Feykir - 10.12.1997, Side 6
6 FEYKIR 43/1997
Skagfirsk skemmtiljóð
Þeir eru fáir staðir landsins þar
sem gróska í vísnagerð hefur
verið meiri á undanfömum
árum en í Skagafirði. Það var
því ekki að ófyrirsynju sem
Jón Hjaltason bókaútgefandi á
Akureyri hafði samband við
Bjama Stefán Konráðsson frá
Frostastöðum og bað hann að
safna í bók skemmtilegum
vísum eftir skagfirska hagyrð-
inga. Sjálfur er Bjami og ætt-
menn hans miklir hagyrðingar
og því um auðugan garð að
gresja, en í bókinni Skagfirsk
skemmtiljóð er sýnishom að
kveðskap 35 skagfirskra hag-
yrðinga.
„Tilgangurinn með því að
gefa þessa bók út er þríþættur.
I fyrsta lagi sá að viðhalda
fomri hefð sem er vísna- og
ljóðagerð og hefur góðu heilli
náð að lífa góðu lífi í Skaga-
firði um tíðina. I öðm lagi er
tilgangurinn sá að safna saman
á einn stað kveðskap Skagfirð-
inga og halda honum til haga
svo að hann glatist síður. Síðast
en ekki síst er bókinni ætlað að
skemmta lesendum með
smellnum vísum og ljóðum og
hver veit nema áhugi á yrking-
um örfist í kjölfarið”, segir
m.a. í inngangi bókarinnar.
Svo gripið sé niður í bók-
ina, má fyrst nefna vísu eftir
Kristbjörgu S. Bjamadóttur í
Litlu-Brekku í Hofshreppi. Og
þá verður fyrir valinu vísa sem
hún gerði í tilefni gjaldkera-
starfs hjá orlofssjóði skag-
firskra húsmæðra.
Með veskiðflakka út og inn,
ei má tapast gróðinn.
Egfer að verða, Jesús minn,
Júdas lík með sjóðinn.
Og Axel Þorsteinsson mað-
ur Kristbjargar orti á ferð um
Eyjafjörð.
Hér er sjaldan veður vont
víða komið undir slátt.
Skyldi það vera skagfirskt
mont
er skýlirfyrir vestanátt.
Bjami Stefán yrkir um
Gunnar Sæmundsson í Hrúta-
tungu á Búnaðarþingi, þar sem
menn létu dæluna ganga.
Upp ípontu er ekki spar
á orðin stóru og þungu.
Lœtur móðan mása þar
og mcelir á hrútatungu.
Og Gísli Rúnar bróðir
Bjama skýtur á sitt fólk á ætt-
armóti.
Kynjagripi œttin hefur alið
og ekki gott við þvílíku að
gera.
En frændur sína fœr víst eng-
inn valið
þó fjarskyldari sumir mœttu
vera.
Hjálmar Jónsson alþingis-
maður var beðinn að lýsa
ástandi manna daginn eftir
Laufskálarétt.
Eftir skyssur, arg og nauð,
ekki viss að tjá sig.
Búinn að missa Brún og Rauð,
búinn að pissa á sig.
Jóni Eiríkssyni Drangeyjar-
jarli verður að orði efdr að hafa
hlustað á ræðumann.
Akaft sinnt’ann orðastriti,
allt hans bull úr hófi keyrði.
Ekki sagð’ann orð að viti
eftir því sem best ég heyrði.
A vísnakvöldi var Pálmi
Runólfsson frá Hjarðarhaga
spurður hvort hann teldi eitt-
hvað hæft í þeim orðrómi að
skagfirskur bændur mætu góð-
hest sinn jafnvel meira en konu
sína.
Þetta er ekki þöifað kanna,
í þraut og gleði er konan best.
Þvílík spuming, elsku Anna,
enginn jafnar þér við hest.
Sigmundur Jónsson bóndi á
Vestari - Hóli er einbúi á
vetuma. Hann var með mann í
vinnu og þurfti að sinna
skepnum á sama tíma og hann
þurfti að sjóða hádegismatinn.
Til útiverka er ég kvaddur.
I eldhúsinu bíða störf.
Nú er ég í nauðum staddur,
nú er ég í kvenmannsþörf.
Um landabrugg á Skaga
orti Sigurður Hansen.
Fregn í eyrum fann sér stað
fjörinu til baga.
Svona drykkir sagt er að
sjáist ekki á Skaga.
Bæjarhúsin á bókinni
Skagfirsk skemmtiljóð
Á innsíðu í hinni skemmti-
legu bók, Skagfirskum
skemmtiljóðum, stendur eftirfar-
andi skrifað: „Forsíðumyndin er
af hinu svipmikla fjalli Skagfirð-
inga Glóðafeyki, en við rætur
þess er bærinn Flugumýri. Ljós-
myndina tók Stefán Pedersen,
myndasmiður á Sauðárkróki”.
Nú er það svo að á umræddri
ljósmynd gefur að líta bæjarhús.
Undirritaður þóttist þó vita að þar
væri ekki um Flugumýri að ræða
en ekki þekkti hann bæinn. Líkt
og Pétur postuli forðum greip
hann til óyndisúrræðis, þóttist
vera fyndinn og samdi moð-
velgjulegan skýringarstexta sem
ekki átti að taka af skarið um
nafn bæjarins á myndinni.
Fyrir þetta á ég allt slæmt
skilið. Heiðursmaðurinn Bjami
Stefán Konráðsson sem safnaði
vísum í bókina og hinn ágæti
ljósmyndari Stefán Pedersen
hafa þó hvorugir nefnt þessa
aulafyndni við mig en auðvitað
hljóta lesendur að tengja hana
við þá. Einnig má gera ráð fyrir
því að Þröstur Tómasson og
fleiri, sem hafa taugar til Þor-
móðsholts (en það er bærinn á
myndinni) vilja gjaman að hér
séu tekin af öll tvímæli. Þetta vil
ég gera hér með. Eg sá um þenn-
an skýringartexta einn og óstudd-
ur. Aulafyndnin er mín. Hvorki
Bjami né Stefán fengu hana aug-
um litið fyrr en bókin kom út. Eg
vil biðja þá og aðra sem hlut eiga
að máli afsökunar. Ég lofa bót og
betmn í þeirri fullvissu að
eyfirskur aulaháttur megnar ekki
að slæva skagfirska snilld.
Vil ég svo slá botninn í þetta
hjá mér með þessari vísu úr
Skagfirskum skemmtiljóðum,
eftir Bjama Stefán, en niðurstaða
hans skal verða mér leiðarljós í
framtíðinni.
Bœndur grœða býsnin á
berjamó og vatnakrafti,
meira þó á mýrarflá
en mest á að haida kjafti.
Með þökk fýrir birtinguna
F.h. Bókaútgáfunnar Hóla
Jón H jaltason.
Efri röð frá vinstri: Hjörtur og Sigþór Gunnarssynir og
Edda Borg og Halla Mjöll Stefándsdætur. Sitjandi Pála
Rún og Stefanía Osk Pálsdætur.
Fimm tvíburar í for-
skólabekk á Króknum
Á árinu 1991 fæddust femir tvíburar á Sauðárkróki. Þeir
fylgdust að í leikskólanum Fumkoti á Sauðárkróki og gera það
einnig í Bamaskólanum, bytjuðu í haust í forskóladeildinni, en
eru að vísu ekki í sömu bekkjardeildum, en þær em þijár í for-
skóladeildinni. Auk tvíburanna átta sem hér birtast myndir af em
í forskóladeildinni tvíburasystkinin Steinunn og Sveinn Orri
Guðmundsböm. Ekki er vitað til þess að áður hafi verið svo
margir tvíburar í sama bekk í Bamaskóla Sauðárkróks og væntan-
lega em fá dæmi þiess ef nokkur í bæjum að svipaðri stærð.
Elísa Ósk og Pálína Ósk Ómarsdætur.
Tindastólsmenn á sigurbraut
Tindastólsmenn unnu góðan sigur á Val á
Hlíðarenda á sunnudagskvöldið og eru nú
komnir á annað sæti deildarinnar, með 14
stig eins og Haukar. Tindastóll getur skotist
upp í efsta sætið við hlið Grindvíkinga með
því að leggja Suðurnesjaliðið að velli þegar
það kemur í heimsókn á Krókinn nk. föstu-
dagskvöld. Tindastóll hefur aldrei átt jafn-
góðu gengi að fagna og í vetur, enda er þetta
besta lið sem Sauðárkrókur hefur nokkru
sinni teflt fram.
Það var frábær hittni og góður vamarleikur
Tindastólsmanna sem lagði gmnninn að góðum
sigri þeirra. Þeir vom með 12 súga fomstu í hálf-
leik, 43:31 og bættu síðan við í seinni háfleikn-
um. Lokatölur urðu 85:64.
Það var liðsheildin sem var aðall Tindastóls í
leiknum, þótt Torrey John færi fremstur í flokki
og skoraði 22 stig. Sverrir Þór Sverrisson gerði
12, Joes Maria 11, Láms Dagur Pálsson 10, Am-
ar Kárason 8, Ómar Sigmarsson 8, Hinrik Gunn-
arsson 5, Skarphéðinn Ingason 4, Óli Barðdal 3
og Isak Einarsson 3. Hjá Val var Warren Peebles
stigahæstur með 16 stig og Guðmundur Bjöms-
son kom næstur með 15.