Feykir - 12.05.1999, Qupperneq 3
Listræn handverkskona á Hvammstanga
17/1999 FEYKIR3
Sjö þúsund handmáluð
kerti til Grænlands
Á dögunum geriM Anori Art í
Nuuk á Grænlandi samning
við Hólmfríði Dóru Sigurðar-
dóttur á Hvammstanga um
kaup á 7(K)0 handmáluðum
kertum í gjafaumbúðum.
Kertin eru tvö saman í pakka
og er mynstrið óhlutbundið.
Tildrögin að samningnum var
að Hólmfríður Dóra hefur far-
ið á handverkssýningar und-
anfarin ár og verið þar með
verk sín sem eru af ýmsum
toga. í vor var hún svo á hand-
verkssýningu í Laugardalshöll
þar sem hún hitti aðstandend-
ur Anori Art og leist þeim svo
vel á kertin að þeir ákváðu
strax að panta 6000 kerti, en
þegar samningurinn var svo
gerður þá hafði kertum fjölgað
í 7000.
Dóra þarf að skila þessu verk-
efni um mánaðarmótin júli/ágúst
en þá þarf hún að koma pöntun-
inni á gám sem Eimskip flytur
svo til Grænlands og tekur það
um 10 daga. Dóra segir gaman
að hugsa til þess að um miðjan á-
gúst verði farið að raða í græn-
lenskar búðarhillur rammíslensk-
um kertum.
Fyrir 7 árum byijaði Dóra að
mála kerti fyrst bara svona fyrir
sig og sína en sú vinna þróaðist
fljótt upp í að mála kerti fyrir
kertaverksmiðjuna Mánaskin og
hélt hún þeirri iðju þar til kerta-
verksmiðjan hætti, en síðan hefur
Dóra hannað og unnið kerta-
skreytingamar sjálf. Hún málar
mikið afjóla-, páska- og heilsárs-
munstrum svo og fyrir skímir,
fermingar o.þ.h. ijölskyldustór-
hátíðir. Kertin sem hún notar em
eingöngu íslensk og koma þau
frá Heymaey og Norðurljósum
og þá stendur til að fara að kaupa
kerti frá kertaverksmiðjunni á
Akureyri.
Dóra telur þetta verkefni fyrir
Anori Art jafngilda 6 mánaða
dagvinnu, en hún skilar þessu í
júlilok. „Þetta er stórkostlegt fyr-
ir mig þar sem að stærsta pöntun
tilþessavar20pakkar, þaðer.40
kerti”, segir Dóra. Aðspuiðsagðist
hún ekki liggja mikið í sólbaði
þetta sumarið, hefur varla tíma í
þess hátta dól. Dóra hefur einnig
grafið í gler og þá aðallega í glös
sem hún setur á fallegar skreyt-
ingar að vali kaupanda og þá
gjaman nafnið á jíeim sem fær
glasið. Dóra er að grafa í glös fyr-
ir þekkt fyrirtæki í Reykjavík og
er það mikil vinna þó glösin séu
ekki fleiri en 12, þá er merki fyr-
irtækisins ekki auðunnið.
Það má með sanni segja að það
er eins gott að fjölskyldan standi
við bakið á handverkskonum af
þessu tagi, þar sem búið er að
henda eiginmanni Dóm út úr bíl-
skumum og þar situr frúin og
dreifir kertunum sínum í kring-
Hólmfríður Dóra með sýnishom af máluðu kertunum.
um sig og málar og málar. Um sumars, þótt hún sjái sólina varla
leið og við óskum Hólmfríð Dóm fyrir kertunum.
til hamingju með þetta stóra verk- GJ.
efríi þá óskum við henni gleðilegs
S ^^^[hnubókin og K^bókin
T\|eir góðir kostir til að ávaxta spariféð þitt
KS-bókin er íneð 5,20% vexti, bundin í 3 ár og verðtryggð
Ársávöxtun síðasta árs 7,58%
Samvinnubókin er með lausri bindingu, nafnvextir 5,1%,
Ársávöxtun síðasta árs 6,09%
Menningar sj óður
Skagafjarðar
Á fundi sveitarstjómar nú í
vetur var samþykkt að stofna
Menningarsjóð SkagaQarðar.
Þann 4. maí vom samþykkt-
ar regur um sjóðinn en þær
hafa verið í vinnslu nú um
nokkurn tíma í menningar-,
íþrótta- og æskulýðsnefríd og
h'ta nú dagsins Ijós.
Reglur þessar gera bæði
menningarfélögum og einstakl-
ingum kleift að sækja í sjóðinn,
til reksturs félaganna eða til ein-
stakra verkefna. Félög þurfaað
sækja urn fyrir 10. mars ár hvert
en umsóknum um einstök verk-
efni má skila allt áriðog skulu
þær umsóknir afgreiddar árs-
fjórðungslega.
Þar sem nú er nokkuð liðið á
vor gefst félögum kostur á að
sækja um styrki til 31. maí og
liggja eyðublöð ffammi á skrif-
stofu sveitarfélagsins. Með um-
sóknum félaga skal skila starfs-
og fjáirhagsáætlun ásamt árs-
reikningum félaganna og árs-
skýrslu.
Með umsóknum til einstakra
verkefna skal skila ítarlegri lýs-
ingu á verkefni ásamt kostnað-
aráætlun og frekari áætlun um
fjármögnun. Félög og einstakl-
ingar í Skagafirði eru hvattir til
þiess að nýta sér menningarsjóð-
inn en nánari upplýsingar gefur
formaður nefrídarinnar Ásdís
Guðmundsdóttir.
Menningarsjóður KS
Tíu aðilum úthlutað
styrkjum úr sjóðnum
Fyrir nokkru var styrkjum
úthlutað úr Menningarsjóði
Kaupfélags Skagafirðinga, en
það hefur verið árlegur viðbtnð-
ur frá árinu 1962 er sjóðurinn
var stofnaður, að félagið láti af
hendi rakna nokkra fjármuni til
félags- og menningarstarfs í
héraðinu.
Að þessu sinni hlutu lOaðil-
ar styrki og eru þeir eftirfar-
andi: Karlakórinn Heimir,
Rökkurkórinn, UMSS, Leikfé-
lag Sauðárkróks, Handverks-
hópur Alþýðulistar, Sauðár-
krókskirkja, Helga Rós Indriða-
dóttir vegna söngnáms, Ólaf-
ur Jónsson vegna myndabókar
um Sölva Helgason, HörðurG.
Ólafsson vegna útgáfu geisla-
disks og Ferðamálafélag
Skagafjarðar og Siglufjarðar
vegna „söguslóðar frá Skaga-
firði til Siglufjarðar”.