Feykir - 30.06.1999, Side 6
6 FEYKIR 23/1999
Hagyrðingaþáttur 276
Heilir og sælir lesendur góðir. Það er
Rúnar Kristjánsson sem á fyrstu vís-
umaraðþessu sinni.
Enn er kalt og kal í túnum
kvíði í bœndum yfirþví.
Þeirmeð hörku hleypa brúnum
horfa mœddir norðrið í.
Skyldi hann áfram œtla að vera
einmitt svona, hugsa þeir.
Ekki er þá um gott að gera
grasvöxturinn allur deyr.
Næst kemur limra eftir Rúnar sem
mun vera gerð skömmu íyrir kosningar,
er hann var spurður hvort hann ætlaði að
kjósa græna framboðið, og þá hvers
vegna.
Með Steingrími á stjómmálagötum
við störfim afhugsjóna-hvötum
sá vegur er vœnn
til vinstri og grœnn
sem vígður er ógeði á krötum.
Eitthvað heyrðist um að nokkurt
stapp hefði verið í kringum ráðherrastól-
ana eftir kosningar og virðist Rúnar
hafa fengið nánari fregnir af því, eftir
næstu vísum hans að dæma.
Páll á stólnum harðurhékk
hœttur setu á lœgri bekk.
Halldórfast að honum gekk
hellidembu á sig fékk.
Ættarfrœga kjaftakvörn
kynnti sálin valdagjöm.
Hlaut þó sína vonarvörn
Valgerðurfrá Lómatjöm.
Það mun hafa verið Indriði Þorkels-
son á Fjalli sem orti svo.
Ærið mörgu er í lýð
um œvina búið að Ijúga.
En hann reyndist ár og síð
óbilandi að trúa.
Heilsufar manna er oft ærið misjafnt
eins og flestir þekkja og hefur sá er
Jökull Pétursson málari orti til eftirfar-
andi vísu, trúlega verið eitthvað slappur.
Hvort hann tórir, ekki á
œtla ég að giska.
Utlitið er að minnsta kosti
ekki á margafiska.
Það mun hafa verið hinn snjalli Þor-
valdur Þórarinsson frá Hjaltabakka sem
orti svo.
Einn ég sit með angraðgá)
- erfitt skap að þvinga.
Get í jjarska sífelltséð
sœlu Húnvetninga.
Önnur vísa kemur hér sem mun
vera eftir Þorvald.
Ættfrœðinga þyrfti að þjálfa
svo þjóðin bœri meira skyn
á alla þá, sem áttu kálfa
og offruðu skinni í handritin.
Það mun hafa verið vorið 1970 sem
Olli orðaði hugsun sína á þessa leið.
Ég vilflýjaflesta hér
finna nýja heima.
Ofar skýum una mér
um ást og hlýju dreyma.
Gott er að fá næst þessa leiðréttingu
frá Olla.
Heift úrsinni hverfa fer
úr hug til minna granm,
efég fimi að omar mér
eldur minninganm.
Nýlega fékk ég þær upplýsingarað
eftirfarandi vísa, sem ég hef kunnað
lengi án þess að vita um höfund henn-
ar, muni vera eftir Olla. Langar mig til
að biðja lesendur að gefa mér upplýsing-
ar þar um, kunni þeir skil þar á.
Þótt ég heiminn h’eddi í kvöld
kona engin grcetur.
Svom er að setja tjöld
sín til einnar nœtur.
Gissur Jónsson frá Valadal er höf-
undur að næstu vísum sem munu hafa
veriðgerðar snemma morguns að sumri
til er hann dvaldi í Víðimýrarseli. Mun
honum sem oftar hafa verið litið út á
Stapann, þar sem minnisvarði Stefáns
G. Stefánssonar stendur. Það var
glampandi sólskin þennan morgun og
margt fólk á Stapanum.
Efá verðurefni hlé
andinn lengi sefur.
Styttan mig um Stefán G.
stöðugt vakið hefiir.
Fallegur erfjörðurinn
fjallahringur víður.
Fagurskrýddan faðminn sitm
ferðamömum bíður.
Fyri r þrifhaðjjörðurinn
fagurt lofþér syngur.
Gakktu vel um garðimi þinn
góður Islendingur.
Þijár vísur í viðbót koma hér eftir
Gissur og munu þær vera úr bréfi sem
hann skrifaði móður sinni eftir að hún
flutti frá Valadal til Reykiavíkur í kring-
um 1940.
Oft ég skunda óðs á fund
öllum blundi þjaka
mína stundum léttir lund
liðugtbundin staka.
Vart mig stingur veiklynd þrá
vonin yngir bjarta,
mín óþvinguð tnœrðarskrá
milt við syngur bjarta.
Búskapinn ég best fœ greint
björtust Ijós þar skína.
Otilneyddur svík ég seint
sannfæringu mína.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Tindastóli fatast flugið á
toppnum í fótboltanum
Ágætis árangur UMSS-
krakka á Goggamótinu
Tindastóli hefur heldur verfi
að fatast llugið á toppi ann-
arrar deildarinnar að undan-
fömu. Eftir sigur í fjómm
fyrstu leikjunum, komu tvö
jafntefli, 1:1 gegn Solfossi á
útivelli og 0:0 móti Sindra á
Króknum. I síðasta leik, sem
fram fór í fyrrakvöld, tapaði
síðan Tindastóll fyrir Þór 0:1
á Akureyri. Tindastóll var
síst lakari aðilinn í þessum
leik, en eins og í leikjunum að
undantörnu gekk ekki vel að
skora, þó leikmenn fengu
gullin tækifæri til þess.
Tindastóll er samt enn í efsta
sætinu með 14 stig, á betri
markatölu en HK sem hefur
jafnmörg stig, en það lið tapaði
fyrir Tindastóli 1:6 fyrr í vor.
Leiknismenn, sem Tindastóll
mætir um næstu helgi, er
skammt undan með 13 stig og
Sindri ermeð 11 stig, þannig að
Tindastólsmönnum veitir ekki
af því að fara að hala inn stig að
nýju til að bæta stöðu sína í
toppbaráttunni.
Siglfirðingar fengu Leikni í
heimsókn um helgina og geiðu
jafntefli 1:1. Siglfirðingar hafa
einnig verið að dala að undan-
fömu, töpuðu t.d. á dögunum
fyrir neðsta liði deildarinnar
Völsungi. KS-ingar eru samt
um miðja deildina með 9 stig.
I þriðju deildinni heldur
Hvöt áfram sigurgöngu sinni,
sigraði Nökkva 3:1 í leik á Ak-
ureyri. Neisti heldur öðru sæt-
inu, en Neistamenn unnu ör-
uggan sigur á Kormáki 5:1.
Leikurinn fór fram á Sauðár-
króki en ekki hefur enn verfi
hægt að leika á Hofsósvellinum
í sumar, sem er illa farinn vegna
kalskemmda. Þá vann Magni
HSÞb 3:0.
Sautján krakkar úr Skaga-
firði, á aldinum 6-14 ára, fóru
ásamt foreldrum og þjálfur-
um á stórmót Gogga Gal-
vaska sem haldið var 18.-20.
júní í Mosfellsbæ. Þetta er
fjölskyldumót sem haldið er
árlega og stílað upp á að alltaf
sé eitth vað að gerast auk í-
þróttanna: ratlcikir, diskó-
tek, sundlaugarpartí og
margt fleira.
Aðaláherslan er lögð á leik-
gleði og skemmtunina að vera
með, enda meiga keppendur
undir 10 ára aldri ekki fá vað-
laun en allir þátttakendur eru
leysúr út með gjöfum.
Allir stóðu Skagfirðingamir
sig vel. Jóhanna Þ. Magnús-
dóttir UMFH bætti gamla
„goggametið” sitt um meter í
kúluvarpi stelpna og Ámi Geir
Sigurbjömsson UMFT jafnaði
metíð í langstökki stráka. Aföðr-
um árangri krakkanna má nefna
að Inga Bima Friðjónsdóttir
UMFT sigraði í langstökki og
60 metra hlaupi, varð önnur í
800 metra hlaupi og hástökki og
þriðja í 4x100 metra hlaupi á-
samt Jóhönnu Þ. Magnúsdóttur
UMFH, Dönu Antonsdóttur
UMFH og Kristbjörgu Bjama-
dóttur Neista. Ámi Geir Sigur-
bjömsson UMFT, sem sigraði í
langstökki, varð annar í 60 metra
hlaupi og kúluvarpi og þriðji í
4x 100 metra hlaupi ásamt Guð-
jóni Kárasyni UMFH, Brynjari
Kárasyni UMFH og Óttari P.
Ingólfssyni UMFH.
Ungir Skagfírðingar í
landslið í körfubolta
og golfíþróttinni
Tvær stúlkur úr Tindastóli
vom fyrir skömmu valdar í
unglingalandslið í körfúbolta og
kepptu á Norðurlandamóti í
Danmörku. Þetta em þær Bima
Eiríksdóttir og Efemía Sigur-
bjömsdóttir. Efemía semreynd-
ar hefúr áður leikið í unglinga-
landsliði, sagði að íslenska liðið
hefði verið langlávaxnast og því
á brattan að sækja. Allir leikim-
ir töpuðust að þessu sinni.
Þá má geta þess í leiðinni að
golfarinn efnilegi Guðmundur
Ingvi Einarsson var valinn í
unglingalandsliðið, en Golf-
klúbburSauðárkróks hefúr sinnt
unglingastarfinu af krafti mörg
undanfarin ár.
Sjálfstæður dreifíngaraðili
Herbalife
Hringdu í mig ef þú vilt kynna þér vörumar
eða tækifærið
Jóhanna Dögg í síma 869 3837.
netfang; johanna-dogg@hotmail.com