Feykir - 30.06.1999, Síða 8
30. júní 1999,23. tölublað, 19. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Katrín María Andrésdóttir svæðisfulltrúi Rauða krossins
L M KJÖRBÓK
MLm Eh 7* Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga 1
L L -meðfc MM Landsbanki <a Mk ftasfeaií'v Útibuið á Sauðárkróki - S: 453 5353 ,
Unnið í 16 tíma á sólarhring í
rækjuvinnslu Skagstrendings
Mikil vinna er nú í rækju-
vinnslu Skagstrendings á
Skagaströnd. Unnið er á
þremur vöktum, 16 tíma á sól-
arhring. Vaktafyrirkomulag-
inu var breytt um síðustu mán-
aðamót og er áætlað að halda
úti þessum vöktum til ioka á-
gústmánaðar. Alls vinna um 60
manns hjá rækjuvinnslunni í
dag, í stað mn 45 sem unnu hjá
fyrirtækinu í vetur. Það var að-
allega skólafólk sem bættist við
í rækjuna hjá Skagstrendingi
nú í vor.
Halldór Gunnar Ólafsson
verksmiðjustjóri segirað vinnslan
hafi gengið vel og ágætlega horfi
með hráefnisöflun. „Við höfúm
verið að fá rækju af Flæmska hatt-
inum, en þar em tvö skipa Skag-
strendings sem sigla nú undir
eistneskum fána, Örvar og Helga
Björg sem heitir núna Thakuna.”
Vinnan í rækjuvinnslunni hefst
klukkan eitt eftir miðnætti, fyrsta
vaktin vinnur til fimm, þá tekur
sú næsta við og vinnur til 11, þá
tekur þriðja vaktin yfir og vinnur
til fimm síðdegis. Fólk vinnursíð-
an við þrif fram til átta á kvöldin,
þannig að það er ekki langt hlé í
vinnslusalnum áðuren vinnan byij-
araftur.
Aðspurður hvort möguleiki
væri á að þessi mikla vinna
mundi haldast lengur en út ágúst
sagði Halldór að svo væri ekki, þá
yrði aftur farið í tvær sex tíma
vaktir. Þess má geta að rækju-
vinnsla Skagstrendings er
langstærsti vinnustaðurinn á
Skagaströnd í dag. Lætur nærri
að starfsmannafjöldi þar sé um
10% íbúa þorpsins.
tekur við gjafabréfinu úr hendi Stefáns Guðmundssonar for-
manns stjómar Kaupfélags Skagfirðinga.
AðalfandarfuUtrúar
KS gefa laun sín
Á aðalfúndi Kaupfélags Skag-
firðinga á liðnu vori samþykktu
aðalfúndarfulltrúar að gefa kr.
300.000 til Rauða kross íslands,
er varið skyldi til hjálparstarfs í
ríkjum fyrrum Júgóslavíku, í stað
þess að þiggja laun fyrir setu á að-
alfundinum. Fulltrúar Kaupfé-
lagsins afhentu þessa gjöf form-
lega fyrir skömmu.
Þetta var fyrsta verk nýkjörins
stjómarformanns Kaupfélags
Skagfuðinga Stefáns Guðmunds-
sonar. Stefán sagði að menn hefðu
lengi veitt eftirtekt því fórfúsa
samvinnustarfi sem félagar í
Rauða krossinum ynntu af hendi,
bæði hér í Skagafirði og annars
staðar og því væri það vel við hæfi
að samvinnumenn hjá Kaupfélagi
Skagfiiðinga veittu þennan þakk-
lætisvott til Rauða krossins og
legðu þar lið hinu ntikla hjálpar-
starfi í ríkjum fyrrum Júgóslavíu.
Katrín María Andrésdóttir
svæðisfulltrúi Rauða krossins
þakkaði gjöfina og góðan hug að-
alfundarfulltrúa KS, sem og
stjómenda félagsins. Katrín sagði
Skagfiiðinga sýna starfi Rauða
krossins mikinn og ómetanlegan
stuðning. Hún vék að starfi sam-
takanna og Skagafjaraðardeildar-
innar, en hún mun vera næstelsta
deild landsins, einungis Akureyr-
ardeildin er eldri.
Samið við Borgina um skólann
Umhverfis- og tækninefnd
Skagaijarðar samþykkti á fundi
sínum fyrir viku að hafna eina
tilboðinu sem kom í byggingu
b-álmu og Kubbsins svokaUaða
viðÁrskóla. Nefnin leggurtil að
leitað verði samninga við tilboðs-
gjafa um verkið, en það var Tré-
sntiðjan Borg hf sem átti eina
tilboðið í skólabygg ingamar.
Endurskoðuð kosntaðaráætl-
un ffá hönnuðum er upp á 181,2
milljónir. Tilboð Trésmiðjunnar
Borgar var 22,2% yfir kostnað-
aráætlun og fulltrúar í umhverf-
is- og tækninefnd telja mögu-
leika á að samningar náist á
milli sveitarfélagsins og Borgar
um að fyrirtækið taki að sér
ffamkvæmdimar.
Búist var við fleiri tilboðum í
þetta verk, sem er nokkuð stórt í
sniðum, og verkið var boðið út á
almennum markaði. Ætla má að
næg verkefni séu hjá bygging-
araðilum í héraðinu og nágrenn-
inu, þar sem einungis þetta eina
tilboð barst.
Jóhann ráðinn skólastófi í Húnaþingi
Skólastjóri ráðinn að
tónlistarskólanum
Á fundi skólanefndar Skaga-
fjarðar í gær og á sveitarstjómar-
fundi seinna um daginn var
gengið ffá ráðningu Sveins Sig-
urbjömssonar í stöðu skólastjóra
sameinaðs Tónlistarskóla
Skagaijarðar og Akrahrepps.
Umsækjendur unt starfið vom
fimrn talsins, auk Sveins þau
Mínerva M. Haraldsdóttir frá
Eiðum, Jóhann Þór Baldursson
Búðardal, Hilmar Sverrisson
Sauðárkróki og Þórólfur Stef-
ánsson sem búsettur er í Sví-
þjóð. Fram kom á fundi sveitar-
stjómar í gær að yfirkennarar við
Tónlistarskólann verða Stefán
Gíslason við útibúið í VarmahKð
og Anna Jónsdóttir á Hofsósi.
Jóhann Albertsson skólastjóri
Laugarbakkaskóla hefur ver-
ið ráðinn skólastjóri sameinaðs
grunnskóla í Húnaþingi
vestra. Jóhann mun þó ekki
formlega taka við starfinu fyrr
en 1. ágúst árið 2000. Fram að
þeim tíma mun hann sinna
verkefnisstjóm vegna samein-
ingar skólanna, þannig að
Bjarney Valdimarsdóttir
skólastjóri grunnskólans á
Hvammstanga mun sinna
sínu starfi fram að þeim tíma.
Jóhann var einn umsækjenda
um skólastjórastöðuna þegar hún
var auglýst, og væntanlega hefur
fjöldi umsækjendaráðist af því að
óformlega mun hafa veriðbúiðað
ganga frá ráðningu Jóhanns í
starfið áðuren það var auglýst, en
það mun vera skylda að auglýsa
opinber störf.
BÚ STA&UK
FASTEIGNASALA
Á LANDSBYGGÐINNI
Jón Sigfús Sigurjónsson HDL.
Aðalgötu 14, Sauðárkróki, sími 453 6012