Feykir - 02.09.1998, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Mikil óvissa með framtíð
Slátursamlags Skagfirðinga
Tillaga um úreldingu felld á hluthafafundi í síðustu viku
Starfsmenn Rarik á Sauðárkróki planta trjám í Nafirnar,
að þessu sinni á annað þúsund pliintur.
Gróðursett í Nafimar
Óvissa er um framtíð Slátur-
samlags Skagfirðinga en hlut-
hafafundur í félaginu felldi til-
lögu um úreldingu sláturhúss-
ins í síðustu viku. A sama
fundi sagði stjórn fyrirtækis-
ins af sér og ný stjórn var kos-
inn í hennar stað. Nýja stjórn-
in er að fara yfir stöðu mála,
m.a. skoða hugsanlega sam-
vinnu við aðra aðila um slátr-
un.
Smári Borgarsson fram-
kvæmdastjóri Slátursamlags
Skagfirðinga segir að skammur
tími sé til stefnu. Slátrun hefði
þurft að vera byijuð og ekki verði
farið af stað nema takist að ganga
frá öllum endum. Hann á þó síð-
ur von á því að bændumir sem
hafa slátrað hjá Slátursamlaginu
sláui hjá sláturhúsi KS á Sauðár-
krók þar sem tilboði félagsins var
hafnað á hluthafafundinum.
Hins vegar virðist vera talsverð
samkeppni um sláturfé. Sölufé-
lag Austur-Húnvetninga á
Blöndusósi sendi fyrir nokkru
fréttabréf inn á svæðið þar sem
tilgreind eru þau kjör sem bænd-
um em boðin. Þá hefur Sláturfé-
lag Suðurlands einnig boðist til
að ná í sláturfé Skagfirðinga,
gegn sama gjaldi og kostar að
flytja það til slátrunar á Sauðár-
króki.
Tillaga fyrrverandi stjómar,
sem felld var á hluthafafundinum
í síðustu viku, gekk út á það að
hætt yrði slátmn á vegum Slátur-
samlagsins og gengið að tilboð-
um Búnaðarbankans og Kaupfé-
lags Skagfirðinga um úreldingu
sláturhússins. í tilboðinu fólst að
Búnaðarbankinn tæki eignir og
úreldingarétt á móti veðskuldum
og kaupfélagið var tilbúið að taka
þátt í úreldingunni allt að krónum
11 milljónum, eftir því hve mik-
ið af slátmninni skilaði sér til KS.
Að mati fyrrverandi stjómar Slát-
ursamlagsins hefði þetta þýtt að
félagið gæti greitt megnið af
gömlum nauðungasamnings-
kröfum, en hlutaféð, alls um 20
milljónir, hefði tapast.
Bændur sem verið hafa í við-
skiptum við Slátursamlagið
bmgðust hins vegar ókvæða við
og töldu að í gegnum þessa
samninga um úreldingu slátur-
hússins væri verið að skikka þá
til að slátra hjá KS, en þessi slát-
urhús hafa verið keppinautar á
fjórða áratug.
Því hefur hins vegar verið
haldið fram, að athugun sem
gerð var á hagkvæmni samein-
ingar sláturhúsanna í Skagafirði,
hafi leitt í ljós að við það mundu
sparast umtalsverðir peningar,
10-20 milljónir á ári.
í nýkjörinni stjóm Slátursam-
lagsins em Eymundur Þórarins-
son Saurbæ, Gunnar Sigurðsson
Ökmm og Bjöm Ófeigsson
Reykjaborg.
í góðviðrinu nú fyrir helgina
kepptust starfsmenn Rafinagns-
veitna ríkisins í Skagafirði við
að gróðursetja trjáplöntur í
Nafnimar fyrir utan og ofan
stöðvarhúsið á Kóknum. Að
þessu sinni gróðursettu þeir á
annað þúsund plöntur.
Að sögn Jóhanns Svavars-
sonar hjá Rarik á Sauðárkróki
hafa starfsmenn yðulega gróð-
ursett tijáplöntur síðustu árin og
er það í samræmi við steínu fyr-
irtækisins urn að ganga vel um
landið og græða það upp. „Við
viljum gjaman vera öðmm til
fyrirmyndar í þessum efnum og
vonandi verður þetta framtak
okkar í dag hvati til annarra fyr-
irtækja einnig að huga að því að
græða í kringum sig”, sagði Jó-
hann, en þess má geta að sjálfur
hefur hann tekið í fóstur klauf-
ina sem er í Nöfunum upp af
Rafstöðinni og plantað þar mik-
ið á undanfömum ámm. Segist
hann vera búinn að þríplanta í
hluta af þessu svæði og er það
þegar farið að sýna þess merki
að þama verði kominn skógur
að 10-15 ámm liðnum.
Fyrirsjáanleg íjölgun í Akrahreppi
Margt bendir til þess að hlutfallslega
muni langflest bömin fæðast í Akrahreppi á
þessu ári. í öðmm hverfum Skagaijarðar
verði fjölgunin ekki jafnmikil miðað við
fjölda íbúanna. Til þessa hafa fjögur böm
fæðst inn í Akrahreppinn á þessu ári og em
taldar talsverðar líkur á því að a.m.k. eitt bam
til viðbótar muni fæðast inn í hreppinn á ár-
inu. Þá er ótalin ein bamsfæðing til viðbótar,
þar sem bamsmóðirin er enn með lögheimili
utan hrepps. I samanburði má geta þess að
um og innan við 50 böm hafa fæðst á fæð-
ingardeildinni á Sauðárkróki síðustu árin.
Um síðustu áramót vom íbúar Akrahrepps
222 talsins.
, Já það er alveg greinilegt að umtalsverð
fjölgun verður í hreppnum á þessu ári. Það
hefur líka verið að flytja ungt fólk inn í
hreppinn, þannig að ég hef verið að áætla að
fjölgunin verði svona um 4% á ár. Já þetta er
mjög blómlegt héma hjá okkur“, segir Agn-
ar Gunnarsson hreppsnefndarmaður á
Miklabæ.
Sem kunnugt er samþykkti hreppsnefnd
Akrahrepps við upphaf ársins að greiða 100
þúsund krónur til foreldra hvers bams sem
fæðist inn í hreppinn. Svo virðist sem þetta
hafi „svínvirkað" hjá hreppsnefndinni, en
Agnar, sem var annar tveggja flutnings-
manna tillögunnar, er hógvær og segist álíta
að þetta hafi nú verið komið eitthvað af stað
áður, en hins vegar bendi fólksfjölgunin til
þess að „fríríkið" hafi sitt aðdráttarafl, eins
og reyndar gerist gjaman við slíkt fyrirkomu-
lag.
Það er þó einn galli við „gjöf Njarðar“ að
enn hefur enginn 100 þúsund kall verið
greiddur til foreldra nýbura í Akrahreppi, en
þær greiðslur em væntanlega á leiðinni að
sögn Agnars. ,,Nú er ég ekki gjaldkerinn, en
það em til nógir peningar veit ég, þannig að
þetta hlýtur að vera á leiðinni".
s —KTeH£»M ckjDI— •»*
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 o
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA ö)>
O • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA 2
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæói
Simi: 453 5141
Sæmundargota 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:4536140
jfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
:ú: Réttingar ^ Sprautun