Feykir


Feykir - 24.09.1997, Síða 5

Feykir - 24.09.1997, Síða 5
32/1997 FEYKIR 5 Á framabraut í Fjölbrautinni Ingvar Leósson 17 ára Siglfirðingur, virkur í félagsmálunum í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Á hveiju hausti fer hópur ungs fólks frá Siglufirði til náms í framhaldsskólum víðs- vegar um landið. Á Sauðár- króki, í Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra, verða 463 nem- endur í vetur, þar af 62 frá Siglufirði, 14 nýnemar. Þeirra á meðal er Ingvar Leósson 17 ára. Hann er á öðm ári á málm- iðnarbraut. Siglfirðingar virkir í félagsmálum Það hefur lengi verið mál manna að hvarvetna sem Sigl- firðingar komi, hvort sem það er í skóla, í fyrirtæki, í félög eða annars staðar, líði ekki á löngu uns þeir verði þar fremstir í flokki og láti mikið að sér kveða. Ingvar er enn eitt dæm- ið þessu til sönnunar. Strax frá því á fyrstu önn hefur hann tekið þátt í félags- málum skólans og er einn af þremur Siglfirðingum í sjö manna stjóm nemendafélagsins. Hinir em Bjöm Sighvatsson rit- ari stjómarinnar og Óli Öm Gunnlaugsson gjaldkeri. Einnig hefur Ingvar verið formaður í vídeóklúbbnum sem hefur m.a. gert kynningarmynd um skól- ann á dönsku og ffönsku sem er ætluð fyrir skiptinema, nokkrar stuttmyndir, auk þess sem sýnd- ar em bíómyndir vikulega. En Ingvar lætur sér þetta ekki nægja. Hann er lika útvarps- stjóri. Útvarp Rás Fás Útvarpsstöðin RásFás sendir út allan sólarhringinn og heyrist til hennar um Krókinn og ná- grenni. Efnið sem er mjög fjöl- breytt, er að mestu unnið af nemendum. Beinar útsendingar em ffá bæjarstjómarfundum og lýsingar frá íþróttaviðburðum eins og körfubolta em á dag- skránni svo eitthvað sé nefnt. Starf útvarpsstjóra felst m.a. í því að útvega öll leyfi og tilskil- in gögn frá menntamálaráðu- neyti og skólastjóra og hann skipuleggur og stjómar dag- skránni og er ábyrgður fyrir öllu sem sent er út. Útvarpsstjóri sit- ur líka í nemendaráði og vinnur með skemmtanastjóra að undir- búningi og skipulagningu skemmtanalífsins innan skól- ans. En hvemig komast menn í svona feitt embætti? Er þetta ekki pólitískur bitlingur eða annar klíkuskapur? Var sleiktur upp „Nei langt því frá”, sagði Ingvar. „Fyrir þessu þurfti ég að berjast með kjafti og klóm og beita hinum ýmsu klækjum”. Eftir harðvítuga kosningabaráttu sem stóð í viku með fundum, ræðum og öllu tilheyrandi, hlaut hann næstum rússneska kosn- ingu og fékk 92% atkvæða. Að- spurður kvaðst Ingvar samt ekki telja að ræður hans hefðu ráðið úrslitum. ,,Ég útbýtti hátt á ann- að hundrað sleikipinnum með nafninu mínu á og það hreif’, sagði Ingvar að lokum. söb/Hellan. Leikjatafla Tindastóls í DHL - deildinni Föstud. 3. okt. Tindastóll - Skallagrímur....kl. 20 Sunnud. 5. okt. Akranes -Tindastóll..........kl. 20 Föstud. 17. okt. Tindastóll - Njarðvík.......kl. 20 Sunnud. 19. okt. ÍR - Tindastóll.............kl. 16 Föstud. 31. okt. Tindastóll - Keflavík.......kl. 20 Fimmtud. 6. nóv. KR - Tindastóll.............kl. 20 Sunnud. 9. nóv. Tindastóll - ísaljörður.......kl. 20 Föstud. 21. nóv. Tindastóll - Haukar..........kl. 20 Sunnud. 7. des. Valur - Tindastóll............kl. 20 Föstud. 12. des. Tindastóll - Grindavík......kl. 20 Fimmtud. 18. des. Þór - Tindastóll...........kl. 20 Fimmtud. 8. jan. Skallagrímur-Tindastóll.....kl. 20 Föstud. 16. jan. Tindastóll - Akranes........kl. 20 Fimmtud. 22. jan. UMFN - Tindastóll...........kl. 20 Föstud. 30. jan. Tindastóll - ÍR..............kl. 20 Sunnud. 1. febr. Keflavík - Tindastóll........kl. 20 Föstud. 6. febr. Tindastóll - KR..............kl. 20 Sunnud. 8. febr. Ísaíjörður - Tindastóll......kl. 20 Fimmtud.19. febr. Haukar - Tindastóll.........kl. 20 Föstud. 6. mars Tindastóll - Valur............kl. 20 Sunnud. 8. mars Grindavík -Tindastóll.........kl. 20 Fimmtud. 12. mars Tindastóll - Þór............kl. 20 Lengjubikarinn Föstud. 10. okt. Tindastóll - Skallagrímur....kl. 20 Sunnud. 12. okt. Skallagrímur - Tindastóll....kl. 20 Auglýsing í Feyki ber árangur heimílTs DRNHINN Þér standa allar dyr lar í ankanum! BUNAÐARBANKI ÍSLANDS - traustur banki Viðskiptavinum Búnaðarbankans stendur til boða margþætl fjármálaþjðnusla og ýmiskonar fræðsla sem lýtur að fjármálum heimilanna. Nú bætist beintenging Heimilisbankans við þá þjónustuþætti sem fyrir eru í Búnaðarbankanum. Fleiri aðgerðir og fallegra umhverfi með Heimilisbankanum og Hómer. Þeir sem vilja nýta sér Heimilisbanka Búnaðarbankans geta sinnt öllum almennum bankaviðskiplum hvemær sólarhringsins sem er frá sinni eigin tölvu. Viðskiptavinir Heimilisbankans fá að auki fjármálahugbúnaðinn Hómer. Hómer er ein- faldur og þægilegur Windows hugbúnaður sérstaklega ætlaður fyrir heimilisbókhaldið. Búnaðarbankinn er eini bankinn sem býður slíkan fjármálahugbúnað en hann er nauðsynlegur við að fullnýta þá möguleika sem bjóðast með beintengingunni. Það borgar sig að vera tengdur við traustan banka því þar er hugsað fyrir öllu.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.