Feykir - 24.03.1999, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 11/1999
Hagyrðingaþáttur 270
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman er að byija þáttinn á því að
fá að heyra frá Sigmundi á Vestara-
Hóli þar sem hann er að velta fyrir sér
tíðindum frá svokallaðri Samfylkingu.
Kelið eykst á vinstrí vœng
víða þarf að flagga.
Hvíla nú í sömu sœng
Sighvatur og Magga.
Guðný þar til fótafór
freistar ástarþráin.
Kvennalistinn magur mjór
mun nú vera dáinn.
Stcerri hefur fallið frá
fæðstir harma byrgja.
Það er eins og allir sjá
ekki neitt að syrgja.
Ekki kann ég deili á því sem kemur
hér næst, en hefur það verið að veltast í
hausnum á mér nokkuð lengi.
Margt má heyra og margt má sjá
menn efskynja kynni.
Hefég eyru og hlýði á
hljóm í veröldinni.
Um næstu vísu er einnig lítið að
segja, trúlega er hún mjög gömul, en
kannski kunn þeim sem eldri em.
Síkkar lítið sokkur minn
seint verður hann búinn,
raula tekur rvkkurínn
rífast vinnuhjúin.
Agnar Baldvinsson kennari, sem
bjó á Sauðárkróki á ámm áður, mun
hafa ort þessa fallegu haustvísu.
Sumri hallar bœrir blœr
blómið vallar dána.
Skýja falla tárin tœr
tindarfjalla grána.
Heyrum næst frá Einari Sigtryggs-
syni á Sauðárkróki.
Vandi er með vald að fara
virðingunni margir tína.
Orðagjálfur œtti að spara
umhyggju og miskunn sína.
Önnur vísa kemur hér frá Einari.
Öfgasinnar bölva og brjóta
boðorð öll í senn.
Efþjóðfélagið þurfa að móta
þroskaheftir menn.
Næst koma nokkrar gamlar vísur
sem öldmð kona í Skagafirði sendi mér
svona til uppriljunar.
Kindur janna í kofonum.
Kýmar baula á básunum.
Hestar hneggja í högunum.
Hundargelta á bœjunum.
Hani, krummi, hundur, svín
hestur, mús, tittlingur.
Galar, krúnkar, geltir, hrín,
gneggjar, tístir, syngur.
Magnús raular músin tístir
malar kötturinn.
Kýrin baular kuldinn nístir
kumrar hrúturinn.
Geta lesendur sagt mér hver yrkir
svo.
Veður elginn vítt og breitt
víflð mœlsku snjalla.
Eg lœt svona eitt og eitt
orð í belginnfalla.
Þórdís á Hrísum söng um tíma í
Kirkjukór Reykholtskirkju og mun
einhveiju sinni hafa ort svo undir
prédikun hjá séra Geir.
Uppi í stólnum œ og sí
athöfn sína fremur.
Lítið gagn er þó að því
þegar enginn kemur.
Bjami Guðráðsson í Nesi hefur í
mörg ár stjómað kvennakór í Borgar-
firði sem kallaður er Freyjukórinn.
Einn nágranni hans komst eitt sinn svo
að orði:
„Ég hef aldrei vitað annan eins
mann og hann Bjama í Nesi maður.
Hann stjómar 30 kerlingum með ein-
um putta og þær hlýða honum allar”.
Helgi Bjömsson á Snartarstöðum var
mjög hrifinn af þessu öllu saman og
orti einhveiju sinni svo.
Efég vœri orðinn stór
og í mér nokkur kjami,
vildi ég stjóma kvennakór
af krafti eins og Bjami.
Dagbjartur á Refsstöðum sá í anda
piparsvein eins og Helga í stöðu Bjama
og orti svo af því tilefni.
Stjómi Helgi alveg einn
öllum þessum konum.
Verður eins og tignarteinn
tónsprotinn á honum.
Sumir segja að Jökull Pétursson hafi
ort næstu vísu við legubekk kunningja
síns, aðrir telja að Valdimar Hólm Hall-
stað hafi ort hana.
Efað guð þér gœfi mál
svo gœtum rabbað saman
yrði kannski einhversál
undarleg ífrainan.
Konur keppa nú grimmt eftir góð-
um sætum á framboðslistum og fella
jafnvel karla úr ömggum sætum. Af
einu slíku tilefni orti Andrés Magnús-
son svo.
Konur sœkja Alþing á
úttmðnar afviti.
Frœgir drengirfalla þá
fyrír pilsaþyti.
Að lokum ein lagleg eftir Jakop á
Varmalæk.
Við eigum stöku og stuðlað Ijóð
sterk ífonni og línum.
Það sem engin önnurþjóð
á ífórum sínum.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Feykir kemur næst út 7. apríl
Þar sem að næsti miðvikudagur er sá síðasti fyrir páskahátíð og ekki mundi nást að
koma blaðinu út um sveitir fyrir páska, kemur blaðið út á miðvikudeginum eftir páska.
HVlTTS. svart
hönnun
prentun
Við leitum að fólki
Prentsmiður óskast til framtíðarstarfa
Um er aö ræöa fultt starf viö hönnun og uppsetningu prentgripa
Góö tölvu- og íslenskukunnátta skilyröi
Þarf að kunna skil á FreeHand, Photoshop og Quark
Starfskraft vantar til almennra starfa
s.s. auglýsingagerð, frágang prentverka,
uppsetning smærri prentverka o.fl.
Góö íslensku- og tölvukunnátta æskileg
Um framtíöarstarf er aö ræöa
Umsóknum skal skila skriflega ásamt vitnisburði um menntun
og fyrri störf fyrir 8. apríl
Borgarflöt 1, 550 Sauöárkrókur
S: 453 5711 - F: 453 61G2- Netf.: hogs@hvittogsvart.is
DHL - deildin í körfubolta
Ævintýri Tindastóls
úti þetta árið
Tindastólsmenn eru úr leik í
úrslitakeppni DHL-deildar-
innar í körfubolta eftir mjög
jafna keppni við ísfirðinga í
8-liða úrslitunum, þar sem
afar tvísýnt var um úrslit al-
veg fram á síðustu mínútu.
Tindastólsmenn töpuðu
báðum leikjunum með
þriggja stiga mun.
Sauðkrækingar komu mjög
grimmir til leiks lyrir vestan sl.
föstudagskvöld og höfðu ffum-
kvæðið fram eftir leik. Mest
náðu þeir 22 stiga mun
snemma í seinni hálfleik. En
eins og hefur viljað loða við
Tindastólsmenn í vetur lentu
þeir í basli með að veija þessa
forustu, það miklu að ísfirðing-
um tókst með geyslilegri bar-
áttu og góðum leikkafla að
jafna leikinn og vinna sætan
sigur undir lokin.
Leikurinn á Króknum á
sunnudagskvöldið var hníljafn
allan tímann og munurinn
aldrei mikill. Sem fyrr í inn-
byrðis leikjum Tindastóls og
Isfirðinga í vetur, reyndust
taugar vestanmanna sterkari
undir lokin og þeir uppskáru
sigur og mæla Njarðvík í und-
anúrslitum. Tindastólsmenn
hefðu hins vegar þurft að mæta
Keflvíkingum í undanúrslitum
ef þeir hefðu komist áfram.
Þrátt íyrir útkomuna er þetta
besta frammistaða Tindastóls í
úrslitakeppni til þessa. Þótt
ýmsir hafi vonast eftir að liðið
næði ennþá lengra í vetur, jafn-
vel alveg á topinn, er ljóst að
Tindastólsliðið er gott og bæj-
arbúar geta verið stoltir að lið-
inu sínu. Við byggjum aðallega
á strákum sem aldir em upp hjá
félaginu, gagnstætt því sem
mörg íþróttafélög í landinu
gera. I vetur hafa sem fyrr
komið fram á sjónarsviðið
leikmenn sem ætlað er mikið
hlutverk á næstu árum. Þessi
stefna mun örugglega er fram
líða stundir gera Tindastól að
stórveldi í körfuboltanum.