Feykir - 02.07.1997, Síða 5
24/1997 11-YKIK 3
Mikið fjölmenni sótti Atvinnu-
lífssýninguna á Hvanunstanga
Það var gestkvæmt á Hvammstanga um
síðustu helgi, en þar var haldin atvinnulífssýning
þar sem um þijátíu fyrirtæki af svæðinu kynntu
framleiðslu sína og afurðir. Talið er að 1500
manns hafí komið á sýninguna á laugardag, þegar
veðurblíða var einstök, og um 1000 á sunnudag.
Að sögn Bjöms Hannessonar framkvæmda-
stjóra sýningarinnar og sumarhátíðarinnar Bjartra
nátta, renndu menn blint í sjóinn með ljölda gesta
á sýninguna og hún hafí heppnast eins vel og
frekast var kostur. „Það var mikið líf héma á
svæðinu og gaman að sjá hvað fólk kunni vel að
meta það sem fyrir augu bar á sýningunni”, sagði
Bjöm.
Þetta var fyrsta sýning sinnar tegundar á
Hvammstanga en ljóst að eftir undirtektunum að
dæma munu ekki mörg ár líða áður en komið
verður upp annarri atvinnulífssýningu.
Frá sýningarbás Staðarskála á sýningunni.
Heilsugæslan var með bás
á sýningunni.
Spari
Ve
Hunav/
Sýningabásar fyrirtækjanna þrjátíu sem þátt tóku í sýning-
unni rúmuðust ágætlega í félagsheimilinu. Myndir/BH.
Jafnvel ódýrari en sam-
bærileg innflutt vara“
segir Magnúsína í Skarpi hf
„Gæti sinnt öllum íslendingum og
skapað fleiri störf í leiðinni, en inn-
flutningurinn er mikill og sam-
keppnin hörð”, segir Magnúsína
Sæmundsdóttir, Maggý, fram-
kvæmdastjóri Skarp hf. sem fram-
leiðir Jófó eymapinna og bómullar-
skífur. Hún og Friðrik Friðriksson
eiginmaður hennar keyptu fyrir-
tækið árið 1991 frá rekstraraðilum
á Sauðárkróki og hafa rekið það á
Hvammstanga síðan.
Hráefnið í vörumar er innflutt frá
Frakklandi, umbúðimar frá Sviss og
úrvinnslan er íslensk. Maggý segist
framleiða 2,5 eymapinna á hvem ís-
lending árlega. Vélamar afkasta mun
meira og hún vildi gjaman auka fram-
leiðsluna og búa til fleiri störf en sam-
keppnin við innflutninginn er hörð og
hún hefur ekki lagt í eiginlega mark-
aðssókn. „Varan er fyllilega sam-
keppnisfær bæði hvað varðar verð og
gæði. Hún er jafnvel ívið ódýrari en
sambærileg innflutt vara”, segir hún.
ST.
Viðskiptavinir athugið!
Þessa dagana standa yfir breytingar á
húsnæði útibús Búnaðarbankans á
Sauðárkróki. Eru viðskiptavinir beðnir
velvirðingar á hugsanlegu ónæði sem gæti
orðið vegna þeirra.
/Æ\ BÚNAÐARBANKI
\Qj ÍSLANDS
Útibúið Sauðárkróki