Feykir - 30.06.1999, Síða 3
23/1999 FEYKIR 3
Seiðin frá Máka á
Lambanesreyki í
septembermánuði
Framkvæmdir eru nú komn-
ar vel af stað við breytingar á
seiðaeldisstöðunni á Lambanes-
reykjum í Fljótum, en þær miða
að því að unnt verði að heíja þar
eldi barraseiða í september
næstkomandi. Þá er áætlað að
heija matfiskeldi við Hrauna-
krók um mitt næsta ár, taka þá í
notkun fyrsta kerið af sex. Áætl-
anir gera síðan ráð íyrir að öll
fjárfestingin við Miklavatn vaði
komin í notkun á árinu 2002 og
þar með allur lífmassi stöðvar-
innar. Framleiðslan á því ári er
áætluð að minnsta kosti 600
tonn og framleiðsluverðmæti
varlega áætluð um 300 milljón-
ir króna.
Þær eru glæsilegar áætlan-
imar hjá forsvarsmönnum
barraeldisins Máka á Sauðár-
króki, en fyrirtækið keypti sem
kunnugt er þrotabúið við Mikla-
vatn í Fljótum, sem lengi var
kennt við Miklalax, á síðasta ári.
Framkvæmdir í seiðaeldis-
stöðunni á Lambanesreykjum
hófust fyrir rúmum mánuði.
Áætlað er að framleiðsla Máka á
þessu ári verði 25 tonn og er þar
miðaðviðfisk á markað. í Máka
er hins vegar búið að byggja upp
geisilegan lífmassa, sem er ætl-
að að alast upp í sláturstærð í
Fljótunum. Strax og seiðaeldi-
stöðin við Lambanesreyki er
komin í notkun eykst fram-
leiðslugeta stöðvarinnar upp í
rúmlega 100 tonn, og við fyrsta
kerið við Hraunakrók, tvöfaldast
sú framleiðslugeta, og þannig
eykst framleiðslan síðan við
hvert keranna sex sem tekin
verða í notkun við Hraunakrók-
inn.
Góð tök á eldinu
Gilles Chandaras franskur
eldisffæðingur, sem starfað hef-
ur hjá Máka frá febrúar síðast-
liðnum, segir eldið í mjög góðu
horfi. Vaxtahraði fisksins sé góð-
ur og náðst hafi mjög góð tók á
öllum þáttum eldisins. Allir
byijunarörðugleikar séu að baki
og því virðist útlitið mjög gott
framundan. Guðmundur Om
Ingólfsson framkvæmdastjóri
er sannfærður um að hægt sé að
byggja stöðina á Lambanes-
reykum upp á sömu forsendum
og á Sauðárkróki. Hins vegar er
aðfara af stað vinna varðandi út-
færslu á stóru kerjunum við
Hraunakrók. Að því verki vinn-
ur starfshópur sem stýrt er af
Valdimar Kr. Jónssyni prófess-
or í Háskólanum, en sótt hefur
verið um styrk varðandi þetta
verkefni til Evrópusambands-
ins, en Máki hefur einmitt not-
ið liðsinnis ESB varðandi rann-
sóknir við uppbyggingu barra-
eldisins hér á landi.
Hvaðyfirbyggingu keijanna
sex við Hraunakrók varðar, hef-
ur helst komið til álíta að bygga
kúluhús yfir þau. Á þann hátt
verði hægast um vik að taka þau
í notkun hvert af öðru.
Á aðalfundi Máka sem hald-
inn var sl. fimmtudag var sam-
þykkt að auka hlutafé fyrirtæk-
isins um 40 milljónir, en það er
nú rúmar 80 milljónir. Tap á
rekstri Máka á síðasta ári var 24
milljónir. Þar er meðtalin kaup-
in á Miklalaxstöðinni upp á 14
milljónir og afskriftir upp á um
8 milljónir króna. Áætlað er að
rekstrartap verði litlu minna á
þessu ári, en upp úr árinu 2002
áætla Mákamenn að fyrirtækið
fari að skila hagnaði, en spár uin
verðþróun gera ráð iyrir því að
markaður fyrir barra verði jafn
og góður næstu árin.
Símon með lægsta
tilboð í hitaveituna
Símon Skarphéðinsson
vinnuvélaeigandi á Sauðár-
króki var með lægsta tilboðið í
framkæmdir á vegum Hita-
veitu Skagaíjarðar, sem ný-
lega voru boðnar út. Tilboð
Símonar var upp á rúmar 26
milljónir eða 77,4% af kostn-
aðaráætlun, og var því tekið.
Árvirkni frá Blönduósi bauð
82,4%, Steypustöð Skaga-
fjarðar 85,8%, en þrjú önnur
tilboð, öll frá aðilum utan
kjördæmisins, voru talsvert
hærri, allt upp í tæplega
170% af kostnaðaráætlun.
Boðnar voru út lagnir hita-
veitulagna í Varmahlíð og frá
Marbæli um Langholt, Stað-
arsveit og Víkurtorfuna að
Birkihlíð. Á þessu sést að
framkvæmdir verða miklar
hjá Hitaveitu Skagafjarðar í
sumar.
T oy ota
t
skemmtileg bílasýnirig viö Abæ
laugardaginn 3. júlí frá kl. 12-17
Sýrmm:
Toyota Avencis
Toyota Corolla Sedan
Toyota Corolla Touring
Toyota Hilux (mikið breyttur)
Qg bílinn sem sleaið hefur öll sölumet
Tovota Yaris
Komiö og reynsluakið Toyota
T oyota
- tákn um gæöi-
Söluumboð Sauðárkróki Bókabúð Brynjars
Föstudagstilboð
Lambagrillsneiðar 359-
Guðlax 298-
Stórlúða 598-
Nýr ferskur lax 398-
Bökunarkartöflur 129-
Kynning frá kl. 14-18 á súkkulaðisnúðum frá
Kexsmiðjunni - Kynningarverð 198 -
Grillum fyrir utan verslunina firá 16-18
Komið og smakkið ljúfengan
grillmat frá kjötvinnslu KS