Feykir - 24.09.1997, Síða 8
24. september 1997,32. tölublað, 17. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
íþróttahúsið verður mjög glæsilegt eftir stækkunina.
íþróttahúsið á Sauðárkróki
Verður tekið í notkun
um mánaðamótin
Þessa dagana er allt á fullu í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki
og iðnaðarmenn keppast við
lokafrágang hússins. Páll
Kolbeinsson íþóttafulltrúi
segir að stefnt sé að því að
húsið verði tekið í notkun um
aðra helgi með fyrsta leik
Tindastóls í úrvalsdeildinni,
er Skallagrímsmenn frá
Borgarnesi koma í heimsókn
íöstudaginn 3. október. Áætlað
er að íþróttakennsla skól-
anna og almenn tímaútlciga í
húsinu muni síðan hefjast
mánudaginn 6. október og
íþróttahúsið verði vígt form-
lega um miðjan mánuðinn.
íþróttahúsið er mjög glæsi-
legt og verður vel búið tækjum
áður en langt um líður. Iþrótta-
salurinn er rúmlega handbolta-
Umboð fyrir
Flísabúðina við
. Gullinbrú
' Traustar Flísar
y Múrvið-
^ gerðarefni
- flotgólf o.fl.
völlur að stærð, en það er hins
vegar körfúbolti sem mest verð-
ur stundaður í húsinu ef að lík-
um lætur. Salurinn rúmar þijá
löglega körfuboltavelli og jafn-
an verður því hægt að þrískipta
salnum, þannig að notagildi
íþróttahússins eftir stækkun er
meira en helmingi meira en
áður.
Aðstaða íyrir áhorfendur að
kappleikjum ntun einnig batna.
Bætt verður við öðrum þremur
sætabekkjum, en þær verða þó
ekki komnar í húsið fyrr en í
fyrsta lagi í nóvembermánuði.
Áhorfendur verða því margir
hveijir að láta sér nægja svalim-
ar áfram, enda hafa sumir fasta-
gestir sagt að þeir ætli að halda
sínu stæði á svölunum þó svo
stúkan stækki.
Á bæjarstjómarfundi í síð-
ustu viku kom það fram að sú
stöðvun sem varð á ffam-
kvæmdum vegna vörusýningar
og afmælishátíðar á liðnu sumri
hafi orðið til þess að seinka
framkvæmdum svo að ekki
tókst að taka íþróttahúsið í notk-
un áður en skólaárið byijaði.
íþróttakennsla skólanna hefur
því að mestu þurft að fara fram
utanhúss í september. Var það
mjög bagalegt framan af mán-
uðinum þegar kalsasamt var í
veðri og íþróttaiðkun utanhúss
ekki freistandi nema fyrir
hörkutól.
vamar
Þ|B. _ 9
gjaldeyrí®
Engin þóknun en við
PHÁIBl
þér bol eða svifdk
Gangnamenn á Auðkúluheiði
undir þrumugný orustuþotna
Gangnamenn á Auðkúluheiði
vissu vart hvaðan á þá stóð
veðrið þegar orustuflugvélar
birtust rétt yfir þeim í lágflugi
sl. fimmtudag. Litlu munaði
að illa færi þar eð hestar
gagnamanna fældust við há-
vaðann, köstuðu mönnum af
sér og sumir slitu af sér reið-
tygin. Jóhann Guðmundsson
í Holti, oddviti og gangnafor-
ingi segir að þetta hafi verið
fjandans mikið dúndur, væg-
ast sagt
Atburðurinn gerðist um há-
degisbil á fimmtudag og vom
menn í leitum vestan Sand-
kúlufells á Auðkúluheiði. Jó-
hann í Holti segir í samtali við
DV sl. laugardag að þama hafi
legið við slysi þar sem hestam-
ir hafi fælst gjörsamlega, t.d.
flugu flugvélamar mjög nærri
manni sem var uppi í Búrfjöll-
um þar sem þær flugu mjög
lágt yfir. Þá hefðu leitarmenn
einnig verið með leitarflugvél
yfir svæðinu sem ekki hefði
verið mjög fjarri, þannig að
ekki drægi það úr reiði manna
yfir atburðinum.
„Það er lágmark að þessir
menn athugi áður hvenær
menn em á þessu svæði við
fjárleitir og önnur skyldustörf.
Það ætti ekki að vera erfitt fyr-
ir þá að komast að því að göng-
ur og réttir em skipulagðar
löngu fyrirffam og em nánast á
sama tíma á hveiju ári”, segir
Jóhann en omstuflugvélar frá
vamarliðinu vom þama í lág-
flugsæfmgum.
Ásgeir Pálsson deildarstjóri
hjá Flugmálastjóm segir erfitt
að skipuleggja æfingamar án
þess að einhveijir verði þeirra
varir, en samþykkt æfinga-
svæði til lágflugs em að hluta
milli Hofsjökuls og Vatnajök-
uls. „Hvenær er smalað,
hvenær em hestatúrar eða
hvenær þarf að ffiða fuglana og
varpsvæðin? Það em svo mörg
sjónarmið sem þurfa að koma
inn í þetta og við höfum reynt
að miða svæðið og tímana við
það að taka sem flest til
greina”, sagði Ásgeir.
Fiskiðjan - Skagfírðingur
Sauðárkróksbær orðinn
áhrifalaus í stjórninni
Það bar til tíðinda við stjóm-
arkjör í Fiskiðjunni Skagfirð-
ingi sl. fimmtudag að Knútur
Aadnegaard, sem verið hefur
fulltrúi Sauðárkróksbæjar í
stjóminni mörg undanfarin ár,
var nú tilnefndur í stjómina af
meirihlutaeigendum, Fiskiðj-
unni Skagfirðingi sem á
55,88% hlutafjár. Knútur er
einnig hluthafi í FISK, var einn
af eigendum Skjaldar.
Þetta þýðir að Sauðárkróks-
Útgerðarfélagið sáluga var
stofnað, 1967, ekki fulltrúa í
stjóm útgerðar og fiskvinnslu í
bænum. Knútur tilkynnti for-
seta bæjarstjómar það í mars-
mánuði sl. að hann hygðist ekki
gefa kost á sér til áframhaldandi
setu fyrir bæinn í stjóm FISK
og áréttaði þá afstöðu sína
nokkmm dögum fyrir aðal-
fundinn.
Þessa ákvörðun Knúts má
rekja til óánægju hans með
framvindu einstakra mála
innan bæjarkerfisins á liðnum
vetri.
bær á nú í fyrsta skipti frá því
„Kerlingabani“
í Meleyri
Nýlokið er við að koma fyr-
ir svokölluðum „kerlingar-
bana” í rækjuvinnslu Meleyrar
á Hvammstanga. Byijað var að
prufúkeyra vinnsluna með nýja
búnaðinum á mánudag eftir að
vinnsla hafði legið niðri í tvær
vikur vegna breytinganna.
Meleyri er með síðustu
rækjuverksmiðjunum sem tek-
ur inn „kerlingarbanann” sem
er hreinsunarvél, kastar hratinu
af rækjunni og sparast við það
þónokkuð mörg störf. Guð-
mundur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri segir að reynt
verði að koma í veg iyrir fækk-
un starfsfólks með því að koma
á vaktavinnu og auka afköst
verksmiðjunnar. Aðspurður
sagði hann að ekki væri búið að
bæta við bátum í viðskipti
vegna þessa, en farið yrði að
huga að því.
Gæðaframköllun
BOKABUÐ
GÆÐAFRAMKÖLLUN
BRYNcJARS