónskan eltirfánýtt glys
fram á veltisporið.
Sveinbjöm leggur okkur einnig til
lokavísuna.
Nóttin lœðist hljóð og hlý
himins upp á salinn,
rökkur slœðum reifar í
rósum skreytta dalinn.
Veriði þar með sæl að sinni.
GuðmundurValtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Frá aðalfundi Memiingarsamtakanna
Neisti vann Hvöt
Tindastóll tapaði stigum á Grenivík
Tindastólsmenn fóru illa að
ráði sínu þegar þeir misstu
unninn leik niður í jafntefli
gegn Magna á Grenivík sl.
föstudagskvöld. Neistamenn
unnu Hvöt 2:1 í baráttuleik á
Hofsósi og KS vann góðan
sigur á Nökkva, 4:0 á Akur-
eyri.
Tindastóll var mun betra lið-
ið gegn Magna á Grenivík en
það dugði ekki til. Tindastóls-
menn léku undan allsterkum
vindi í fyrri hálfleik, en náðu
aðeins að nýta eitt færa sinna er
Kristmar Bjömsson skoraði.
Ingi Þór Rúnarsson bætti öðm
marki við fyrir Tindastól í upp-
hafi seinni hálfleiks. Magna-
mönnum tókst að minnka mun-
inn úr umdeildri vítaspymu og
síðan að jafna nokkm eftir að
venjulegum leiktíma lauk. Mikil
harka var í leiknum, þrem leik-
mönnum vikið af velli og fjöld-
inn allur af gulum spjöldum.
Steinbimi Logasyni var vikið af
velli og tveimur Magnamönn-
um. Sverrir Hákonarson
meiddist illa og er reiknað með
að hann verði frá æfingum og
keppni í nokkrar vikur.
Hvatarmenn komust yfir
snemma leiks gegn Neista á
Hofsósi. Neistamenn vom ekki
með fyrsta korterið og Gísli
Gunnarsson kom Hvöt á bragð-
ið. En heimamenn komust vel
inn í leikinn og ekki leið á
löngu þar til Peter Masrek jafh-
aði leikinn eftir góða sókn. Það
var síðan í upphafi seinni hálf-
leiks sem Jón Bjamason kom
Neistamönnum í 2:1. Neisti
barðist mjög vel í leiknum og
verðskuldaði sigur, þótt jafntefli
hefðu e.t.v. verið sanngjömustu
úrslitin. Hvöt var mun meira
með boltann, en leikur liðsins
var ekki árangursríkur, færin
létu á sér standa.
KS-ingar höfðu algjöra yfir-
burði gegn Nökkva. Hafþór
Kolbeinsson, Ragnar Hauks-
son, Agnar Sveinsson og Gísli
Valsson skomðu.
Næsta umferð Norðurlands-
riðils 3. deildar verður leikin
annað kvöld, fimmtudagskvöld.
Þá verður stórleikur á Siglu-
firði, KS og Tmdastóll, og verð-
ur leikið á grasvellinum við
Hól. Hvöt sækir Nökkva heim
og Neisti Magna.
Tindastóll er enn í efsta sæti,
með 19 stig, KS er með 18,
Hvöt með 9, Neisti 7, Nökkvi 6
og Magni 2.
Aðalfúndur Menor, Menn-
ingarsamtakaNorðlendinga, var
haldinn að Hrafnagilsskóla
Eyjaijarðarsveit laugardaginn
14. júní sl. Samtökin em 15 ára
núna á þessu vori, en þau vom
stofnuð að Stórutjömum S.-
Þing. 18. júm' 1982. f filefni þess
var gestur fundarins Áskell Ein-
arsson fyrrv. framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlend-
inga, en hann var mikill hvata-
maður að stoínun samtakanna.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var í hléi flutt menningar-
dagskrá með blönduðu efni.
Fram kom listafólk úr Eyjafirði.
Ung söngkona Ema Ólafsdóttir
söng nokkur lög við undirleik
Reynis Schiöth. Ólafur Theó-
dórsson las upp. Hjalti Finnsson
og Sigríður Schiöth fluttu ljóð.
Þrír nemendur Tónlistarskóla
Eyjafjarðar komu fram og léku
á píanó og trompet undir stjóm
kennara síns, Guðjóns Pálsson-
ar. Hlaut dagskrá þessi góðar
viðtökur.
í skýrslu formanns kom
fram að Menor stóð fyrir menn-
ingarvökum á Hvammstanga
23. nóvember og á Sauðárkróki
16. mars. Á vökunum var flutt
blönduð dagskrá með þátttöku
heimamanna í Húnavatnssýsl-
um, Skagafirði og Siglufirði,
tónlistaratriði og talað orð. í
tengslum við vökumar voru
settar upp viðamiklar sýningar í
myndlist og handunnum list-
munum af ýmsu tagi. Báðar
vökumar þóttust takast vel. Þá
stóðu samtökin fyrir samkeppni
í ljóðagerð r' fjórða skipti í sam-
vinnu við Dag-Tímann. Um 90
ljóð bámst að þessu sinni efifir
43 höfunda. Verðlaunahafar
vom Erlingur Sigurðarson
menntaskólakennari á Akureyri,
sem hlaut 1. og 2. verðlaun, og
Anna María Þórisdóttir Reykja-
vík sem hlaut 2. verðlaun.
Menor íféttir, fréttablað sam-
takanna, er að koma út þessa
dagana.í því em fféttir af menn-
ingarlífi á Norðurlandi, viðtöl
o.fl. Ritstjóri blaðsins er Þórður
Ingimarsson blm.
Aðalfundurinn samþykkfi
eítírfarandi ályktanin, Aðalfund-
ur Menningarsamtaka Norðlend-
inga (Menor) haldinn að Hrafna-
gilsskóla lýsir andstöðu við tíl-
lögu nefndar á vegum mennta-
málaráðherra, þar sem lagt er tíl
að enska verði fyrsta erlenda
málið í íslenskum gmnnskólum
í stað dönsku eins og verið hef-
ur. Fundurinn telur að vegna
uppmnans sé okkur íslending-
um nauðsyn að efla sem mest
tengslin við frændþjóðimar á
Norðurlöndum í stað þess að
draga úr þeim, eins og fyrr-
nefndar tillögur gætu haft í for
með sér. Fundurinn álítur að
ensk áhrif séu nú þegar orðin
óeðlilega mikil meðal íslenskra
bama og ungmenna, m.a. fyrir
áhrif fjölmiðla.
Þá beinir aðalfundur Menor
því tíl íslenskra sjónvarpsstöðva
að þær auki vægi innlends dag-
skrárefhis í dagskrám sínum ffá
því nú er. Einnig veiði leitað leiða
tíl að auka ffamboð sjónvaipsefn-
is ffá Norðurlöndunum. Þá skor-
ar fundurinn á sjónvarpsstöðv-
amar að draga úr flutningi ofbeld-
ismynda og skylds efnis í dag-
skránni, svo sem kostur er”.
Ólafur Þ. Hallgrímsson sókn-
arprestur á Mælifelli var endur-
kjörinn formaður Menor tíl eins
árs. Úr aðalstjóm áttu að ganga
Helga Erlingsdóttir Landamóts-
seli og Roar Kvam Akureyri,
Helga gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs og í hennar stað var kjör-
in Svanhildur Hermannsdóttir
skólastjóri Bárðardal. Aðal-
stjóm skipa nú auk Ólafs á
Mælifelli: Elínborg Siguigeirs-
dóttir Hvammstanga, Guðrún
Þóranna Jónsdóttír Hvamms-
tanga, Svanhildur Hermanns-
dóttír Bárðardal og Roar Kvam
Akureyri. Roar Kvam hefur
jafnframt verið starfsmaður
samtakanna í hlutastarfi undan-
fama tvo vetur.