Feykir - 15.12.1999, Blaðsíða 20
íslenskir bændur eru í fararbroddi þeirra
sem vilja framleiða hreina og ómengaða
matvöru úr landsins gæðum.
Alyktun aðalfundar Búnaðarsambands
Eyjafjarðar, 27. apríl 1999.
Áburðarverksmiðjan hefurstaðið með bændum
í þessari baráttu með því að framleiða vistvæna
næringu fyrir gróðurinn, áburð sem hentar betur
íslenskri náttúru en erlendar tegundir. í fram-
leiðslu sinni notar Áburðarverksmiðjan hráefni
sem eru nær algjörlega laus við þungmálma en
þeirskaöa náttúruna, menga grunnvatnið, koma
fram í þeim afurðum sem við neytum og safnast
að lokum upp í líffærum dýra og manna. Með
því að nota vistvænan áburð, þróaðan fyrir
íslenskar aðstæður, tryggja íslenskir bændur
hreinleika þeirrar næringar sem náttúran hefur
veitt okkur í aldanna rás. Þannig vinnum við
saman að framgangi landbúnaðar á íslandi.
„Aöalfundur B5E 1999 telur brýnt að öll
íslensk búvöruframleiðsla verði vottuð sem
vistvœn framleiðsla innan skamms tíma.
Fundurinn telur umhverfisstefnu BSE
góðan grundvöll slíkrar framleiðslu og
hvetur til aukinnar vinnu og sýnilegri á
þessari braut. Gera verðurþá kröfu til
stjórnvalda að innfluttarsamkeppnis-
vörur uppfylli ekki minni gœðakröfur en
innlend framleiðsla og að eftirlitsé virkt
með innflutningi."
Nýtið ykkur hagstæð kjör á áburöi með því að staðfesta pantanir fýrir áramót.
ÁBURÐARVERKSMIÐJAN HF.
Gufunesi -128 Reykjavík - Sfmi 580 3200 - Fax 580 3209 - www.aburdur.is
- Farsœl þjónusta viö bœndur í 45 ár.