Feykir - 03.09.1997, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Fiskiðjan Skagfirðingur
Hagnaður fym hluta ársins
eftir mikið tap á síðasta ári
Hagnaður af rekstri Fiskiðjunnar Skag-
flrðings fyrir tímabilið janúar - júní
1997 var 2,5 milljónir króna og hefur
því tekist að snúa rekstri fyrirtækisins
til betri vegar á skömmum tíma. Heild-
artekjur á þessu tímabili voru rétt rúm-
ur milljarður og hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnskostnað 168 miUj-
ónir.
Samkvæmt samþykkt síðasta aðalfúnd-
ar félagsins verður reikningsárið það sama
og fiskveiðiárið, það er 1. september til 31.
ágúst. Lögð hefur verið fram rekstraráætl-
un fyrir næsta reikningsár. Rekstrartekjur
eru áætlaðar 2.232 milljónir króna og
rekstrargjöld fyrir utan afskriftir og fjár-
magnskostnað 1.764 milljónir. Rekstrar-
hagnaður er áætlaður rúmlega 60 milljónir
króna.
Sá kvóti sem FISK hefur til ráðstöfunar
í upphafi nýs árs er um 15000 tonn, þar af
um 4100 tonn af þorski, sem er um 1000
tonnum meiri kvóti en við upphaf síðasta
kvótaárs. Við þessa aukningu og með auk-
inni Ijölbreytni í framleiðslu lyrirtækisins,
mun starfsmönnum í landvinnslu FISK
Qölga á næstunni, um 5-10 talsins, að sögn
Jóns E. Friðrikssonar ffamkvæmdastjóra.
Söluverðmæti landvinnslunnar em áætl-
uð kr. 1125 milljónir. Áætlað er að saltfisk-
og skreiðarverkun muni skila 375 milljóna
veltu, frysting, pökkun og sögun á Sauðár-
króki 250 milljónum og rækja og hörpu-
diskvinnsla á Gmndarfirði 498 milljónum.
Fimmta þing SSNV var haldið á Laugarbakka fyrir helgina. Þar var m.a.
skorað á ríkisstjórnina að láta nú þegar af áformum um 160 milljóna
niðurskurð á fjárveitingum til 12 sjúkrahúsa á Iandsbyggðinni. Umræðan
um miðurskurð á fjárveitingum til heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðin-
ni hefði valdið ómældum skaða.
Merkar fornminjar
í athugun að gera Klakk eða
Skagfirðing að fiystískipi
finnast í Neðra-Ási
Verið er að kanna hagkvæmni þess að
endurbyggja eitt af skipum Fiskiðjunnar
Skagfirðings og breyta því í vinnsluskip. Er
þessi ákvörðun tekin með það í huga að
minnka áherslu á útflutning á ferskum karfa
til Þýskalands, en vinna hann þess í stað úti
á sjó og taka karfaflökin síðan í framhalds-
vinnslu eða pökkun í landi.
Athugunin beinist að tveim skipum fé-
lagsins, Klakki og Skagfirðingi. Jón Frið-
riksson framkvæmdastjóri segir að hann
vonist til að niðurstaða liggi fýrir síðar í
mánuðinum með það hvor kosturinn sé
vænlegri. Athugunin sé lengra komin með
Klakkinn en hins vegar hafi svipuð skip og
Skagfirðingur reynst vel eftir endurbygg-
ingu. Aðspurður hvort að til greina korrú að
endurbyggja bæði skipin sagði Jón að það
yrði þá ekki gert á sama tíma, einhver bið
yrði á því að ráðist yrði í frekari endumýj-
un á skipaflotanum með endurbyggingu
skipa, en endurbygging hefur það umfram
skipakaup að þá þarf ekki að úrelda skip að
svipaðri burðargetu á móti.
Vegna þessarar athugunar hefur Klakk-
urinn legið við bryggju í Reykjavík á ann-
an mánuð og útséð að svo verður eitthvað
áfram. Skipið var nýkomið úr slipp í
Reykjavík og ætlunin var að senda það í
Smuguna. En það komst ekki langt, þar
sem að í prufusiglingu í Reykjavflcurhöfh
bræddi vélin úr sér.
Stjómendur FISK hafa lengi staðið
ffammi fyrir þörfinni að endumýja skipa-
stólinn. Það er einungis ftystiskipið Málm-
eyjan sem er nýleg, hin em öll komin til ára
sinna. Sem kunnugt er var Skafta lagt um
síðustu áramót og er skipið enn óselt.
Mjög merkar fomminjar hafa fundist
við fomleifauppgröft að Neðra-Ási í
Hjaltadal. Að því er fomleifafræðingar
telja var þama komið niður á rústir
fyrstu kirkju sem byggð var í landinu
íyrir rúmum þúsund ámm, eða árið 984.
Rústimar em mjög heillegar að sjá og að
sögn Sigurðar Bergsteinssonar forleifa-
fræðings, sem vann að uppgreftrinum,
em taldar góðar lflcur á að við uppgröft
verði unnt að fá mjög heillega mynd af
kirkjunni, bæði hvað gmnnmynd og
timburverk varðar. Er það mjög fágætt
að það sé hægt með svo gamlar fom-
minjar.
Áhugi mun vera fýrir hendi að ráðast
í það verk strax næsta sumar. „Það er
mikill áhugi fýrir því að hraða uppgreftri
þama, sérstaklega í ljósi þess að nú stytt-
ist í 1000 ára afmæli kristnitöku á Is-
landi. En þetta kostar allt saman pen-
inga”, sagði Sigurður Bergsteinsson
fomleifaffæðingur.
Sagt er ffá því bæði í Kristnisögu og
þætti Þorvalds víðförla að Þorvaldur
Spakböðvarsson hafi tekið kristni og
byggt kirkju í Ási sextán vetmm fýrir
kristnitöku. Því hefur verið vitað um
þessar fomminjar í Neðra-Ási, en gam-
alt fjárhús stóð á þessum stað sem alltaf
hefur verið kallað Bænhúsið. Fyrir
nokkmm ámm hófst rannsókn á fom-
minjum á þessum stað þar sem greini-
lega sést móta fýrir kirkjugarði. Nú ný-
verið var unnið að uppgreftri í tvær vik-
ur og komu þá rúsúr gömlu kirkjunnar í
ljós. Þá var einnig grafið í kirkjugarðin-
um og fannst gröf með mjög heillegum
mannabeinum.
Sigurður Bergsteinsson segir hús
hafa verið í milli fjárhúsbyggingarinnar
og kirkjunnar og þar hafi líklega verið
einhver jámvinnsla, Ld. rauðublástur, þar
sem timbur kirkjunnar er kolað og það
orðið úl þess að minjamar varðveittust
vel. Sigurður segir að nú sé næsta verk
að skila skýrslu um fundinn og vinna að
ffamhaldsrannsókn.
—ICTc^íh cNjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sfmi 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
Æí
bílaverkstæöi
Simi: 453 5141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
# Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
Réttingar jfáprautun