Feykir - 02.09.1998, Síða 2
2FEYKIR 29/1998
Séra Hjálmar og Signý kveðja
Signý flytur kveðjuorð í kirkjunni.
,JSfú hugsa ég gott til þess að
vera sóknarbam Sauðárkróks-
kirkju, vera hluti af söfnuðinum
og taka þátt í safnaðarlífinu eins
og aðrir. Kirkjan, tníarlífið í
hveiju samfélagi er mikilvægt
og ég mun af hógværð og þökk
sinna því eins og hver annar og
eftir því sem aðstæður leyfa í
því þjónusthlutverki sem ég
stefni að að sinna á næstu
árum“, sagði séra Hjálmar
Jónsson þegar hann kvaddi
söfnuð sinn í messu si. sunnu-
dag. Hjálmar og Signý komu til
Sauðárkróks haustið 1980 og
eiga því að baki langt og giftu-
drúgt starf með söfnuðinum.
Sauðárkrókskikja var þéttskip-
uð í kveðjumessunni.
„Ekki er hægt að sjá inn í
framtíðina, hvemig hún verður,
en eitt vil ég segja ykkur. Ég á
ekki eftir að eignast dýrmætari
stundir en ég hef átt sem prestur.
Og ekki betri vini að öðmm
ólöstuðum. Þá er ég að hugsa
um trúnaðinn. Ég hef eiginlega
verið inni á gafli hjá ykkur alla
tíð. Þar sem sorgin hefur lostið
fólk og fjölskyldur. Þá fínnst
það best hvað maður er van-
máttugur. En um leið hvað guð
er nálægur og kærleiksríkur. Við
sjáum hann í augnaráði bam-
anna í bamamessunum, full af
einlægni og gleði. í félagsskap
gamla fólksins bæði hér í
kirkjunni og Safnaðarheimilinu
og hvarvetna sagði Hjálmar.
Hann vék einnig að öðmm vett-
vangi, stjónmálunum. Sagði þar
skoðanir einatt skiptar, það væri
eðli stjómmálanna í lýðræðis-
þjóðfélagi. „Þannig á það að
vera, tefla þarf fram rökum, leita
leiða til framfara á öllum svið-
um. En í þeim álitaefnum og
vissulega átökum á köflum er
mikilvægt að láta ekki skoðana-
mun spilla vináttunni. Sönn vin-
átta er að sjálfsögðu hafín yfír
það að spillast vegna skoðana-
munar í veraldlegum málefrmm.
Þú átt vini sem þú stjómar
ekki“, sagði Hjálmar.
Signý Bjamadóttir prestsfrú
flutti einnig kveðjuorð í mess-
unni, sagðist með nokkmm orð-
um vilja þakka fyrir það góða
samfélag sem prestsijölskyldan
hafi átt á lðinum ámm.
„Við komum hingað ung
prestshjón fyrir 18 ámm með
dálítinn hóp af ungum bömum.
Okkur var afskaplega vel tekið.
Við höfum aldrei fundið okkur
einangmð heldur hluti þessa
samfélags. Hér hafa bömin okk-
ar alist upp og eiga hér nánast
allar sínar rætur og sína bestu
vini.
Starf prestsins er víðtækt og
því er aldrei lokið og ég held að
ekki sé hægt að sinna því með
ópersónulegum hætti. Prestur-
inn þarf að vera „ávallt viðbú-
inn“ hvort sem er að nóttu eða
degi. Fjölskyldan hlýtur að flétt-
ast inn í þetta að einhveiju leyti.
Bömin okkar lærðu það fljótt að
ekki þýddi að gera áætlanir
fram í tímann um ferðalög eða
annað því um líkt.
Það hefur verið ánægjulegt
að taka þát í kirkjustarfinu hér,
þar sem svo margir vinna óeig-
ingjamt starf. Og mínar bestu
minningar em frá góðum stund-
um hér í kirkjunni. Og sérstak-
lega þakka ég safnaðarkonum
fyrir samstarfið“, sagið Signý
meðal annars.
í kveðjukaffi í Safnar-
heimilinu að lokinni messu var
þeim Hjálmari og Signýju
færðar að gjöf frá söfnuðinum
fallegar myndir sem minnir á
vem þeirra hér á Sauðárkróki.
Einnig var þeim færð blóm frá
söfnuði og kirkjukór ásamt
góðum óskum og þakklæti fyrir
vel unnin störf.
Hjálmar kveður kirkjugesti á tröppunum eins og hann
var vanur að gera að lokinni messu.
Skólaþróun í Skagafirði
Stefnt að heilstæðu
námi í héraðinu
Kennarar í Skagaflrði hlýða á fyrirlestur Jónmundar Guðmarssonar á námskeiðinu.
Skólaskrifstofa Skagfirð-
inga og skólamenn í Skaga-
firði hafa sameiginlega
unnið að þróunarverkefn-
um sem tengja flesta skóla
Skagafjarðar. I fyrra hófst,
með styrk úr þróunarsjóði
grunnskóla, vinna við skag-
flrska skólanetið, þar sem
að kennarar unnu saman
og með nemendum sínum
með upplýsingatækni og
tölvusamskiptum. I vetur
verður áhersla lögð á heil-
stætt nám í flrðinum. Sam-
an eru kennarar skólanna
að vinna að skólanáms-
skrám, hver fyrir sinn
skóla, en með það að mark-
miði að sameiginlega geti
komið héraðsnámsskrá
hvað varðar ákveðna þætti
skólamálanna.
„Þetta er mjög mikilvægt
þar sem hér eru nemendur að
fara milli skóla á skólagöngu
sinni“, segir Þóra Björk Jóns-
dóttir á skólaskrifstofunni, en
námskeiðið „skólanám í
Skagafirði" fyrir kennara og
stjórnendur grunnskóla í
Skagafirði, hófst með sam-
eiginlegum fræðslufundunt
og vinnudögum kennara
miðvikudaginn 26. og
fimmtudaginn 27. ágúst.
Námskeiðið sátu flestir kenn-
arar og skólastjómendur
grunnskólanna í Skagafirði,
en markmið þess var að efla
forsendur fyrir heilstæðu
námi í héraðinu. Fyrirlesarar
voru Olafur Proppe prófessor
við Kennaraháskóla íslands,
Rósa Eggertsdóttir kennslu-
ráðgjafi við skólaskrifstofu
Eyþings og Jónmundur G.uð-
marsson verkefnisstjóri við
endurskoðun aðalnámsskrár
hjá menntamálaráðuneytinu.
Kemur úl á miðvikudögum. Utgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsúni 854 62(17. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Örn Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason.
Áskdftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.